Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1958, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1958, Page 1
33. tbl, XXXIII. árg. J&tirjjim Wa&g ins Sunnudagur 14. september 1958 Hjá Albert Schweitzer í Lambarene EG STEIG á eintrjáningsbát. Ræð- ararnir voru fjórir. Þeir höfðu allir verið holdsveikir áður, en var nú batnað. Við lögðum út á Ogowe- ána, sem rennur um frönsku mið- jarðar-nýlenduna. Frumskógur náði alveg fram á árbakkann og sums staðar náðu rótarfléttur út í ána sjálfa. Hitinn var óþolandi og loftið var rakt. Dr. Schweitzer ferðast aldrei i flugvélum. Hann fer með gufuskip- um og síðan á báti upp eftir ánm, en það eru rúmlega 200 km. frá ströndinni upp að Lambarene. En eg hafði komið langleiðis í flugvél. Þegar við komum á móts við eyna, þar sem Lambarene stendur, blöstu fyrst við mér rauðmáluð bárujárnsþök undir hæð nokkurri. Eg gekk á land, og maðurinn, sem tók á móti mér, var nú nær 83 ára gamall. Hann hafði farið til Afríku þegar hann var um fer- tugt, og síðan hafði hann eytt ævi sinni að miklu leyti á þessum stað, sem er einhver hinn óheilnæmasti staður á öllu jarðríki. Hann talar ekki ensku. Hann er fæddur í Elsass og talar því þýzku og frönsku jöfnum höndum. En hann segir að aðeins ein tunga geti verið móðurmál manns, og þýzkan er hans móðurmál. Hann hugsar á þýzku og talar altaf þýzku, nema þegar hann á við Svertingja. Þá talar hann frönsku. Á leiðinni upp að bústað hans varð hæna með unga á vegi okk- ar. Hann dró þá upp úr vasa sín- um ofurlítinn léreftspoka með korni, og stráði korninu á veginn. Svo komum við að girðingu, þar sem hann geymir fimm antílópur. Þá dró hann salt upp úr vasa sín- um og gaf þeim að sleikja. Það var auðséð að hann hafði ánægju af þessu. 'k -k -k Næstu daga kynntist ég svo stöð- inni í Lambarene. Hátt í hæðinni eru bústaðir Schweitzers og hinna hvítu starfs- manna hans, en það eru þrír lækn- ar, 15 hjúkrunarkonur og aðstoð- arfólk. Þetta eru löng og hvítmál- uð hús. Aðal sjúkr^húsið er í rauninni margir skálar, með þröngum stíg- V 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.