Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1961, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
573
SLYSFARIR OG SKAÐAR
Hlaða og þakplötur fuku af húsum í
Steinahverfinu undir Eyjafjöllum í
ofsaroki (1).
Stór Constellation-radarflugvél lask-
aðist á Keflavíkurflugvelli er útbúnað-
ur lendingarhjóla hennar bilaði (1).
Fullfermdur vörubíll lenti útaf
brúnni á Elliðaánum Bílstjórinn, Guð-
jón Vigfússon, slasaðist og dó litlu
seinna (2.)
Hafnsögubátur sekkur í Reykjavíkur
höfn, er verið var að leggja rússnesku
olíuskipi. Áhöfn bátsins bjargaðist
naumlega (3). „
Vélbáturinn Fram á Akranesi
skemmdist nokkuð, er eldur kom upp í
vélarrúmi bátsins (4).
Barn skaðbrennist af vítisóda (4).
Eldur kom upp í Trésmiðjunni Víði
og urðu þar nokkrar skemmdir (4).
Sex ára drengur, Gunnar Ingólfsson,
Brekkuhvammi 16, Hafnarfirði, varð
fyrir bíl og slasaðist allmikið (5).
Hafnsögubáturinn Nóri náðist upp
lítt skemmdur (5).
Geymsluskemma við hraðfrystihúsið
í Kópavogi eyðileggst nær í eldi. Mikl-
ar skemmdir urðu á fiski og veiðar-
færum (7).
Úngur maður, Gunnar Pálmason,
féll útbyrðis af vélbátnum Vísi frá
Skagaströnd, og náðist aftur eftir nær
hálftíma (8).
12 ára drengur, Ásmundur Karlsson
í Grafarnesi, fékk raflost og féll í rot.
Lífgunartilraunir báru árangur (8).
Tvær stúlkur meiðast nokkuð, er bíl
var ekið á Ijósastaur við Tjömina
(14).
Botnventlar teknir úr togaranum
Guðmundi Júní í Reykjavíkurhöfn og
munaði minnstu að skipið sykki (14.)
16 ára piltur, Ingvar Þórólfsson,
Brekkugötu 33, Akureyri, finnst örend*
ur í skurði (14).
Umferðarslys urðu alls 190 í lögsagn
arumdæmi Reykjavíkur í októbermán-
uði, þar af eitt dauðaslys (14).
Fjós og lítið áfast íbúðarhús skammt
frá Hólmavík brann til kaldra kola.
Skepnum varð bjargað úr fjósinu (16).
Stúlka skarst illa í andliti í bílslysi
á Reykjanesbraut (17).
Eldur hefur tvisvar komið upp á
bænum Skógum i Vopnafirði á þrem-
ur vikum. Lítið tjón varð í bæði skipt-
in (22).
Jón Guðjónsson, bóndi frá Kaldbak
á Ströndum fauk í urð og slasaðist all-
mikið (22).
Bíll valt við Akureyri og gereyði-
lagðist. (22).
Bræðurnir Hjörtur og Sveinn Hjart-
arsynir frá Skagastönd fórust með vél-
bátnum Skíða HU 8 (23., 24. og 25.)