Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1958, Síða 8
456
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
A A D 9 7 4
V G 6 4
♦ A D 8
+ ÁD
* G 10 8 3
V K D 10 9
8
* 763
* 6
♦ 5 2
V A 7 3
♦ K 10
♦ G 10 9 7 4 3
N opnaði á spaða, S sagði 2 lauf, N
2 spaða, S 2 grönd og N 3 grönd. V
sló út HK. Þegar S lítur nú yfir spilin,
sér hann að nógu margir eru „punkt-
arnir“ til þess að vinna 3 grönd, en
legan er slæm. Hann verður að reyna
að geyma HÁ til þess að komast inn á
seinna þegar hann hefir fríað laufin.
Hann gefur því slaginn, en V grunar
hvers vegna hann gerir það og slær
út HD. Þá verður S að drepa. Nú kom
láglauf, drepið með ás og síðan kom
LD. A gaf hana. Þá kom T8 úr borði
og vonaði S að hann mundi geta fengið
slag á T10. En A sá við því og drap
með gosa, svo S varð að láta kónginn.
Nú eru allar bjargir bannaðar, laufið
ónýtt, en reynandi er að spila spaða
undir drottninguna. Það heppnast ekki,
A drepur með kóng, tekur svo slag á
LK og slær því næst úr tígli. Og þá
hlýtur V að fá tvo slagi á spaða áður
en lýkur, og spilið er tapað.
♦ K 6
V 5 2
♦ G 9 6 4 2
♦ K 8 5 2
MANNVIT
Það er mannvit, ef maður er stadcjur
á fjöldafundi manna á þingum eða
stefnum og h°yrir hann þar orð manna
og erindi, að k ’rna á því skóða skiln-
ing, hver orð og erindi eru þau þar
mælt, er tekin eru af mannvitsgrund-
velli, eða hvað mælt er af skjótu tungu-
varpi eða skammsýnilegu varraskrapi.
Hóf allt og sannsýnt er og mikið mann-
vit, fróðleikur allur, og skilning öll og
góð forsjá, sú er hafa þarf til hæversku
VIÐ SUNDIN BLÁ. — Fremst á mvndinni sér ofan á félagsheimili Langhoits
safnaðar. Húsið er í smíðum og á að verða steypt þak á því. Vinstra megin sés
geðveikrahæiið á Kleppi út við sundin, en þar gegnt til hægri, handan vif
Elliðavog, sést Áburðarverksmiðjan á Gufunesi. Langholtsvegur sker mvndin,
um miðju. (Ljósm.: vig.
eða siða, lands byggingar eða laga-
gæzlu eða lands gæzlu. (Konungs-
skuggsjá)
BYR OG ANDRÓÐI
Málshátturinn „bíðendur eiga byr,
en bráðir andróða“, kemur fyrst fyrir
í Alexanderssögu: „Ok fyr því byrjar
oss, þar sem bíðendur eigu byr, en
bráðir andróða, at maka þessar þjóðir
í várri dvöl með nokkurri venju, at 1
tómi taki þær tamningu fyrir vanda
várrar návistu at niðurlögðum þráleik
þorparaligs siðferðis".
FURÐULJÓS
Síðari hluta vetrar 1885 eða 1883
dvaldist í Reykjavík útlendur stjörnu-
fræðingur, sem Tromholt hét. Sú
fregn flaug þá um bæinn, rétt fyrir
sumarmál, að Tromholt þessi ætlaði að
láta stjörnu birtast á himinhvelfing-
unni um klukkan níu á sumardags-
kvöldið fyrsta. Um kvöldið þustu að
hvaðanæva úr bænum bæði ungir og
gamlir til þess að horfa á tákn þetta
og stórmerki. Þegar stundin kom,
klifraði Tromholt með samanbrotinn
loftbelg upp á þakið á svokölluð'
Njáishúsi (norðan undir verslun Ell
ingsens, sem nú er). Brýtur hann þa
sundur loftbelginn, sem var um fjóra
álnir á lengd og alin að þvermáli
tendrar inni í honum gasljós og slepp
ir honum síðan. Belgurinn flaug hátt
loft upp og hvarf fólki sýnum norðu
undir Engey. Þótti þetta undur mikic
og ágæt skemmtun (Landnám Ingólfs)
VERÐLAG FYRIR 70 ÁRUM
Fyrir 70 árum árum komu sýslu
nefndarmenn Árnessýslu saman 0(
sömdu tillögu um verð á greiða. Töldi
þeir þetta verð sanngjarnt:
fyrir rúm um eina nótt .... 10 aura:
fyrir að þurrka vosklæði .. 5 —
venjuleg máltíð ............ 25 —
einn pottur af nýmjólk .... 12 —
1 bolli molakaffi .......... 10 —
10 pund af töðu ............ 30 —
10 pund af útheyi .......... 20 —
fylgdarmaður 1 klst......... 20 —
fylgdarmaður heilan dag .. 100 —
hestlán um klst............. 10 —
hestlán allan daginn ...... 100 —
I