Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
44T
Frá brúarvígslu
i Hornafirði:
Mannfjöldi á leið
til brúarinnar.
bakarameistara, lézt í bílslysi i Kaup-
mannahöfn (15.)
13 ára stúlka, Helga Guðmundsdótt-
ir frá Skagaströnd, féll niður af þaki
Laugaskóla i Þingeyarsýslu, 8—9
metra fall, en slasaðist sáralítið (15.)
Vélbáturinn Keilir frá Akranesi
missti nótabát sinn, er ókunnugt skip
sigldi á nótabátinn í niðaþoku fyrir
Austurlandi og sleit hann frá vél-
bátnum (16.)
17 ára menntaskólapilt, Magnús
Tryggvason, tók út af vélbátnum
Freyu úti fyrir Austfjörðum og
drukknaði (17.)
13 ára piltur, Hreiðar Jóhannsson
frá Akureyri, varð undir bíl og slas-
aðist illa (17.)
Tvívegis siglt á Reykjavíkurtogar-
ann Þorkel mána og hann laskaður
nokkuð (18.)
Sextugur þýzkur iðjuhöldur, Peter
Hellenthal frá Bad Godesberg,
drukknaði í Mývatni (18.)
Fiskimjölsverksmiðjan á Fáskrúðs-
firði brann til kaldra kola (19.)
Mannlaus vörubifreið rann inn í
gler-vermihús að Víðigerði í Biskups-
tungum og olli miklu tjóni (23.)
Fjórir menn réðust að Stéfáni Jóns-
syni, fréttamanni Útvarpsins, er
hann var staddur á Akureyri og mis-
þyrmdu honum (26.)
Ibúðarbraggi, C 11 í Knox-búðum,
eyðilagðist í eldi (26.)
Heyhlaða með 400—500 hestum af
heyi brann í Æðey (26.)
Bærinn Geirakot í Fróðárhreppi
brann til kaldra kola (26.)
Árekstur varð á síldarmiðunum
milli vélbátsins Seleyar frá Eskifirði
og norska reknetjabátsins Sjövik I
með þeim afleiðingum að norski bát-
urinn sökk. Mannbjörg varð (30.)
BÓKMENNTIR OG LISTIR
Magnús Jónsson óperusöngvari
heldur tónleika hér (5.)
Pólýfónkórinn íslenzki varð þriðji
í röðinni á alþjóðasöngmóti í Bret-
landi (6.)
Gangleri, tímarit Guðspekifélagsins,
stækkar um þriðjung (11.)
Davíð Stefánsson, skáld, hlaut verð-
laun fyrir hátíðarljóð í tilefni 50 ára
afmælis Háskóla íslands (15.)
Nína Tryggvadóttir, listmálari, hélt
málverkasýningu í Rosefriede Gallery
í New York (19.)
Bandalag kvenna gefur Reykjavík-
urbæ stórt veggteppi, „Koma Ingólfs
og Hallveigar til Reykjavíkur", til
minningar um frú Ragnhildi Péturs-
dóttur í Háteigi. Frú Vigdis Krist-
jánsdóttir óf teppið (19.)
„Skuggsjá Reykjavíkur“ nefnist ný
bók um Reykjavík eftir Árna Óla,
ritstjóra (23.)
1. bindi af æviskrám Vestur-Islend-
mga, sem sr. Benjamín Kristjáns-
son, Steindór Steindórsson og Ami
Bjarnason, hafa tekið saman, komið
út (24.)
Kristján Davíðsson, listmálari, opn-
ar málverkasýningu (26.)
FÉLAGSMÁL
Öryrkjabandalag Islands stofnað.
Formaður þess er Oddur Ólafsson
læknir (5.)
Sveinbjörn Árnason kosinn formað-
ur Félags vefnaðarvörukaupmanna
(9.)
Ólafur Guðmundsson endurkjörinn
formaður Félags veggfóðrarameistara
(10.)
Aðalfundur Skógræktarfélags ís-
lands haldinn að Hallormsstað (20.)
Kvenfélag stofnað í Breiðdals-
hreppi (20.)
14. landsþing Kvenfélagasambands
Islands haldið í Reykjavík (23.)
Samband islenzkra stúdenta er-
lendis stofnað (25.)
Stjórnarfundur Húsmæðrasambands
Norðurlanda haldinn í Reykjavík
(25.)
Prestafundur Hólastiftis haldinn að
Hólum í Hjaltadal (25.)
Níunda þing Verkstjórasambands
Islands haldið að Laugarvatni. Guð-
laugur Stefánsson, Reykjavík, endur-
kjörinn forseti (30.)