Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1961, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 443 Smásagan Heilrœði TNU sinni var í Austurlöndum auð- ;ur maður, sem Ómar hét, og ann- r enn auðugri og hét sá Abdallah. )mar var læknir, en hinn var lög- íræðingur. Þeir voru frægir menn, hvor á sínu sviði, og þeir voru alda- vinir. Þegar þeir þóttust vera orðnir nógu ríkir, kom þeim saman um að þeir skyldi hætta að vinna og fara í ferðalag til þess að kanna ókunna stigu. Hvorugur hafði áður gefið sér tima til að ferðast. Svo lögðu þeir á stað tveir einir, Ferðalagið gekk vel. Þeir sáu margt nýtt og hvarvetna var þeim tekið með gestrisni og virðingu. Svo var það einn dag að leið þeirra lá um skóg mikinn. Komu þeir þar skyndilega fram í stórt rjóður, Þar voru víðir grasvellir, og þar voru hin furðulegustu blóm. Og úti á þess- um græna bala var kúahópur á beit. Þeir námu staðar til þess að virða fyrir sér þessa fögru sýn. En allt í einu kom naut æðandi út úr kúa- hópnum og stefndi bölvandi beint á ný að baki honum, enn magnaðra en áður. Hann gengur aftur inn í fjósið. Þar er enn sama kyrrðin. — Skárri er það nú bölvuð vit- leysan, hugsar Jón frændi og gengur nú rakleitt til lækjarins. En nautsdrunurnar heyrir hann að baki sér, unz bunuhljóð lækj- arins tekur þær úr eyrum hans. Þegar Jón kemur með föturnar inn aftur í fjósið, er þar allt á tjá og tundri, kýrnar allar órólegar á básunum, og Rauðskjalda í næst- innsta bás orðin kolbrjáluð. Hún skelfur og nötrar, þeytist til í básnum eins langt og klafabandið frekast leyfir, stekkur upp svo að við hggur, að hún hendist yfir básbálkana á víxl yfir í næsta bás. Hún hrekkur í kuðung við minnstu hreyfingu í fjósinu og rekur upp ámátlegt hræðslubaul þá. Þeir urðu dauðhræddir og ætluðu að flýa, en í óðagotinu flæktust kyrtlar þeirra um fætur þeim svo að þeir duttu báðir. Mannýgt nautið var skammt undan og þeir bjuggust við dauða sínum á hverri stundu. Þá heyrðist hvinur i lofti og ör hæfði nautið í síðuna. Nautinu brá og það staðnæmdist. Þá kom önnur ör og hæfði auga þess. Nautið stökk hátt í loft upp, en fell svo steindautt til jarðar. Þeim félögum var borgið. Þeir risu á fætur og þökkuðu Allah hástöfum fyrir vernd hans. Svo skimuðu þeir í allar áttir til þess að vita hvort þeir sæi ekki mann þann er hafði bjargað þeim. Þá gekk mað- ur út úr skógaþykkninu. Hann var með boga í hendi og örvamæli um öxl. — Allah sé lofaður fyrir það að eg kom nógu snemma til að bjarga ykk- ur, kallaði hann. — Þessi mannýgi tarfur hefir orðið mörgum að bana og það er langt síðan eg ætlaði að skjóta hann. Ferðalangarnir voru enn skjálfandi af hræðslu, en þeir þökkuðu honum með mörgum fögrum orðum fyrir að hafa bjargað lífi sínu. — Hvemig getum við launað þér þetta? sagði Omar. — Segðu okkur öðru hverju. Jón frændi róaði hinar kýrnar eftir beztu getu, brynnti þeim og gekk síðan til baðstofu. Þar var þá kominn Vernharður gamli, fjósamaður á næsta bæ. — Við þessu mátti búast, að tarf-djöfullinn væri ekki einsam- all á fer&inni, sagði Jón frændi kuldalega. — Síðan sagði hann sögu Rauðskjöldu, og þótti hún ill og óvænt. Rauðskjalda náði sér ekki aft- ur. Málnytin féll úr 18 mörkum niður í 4, og mjólkin varð rauð á lit. Um sumarið var hún látin fylgja hinum kúnum, en var ill- ræk sökum brjálsemi sinnar. Og hún var alltaf yxna. Eg var kúasmali þetta sumar. — Rauðskjöldu var slátrað um haustið. ii hvað við getum gert fyrir þig. Við erum rikir. Hvernig eigum við að gleðja þig? Ef þér þykir vænt um góða hesta, þá máttu veija handa þér bezta hestinn minn. — Eg á dýrmæta gimsteina, sagði Abdallah. Veldu þér eins marga og þú vilt. Maðurinn, sem hét Mukir, svaraði: — Þakka .ykkur fyrir, en það þigg eg ekki. Eg sækist ekki eftir gulii né gersemum, því að eg hefi nóg handa mér. Hið eina sem eg sækist eftir er það sem göfgar sálina og gerir mann vitran. En segið mér, hvert er starf yðar? — Eg er læknir, svaraði Omar, og hann er lögfræðingur. — Þá hafið þið eflaust kynnzt mörgu og eignast dýrmæta reynslu, sagði Mukir. — Og mér sýnist sem þér munuð vera vitrir. Þið getið því gert mér greiða. Þannig er mál með vexti, að fyrir nokkru eignaðist eg son og hann er einkabarn mitt. Nú langar mig til að biðja ykkur að gefa honum heilræði, er geti orðið honum til blessunar alla ævi. Þá hafið þið launað það, sem eg gerði fyrir ykkur. Þeir Omar og Abdallah kváðust báðir fúsir til þessa. — Þá skuluð þið koma heim með mér og gista hjá mér í nótt, sagði Mukir. — 1 nótt skuluð þið svo yfir- vega hvert er það bezta heilræði, sem þið getið gefið syni mínum, og látið mig svo vita það á morgun. En þið verðið að vinna þess dýran eið að þið ráðið honum ekki annað en þið teljið að verði honum til gæfu. — Við sverjum það við skegg spá- mannsins, svöruðu þeir báðir einum rómi og lögðu hendur sínar á hjarta- stað því til áréttingar. Síðan fóru þeir heim til Mukirs og þar var þeim vel veitt. Þeir sváfu vel um nóttina, og bjuggust til íerðar með morgni. En áður en þeir kvöddu, rétti hvor þeirra Mukir lokað nistL Síðan bað hver vel fyrir öðrum og gestirnir heldu áfram för sinni. Þegar þeir voru famir, opnaði Mukir nistin, og var lítill bréfmiði £ hvoru. í nistinu frá Omar stóð: Leit- aðu aldrei læknis! Og í nistinu frá Abdallah stóð: Leitaðu aldrei lög* fræðings! Sonur Mukirs fór eftir þessum ráð- um alla ævi. Hann varð ríkur maður og heilsuhraustur fram í háa ellL

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.