Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1958, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1958, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 387 Jökullinn á Suðurskauts- landinu. þúsundum. Og mýflugurnar eru svo ásæknar á sumrin, að mönnum er varla vært. Menn hafa átt heima á ströndum. Norðurskautsins um þúsundir ára, áttu þar jafnvel heima á ísöld. Þeg- ar íscldinni lauk og gróður hófst aftur, tóku menn að stunda land- búnað þar sem tíðarfarið var sæmilegt, nema heimskautabúarn- ir, þeir heldu áfram að vera veiði- menn. Á þessum slóðum skipta menn árinu í tvö missiri, ljóstíma og myrkurtíma. Þetta þýðir þó ekki, að þar sé dagur hálft árið og nótt hinn helminginn. Jafnvel á norð- urpólnum, þar sem vetrarmyrkrið er lengst, er þó ekki myrkur nema í 80 daga. Sunnar, þar sem Eskí- móar byggja, sér ekki sól í 16 vik- ur, en þar er þó skíma mestan hluta þess tíma og ekki myrkur nema svo sem 5—6 vikur. Það er einn kostur við heim- skautalöndin, að tunglið er þar bjartara en annars staðar. Þetta stafar af halla jarðar á sporbaug sínum. Birtan af tunglinu er að vísu ekki nema 1/500000. af birtu sólar, en er þó nær jafn gagnleg. Snjórinn endurkastar birtunni og vegna þess hve heimskautaloftið er jafnan hreint og tært, er gott skyggni allt að sjdndeildarhring. Æfðir flugmenn geta lent á ísi við tunglsljós, þótt tungl sé ekki nema hálft, engu síðAr en um bjart- an dag, og þeim þykir það jafnvel betra vegna þess að þá fá þeir ekki ofbirtu í augun eins og af sólar- geislum, sem endurkastast frá snjó eða ísi. —★— Fjórar ísaldir hafa gengið yfii jörðina á þeim milljón árum, sem maðurinn hefir verið uppi. Seinustu 50 árin hafa margir smájöklar horfið af yfirborði jarð- di’. í Alaska hafa sumir skriðjökl- ar stytzt um 200 fet. I Alpafjöllum hafa helztu jöklarnir rýrnað um fjórða hluta seinustu hundrað ár- in. Jafnvel jöklarnir á Grænlandi hafa látið á sjá. Mönnum telzt svo til, að seinustu 100 árin hafi allir jöklar á jörðinni rýrnað um tíunda hluta. Það virðist svo sem lengri og styttri jöklatímabit i 'ingi yfir jöið ina. Jökulskjöldurinn mikli tók aí dragast saman fyrir 10.000—11.000 árum, og þá var loftsiag hlýrra á jörðinni en nú er. Síðan fyrir eitt- hvað 2500 árum, tóku jöklar aftur að aukast, og það kalla jöklafræð- ingar „ísöldina litlu“. Hún stcð allt fram á 19. öld. En svo lauk „ísöldinni litlu“ jafn mögglega og hún hafði hafizt og jöklar tóku að ganga saman. Nu sjást þess merki sums staðar, að jöklar eru að aukasf aftur, svo sem í norðvesturhluta Bandaríkj- anna. Hvort hér er um staðbundna jöklaaukningu að ræða. eða hvort þetta er upphaf að nýrri jökulöld, vita menn ekki. Þær skipta tugum skoðanir manna á því, hvers vegna jökul- öld hefst og hvers vegna henni lyktar. Sumir segja að jörðin hafi hlotið að ranga sér á braut sinni, og þess vegna sé jöklarnir nú á Grænlandi og Suðurskautslandinu. Aðrir halda því fram að aukning jökla stafi af því að fjöll hafi risið upp og hækkað. Vegna þessa hafi vindar breytzt, en fyrir milljón ár- um hafi þeir geta streymt óhindrað um alla jörð og vermt hana. Enn aðrir halda því fram a* íöklamyndanir standi í sambandi við eldgos. Þegar mikil eldgos sé. berist askan úr þeim upp í háloft- in og skyggi þar á sól, svo að hún njóti sín ekki. Aðrir segja að það sé ekki eldfjallaösku að kenna,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.