Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1958, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1958, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 471 Horfur fyrir 70 árum og spá um hvernig fara muni í „VERDENS GANG“ birtist grein 3. september 1887 um hernaðar- kapphlaup þjóðanna og ófriðar- blikuna, sem á lofti var. Höfundur- inn dregur síðan sínar ályktanir af því hvernig fara muni, og hefir reynzt furðu glöggskygn. Hann segir: — Árið 1878 voru helztu þjóð- skörungar í Evrópu saman komnir á Berlínarfundinum, sem Bismarck stýrði, til þess að semja frið með Rússum og Tyrkjum eftir síðustu styrjöldina á Balkanskaga. Sir Charles Dilke, sem eftir stöðu sinni í utanríkisstjórn Englendinga hef- ir haft gott færi á að heyra mai manna þar og ráðagerðir, segir svo frá, að þessi stórmenni, sem voru saman komin til að festa friðinn voru að ganga hver til annars og bjóða hver öðrum, ofboð rólega, hreint eins og ekkert væri um að vera, einhverja ey, einhvern lands- hluta eða einhverja skák úr ein- hverju ríki, sem þeir áttu ekkert með. heldur var annarra manna eign. Það voru blátt áfram „hrossa- kaup“. England tók eyna Kýpur frá Tyrkjum, Austurríki tók frá þeim Bosníu og Herzegowinu, síð- ar tók Frakkland Túnis, og Rúss- land gekk að samningum með þeim ásetningi að rjúfa þá. Þar mátti eigi á milli sjá: þjóðveldið Frakkland og harðstjórnarríkið Rússland, frelsisgoðið England og afturhaldspúkinn Austurríki — allt var hvort öðru jafnsnjallt að göfug -mennsku, „allir ógiftir í verinu“ allir ernir er hræið var fundið. Þetta eru söguviðburðir, sem ekki er hægt að bera til baka. Svona er bláber sannleikurinn, þegar stjórnspekishjúpnum er af honum svipt. Hér hafa öll stór- veldin borið þess vitni, að vér lif- um á öld ofríkis, en ekki réttlætis. Sín á milli geta þau orðið ásátt um einn hlut — að ræna aðra. En einhvern tíma kemur að skuldadögunum; einhvern tíma rennur hann upp hinn mikli dag- ur. Einhvern tíma verður vopnun- um beitt. Rússlandi og Austurríki hlýtur að lenda saman fyr eða síðar. „Frakklandi og Þýzkalandi hlýtur að lenda saman, kannske bráðlega, og kannske ekki fyr en eftir 10 ár“, sagði Bismarck fursti í fyrra- vetur. Allir kvíða hinu mikla Ragna- rökri og vita að það hlýtur að koma þá og þegar. Því lengra sem líður, því óbærilegri verður við- búnaðurinn. Þess mun skammt að bíða, að alþýða manna mun held- ur kjósa, að ófriðinn beri brátt að höndum, en að hans verði langí að bíða. Og þessir stjórnskörungar, sem ráða málum stórþjóðanna og sem heimta allan þennan herbún- að og allar þessar álögur, mundu flest fremur kjósa, en að gangast undir ábyrgð þá, er ófriði fylgir, þar sem svo mikið er í húfi. Þeir eru svo margir í sömu súpunni, í sömu fordæmingunni, að enginn einn ber ábyrgðina. Hver apar allt jafnharðan eftir öðrum, svo að allir eru þeir bæði fyrstir og sein- astir. Og sá stjórnskörungur, sem fengi land sitt til að leggja niður vopnin, hann stæði eins og ódreng- ur frammi fyrir þjóð sinni, er ná- grannaþjóðirnar réðust á hana og legðu hana að velli. Svo hart er þessi hnútur riðinn. Og hann harðnar æ því meir, þang- að til sá sannleikur er búinn að ryðja sér til rúms, að það gildi ekki annað siðferðislögmál fyrir þjóðirnar heldur en fyrir einstaka menn. Ný og mikil styrjöld gerir ekki annað en að auka hefndarhug- inn og viðbúnaðarþrautina undir næsta ófrið. Þegar ríkin, eða rétt- ara sagt þjóðirnar, eins hinar lægri sem hinar æðri, telja það skyldu sína og sóma sinn, að sleppa því, sem þær eiga ekki með réttu, og að taka ekki það sem aðrir eiga, — þá, en fyr ekki, er skálmöldin und- ir lok liðin. Handalögmálið verður aldrei til annars en þess, að álög- urnar verða æ þyngri, sem menn bera og verða að bera, þangað til loks tekst að innræta það hugarfai öllum einstökum mönnum, að það er lítill frami, að eiga ræningja- bæli fyrir föðurland, en hitt mikið lán, að eiga réttláta óðalsstorð. Erfitt crð gera v/ð — í VETUR sem leið kom ógurlegur jarð- skjálfti í Perú, og er hann talinn sá mesti, er þar hefir komið síðan 1540. Á hálfri mínútu hrundi borgin Arequ- ipa í rústir svo að segja, ásamt út- borgunum Yarabamba, Paucarpata og Miraflores, og þorpunum Sabandia og Tiabaya. íbúarnir þarna eru rómversk-kaþ- ólskir og voru þar margar kirkjur og musteri, en á þeim urðu stórkostleg- ar skemmdir, turnarnir hrundu og veggir sprungu og allt umturnaðist. Þetta þótti mönnum undarlegt. í öll- um þessum kirkjum voru dýrlinga- myndir, sem menn höfðu tilbeðið og treystu að gert gæti kraftaverk. En sjálfum sér gátu þær ekki hjálpað. í dómkirkjunni var líkneskja „hinn- ar helgu meyar frá Asunta“, er menn höfðu mikla trú á og höfðu fært marg- ar fórnir. Þessi líkneskja stóð hátt, en í jarðskjálftanum brotnaði höfuðið af henni niður við axlir og hentist ofan á gólf og fór þar í smámola. Það var sagt opinberlega að mjög erfitt mundi reynast „að gera við“ hina heilögu mey. (Úr Awake).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.