Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Blaðsíða 12
56C LESBÓK MORGUNBLAÐSINS A ÞESSARI öld hraðans, háreistinnar, dýrtíðar og ótta við kjarnorku- sprengingar, hefir fjöldi manna misst svefn og veit ekki hvernig á að ráða bót á því. í þessari grein, sem er útdráttur úr bókinni „Morfeus and Me“ eftir Phyllis I. Rosenteur, er .bent á nokkur ráð gegn andvöku. pund af fiski á ári af því landi, er áður gaf af sér um 10 pund af kjöti, meðan það var notað til beit- ar. — Víða um heim eru stórir fenia- flóar, sem engum eru að gagni. Þar mætti koma upp fiskarækt og gera þessa flóa arðberandi. Og víða hagar þannig til að fiskarækt mundi verða að miklu gagni. — o — Þetta er útdráttur úr bók sem kom út á þessu ári og nefnist „The Fight for Food“ Höfundur hennar er enskur vísindamaður, dr. J. Gordon Cook. Vér íslendingar erum að tiltölu við fólksfjölda einhver mesta fisk- veiðaþjóð í heimi, og eigum svo að segja allt undir því að fisk- veiðarnar gangi vel. En á því hefir orðið nokkur misbrestur hin seinni árin. Veldur þar margt um, afla- skortur vegna ágengni veiðiskipa annarra þjóða, stopular síldargöng- ur og geysimikill útgerðarkostn- aður. Hér þarf einhverra nýrra úr- ræða, og mundi þá ekki fiskirækt verða eitthvert bezta úrræðið? Hér er ekki átt við fiskrækt í smátjörn- um og vötnum, þó að það sé ágætt, heldur fiskrækt í stórum stíl, þann- ig að um muni í þjóðarbúskapnum. Það vill svo vel til, að vér eigum hér marga langa og djúpa firði, sem virðast tilvaldir til fiskræktar, ekki síður en Loch Sween í Skot- landi. Má þar sérstaklega nefna Súgandafjörð, sem er langur, og djúpur hið innra, en með þröskuidi rétt innan við fjarðarkjaftinn, þar sem hægt mundi að gera varnar- garð. Með ræktun mætti eflaust ala þarna ógrynni af fiski, þegar þess er gætt hver reynslan heíir orðið annars staðar. Sama máli er að gegna um Þorskafjörð, þar sem nú fæst aldrei branda, en gæti orð- ið afbragðs klakstöð. VÍSINDAMENN eru enn að þrátta um eðli svefnsins, en engum þeirra hefir tekizt að koma með neitt óbrigðult ráð við svefnleysi. Að vísu er víst ekki til neitt allsherjar ráð gegn því, en svefnleysið hefir líka margar orsakir, og þess vegna hafa komið fram ýmsar bendingar og leiðbeiningar fyrir þá, sem svefnleysi angrar. Nú er það vitað, að öryggiskennd er bezta svefnmeðalið — að vita sjálfan sig á réttum stað, innan Það er ekki á færi annara en verkfræðinga að gera áætlanir um hve mikið mundu kosta stíflur i fjarðarkjaftana. Fiskifræðingar verða svo að koma til skjalanna og segja hvaða fiskategundir muni hægt að rækta í þessum fjörðum með beztum árangri, hve mikið af fiski megi ala þar upp þegar firð- irnir hafa verið „fullræktaðir" og hve mikla veiði þar megi fá á hverju ári. Þá fyrst er hægt að átta sig á því hvort fyrirtækið muni borga sig. En oss er nauðsyn að finna nýar leiðir í fiskimálum vorum, og þess vegna er þessari hugmynd skotið íraio. læstra dyra, hafa lokið öllum störf- um dagsins og bera engan kvíð- boga fyrir næsta1 degi, og hafa engu gleymt af því sem gera þurfti áður en maður fór að hátta. Það er merkilegt hvað ýmsir smámun- ir geta haldið fyrir manni vöku, svo sem ef maður gleymir að draga upp klukkuna eða láta köttinn á sinn stað. Ef gegn og ráðsettur maður get- ur ekki sofið, er líklegt að eitthvað sé í ólagi með meltinguna, einkum ef hann kvartar um að hann vakni um miðjar nætur og verði and- vaka. Maður, sem fer að sofa kl. 11 að kvöldi, en vaknar svo kl. 4 um nóttina og verður andvaka, er sennilega svangur. Setjum svo, að hann hafi snætt kvöldverð kl. 7 um kvöldið, en þá er maginn orðinn tómur eftir 9 klukkustundir, og heimtar sitt. Þess vegna ráðleggja nú læknar mörgum að borða dálítið af næringarríkri fæðu rétt áður en þeir fara að sofa. Það þarf meira að segja ekki nema dálítið snarl á kvöldin, til þess að halda mag- anum nokkurn veginn rólegum fram að morgunverðar tíma. Hitt er aftur á móti vitleysa, að ætla að raða svo í sig kl. 7 að kvöldi, að það nægi fram að morgunverði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.