Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Blaðsíða 4
440 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ar þar hafi annað ásigkomulag en sömu bergtegundir hér á jörð; getur vel verið að þær sé mjúk- ar og seigar og límkenndar, jafn- vel svo að farartæki myndi fest- ast þar, ef mönnum skyldi ein- hvern tíma takast að flytja farar- tæki þangað. Auðvitað er þar ekkert ætilegt að hafa. Tunglfarar yrði því að nesta sig vel. En ef þeim skyldi detta í hug að setjast að á tungl- inu, verða þeir að reyna að rækta þar eitthvað. Þar er þó enginn jarðvegur. Menn þyrftu líklega að flytja með sér svo mikið af vatni að þeir gæti ræktað græn- meti í því í lokuðum kerjum. Vísindamenn eru ekki í neinum vafa um það lengur, að hægt er að senda menn til tunglsins, og að þeir geti haft með sér farartæki til þess að ferðast þar um. Og þessa verður freistað áður en langt um líður. En hvað ætla menn þá að sjá á tunglinu? Þeir þykjast þar muni geta l^omizt að raun um á hvern hátt sólhverfið hefir skapazt. Tunglið sé svo að segja ósnortið, og mikill munur á því og jörðinni, sem hefir verið vindum skekin og hreggi lamin frá upphafi. En skyldi það þá ekki geta komið í ljós, að skoðanir manna á tunglinu verði enn að breytast? Undirbúningur Bandaríkjanna Árið 1965 eru hundrað ár síðan Jules Verne skrifaði skáldsögu sína „Förin til tunglsins“. Ýmsir tala um að gaman væri að geta þá komist til tunglsins, en banda- rískir vísindamenn telja tormerki á að það geti orðið. Þeir segjast varla munu geta sent mann til þess að lenda á tunglinu, fyr en um 1970. En þrátt fyrir það þykj- ast þeir munu hafa rannsakað tunglið nákvæmlega fyrir bann tíma. Þeir hafa gert áætlun um þessar rannsóknir og er hún í mörgum liðum, en þetta er hið helzta: 1. Sjónvarpsmyndir teknar af tunglinu mjög nærri því, og þær jafnharðan sendar til jarðar. 2. Að senda til tunglsins lítið áhald, sem ekki getur skemmst við lendinguna. Þetta áhald á síð- an að mæla segulmagn tunglsins og tunglskjálfta. 3. Árið 1964 er búist við að hægt verði að senda ljósmynda- tæki til tunglsins og eiga þau að taka myndir af næsta umhverfi, en myndunum jafnharðan sjón- varpað til jarðar. 4. Þá verða og send þangað áhöld til þess að rannsaka hvaða efni sé þar í jarðveginum. Þessi áhöld hafa bæði X-geisla og gamma-geisla til þess að skyggn- ast inn í efnið, og ennfremur fylgja þeim Ijósmælar. 5. þá er í ráði að senda til tunglsins sjálfstýrt farartæki á uppblásnum belghjólum. Það á að fara um tunglið eins langt og það kemst og kraft sinn fær það úr sólhlöðnum rafgeymum. í því verða senditæki, sem skýra ná- kvæmlega frá því hvernig vegur- inn er. Með þessu móti hyggjast menn komast að því hvemig yf- irborð tunglsins sé, og hvar mundi heppilegur staður til að lenda, þegar maður verður send- ur þangað. 6. Þá er enn í ráði að senda þangað sjálfvirkt tæki, sem taka skal sýnishorn af „jarðvegi“ tunglsins. Það er með rákettu og á að geta flogið aftur til jarðar með sýnishornið. Allar þessar rannsóknir kosta stórfé, eins og bezt má sjá á því hvað fyrstu tilraunimar hafa kostað. Fyrstu þrjú árin eftir að Bandaríkin hófu geimrannsóknir sínar, sendu þau út í geiminn 5000 pund af vísindaáhöldum. Þau eru auðvitað mjög dýr, en auk þess kostaði það 100.000 dollara að koma hverju pundi upp í há- loftin. Maðurinn nauðsynlegur En þrátt fyrir allar þessar vfs- indalegu rannsóknir, geta áhöld- in, þótt fullkomin sé, aldrei orðið einhlít. Þau skortir bæði skyn- semi og mál. Um þetta segir Ge- orge M. Low, einn af aðalforingj- um geimferðanna: — Það er erfitt að hugsa sér að hægt sé að finna upp áhöld, sem geti að fullu komið í stað jarðfræðings, mælingamanns, ljós- myndara, efnafræðings, lífffræð- iiigs og ótal margra annara vís- indamanna. Hve góð, sem áhöld- in eru, hafa þau ekki athyglis- gáfu né ályktunargáfu mannsins. Maðurinn verður því fyr eða síð- ar að koma til skjalanna. — Það er enginn vafi á því að þetta er rétt, segir eðlisfræðingur- iinn Ralph E. Lapp, en í öllu starfi sínu þurfa vísindamenn þó á áhöldum og mælitækjum að halda. Og menn verða orðnir þaulkunnugir tunglinu áður en þeir ferðast þangað. Menn munu líka fara til Marz, en þar er við meiri erfiðleika að etja, svo engu verður spáð um hvenær það tekst. Til tunglsins er hægt að ferðast fram og aftur á viku, en það verður að minnsta kosti þriggja ára ferðalag að fara til Marz og heim aftur. Hver er ávinningurinn? Eldflaugasérfræðingurinn Willy Ley hefir skrifað grein um það hvers ávinnings sé að vænta af ferðum til annara hnatta, og seg- ir þar meðal annars: Ýmsir hafa haldið því fram, að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.