Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1962, Qupperneq 1
6. tbl. — 25. marz 1962
Ævintýrið um
Arabíu-Lawrence
ROBERT BOLT ræðir um Lawrence í ljósi ritverka
hans. Bolt er höfundur handrits að stórmynd um ævi
Lawrence. Bolt segist ekki vera sérfræðingur um
hann: „Allar athuganir mínar eru persónulegar“.
Eg var alinn upp við að hafa van-
íþóknun á mönnum eins og T. E. Law-
rence, því þeir væru veiðihundar og
skraut 'heimsveldisstefnunnar. Foreldrar
mínir dáðust aðeins opinberlega að
xnönnum eins og William Wilberforce,
enska prestinum, sem var foringi barátt-
unnar gegn þrælahaldi, og Friðiþjófi
Nansen. Börn eru fljót að læra svona
nokkuð, og þegar Lawrence var annars-
vegar bjó eitt'hvað enn verra undir,
og ég sá að það var kynferðislegs eðlis.
Og sú spurning, sem nú er oftas-t lögð
fyrir mig er, hv-ort ég álíti, að Lawrence
Ihafi verið kynvilltur. Ég hef enga hug-
xnynd um, hvort hann stundaði kyn-
viilu, en hann hefur áreiðanlega verið
Ikynvilltur að eð-lisfari. Mér virðist hann
ekki gera mikið sjálfur til að dyija það.
egar hann minnist á eittihvað
slíkt í bókum sínum verður frásögn hans
beinlínis ljóðræn. Mér virðist þetta ekki
fekipta svo miklu máli, heldur hitt, að
vita hvernig maðurinn var, djarfur eða
huglaus, kænn eða heimskur, göfugur
eða lítilmótlegur. Lawrence stenzt slika
(koðun vel. En í sál hans virðist hafa
verið einhver sado-masochistískur þátt-
ur, (svo ljót sem þessi orð eru), ein-
hver sérstök ást á þjáningu, hvort held-
ur hún var móttekin eða veitt öðrum.
Lawrence var af kynslóð. sem var af-
Kkaplega hugsjónalega sinnuð. Úr rúst-
iim fyrra stríðsins risu mörg skáld, en
aðeins örfá úr því síðara. Föðurlands-
úst var mikil hugsjón í byrjun fyrra
su íðsins. , .
Lawrence var ekki skáld, heldur
rithöfu-ndur. Hann var al-ltaf iihugull og
einman-a. Hann var óskilgetinn sonur að-
alsmanns, en var alinn upp meðal lægri
miðstéttanna. Hann fór á hjóli í dag-
skóla. Af öllu þessu leit hann frumlegar
á hlutina en aðrir. Tökum til dæmis,
hvað hann segir um takmark Banda-
manna í Mesópótamiu:
„Við fleygðum þeim (brezkum her-
mönnum) þúsundum saman í eld og
enn verri dauðd-aga, ekki til að vinna
styrjöldina, heldur til að ná undir okk-
ur korni, rís og olíu Mesopótamíu.“
Róttækur maður í dag þyrfti ekki að
vera sérstaklega frumlegur til að segja
þetta, en af manni í stöðu Lawrence er
þetta athyglisverður s-kilningur.
Eigi að síður var hann jafnmikið uppi
í skýjunum og aðrir ungir menn af hans
kynslóð, hugsaði sér hlutina fullkomna
og lét hugsjónir stjórna gerðum sínum.
>á, sem honu-m geðjaðist að, mat hann
eins og þeir sjálfir gerðu, eða jafr.vel
meir. Allenby marskálkur verður sem
Sesar, Ronald Storrs, yfirmaður Law-
rence, slægvitur og alsjáandi, Feisal,
síðar konungur í Sýrlandi, göfugur, við-
mótskaldur og fagur.
H ann velur sér hetjur slnar vel.
Þessir menn voru allir merkismenn, en
hann gerir þá fullkomna.
Eð-a -hvernig hann talar um Araba og
sögu þeirra:
í augum hans voru þeir „ . . . gæddir
meiri trúanhita og frjósemi en nokkur
önnur þjóð veraldar. Þeir voru frum-
kvöðlar, hugsjónir voru þeim sterkasta
Chapman
Lawrence
Ross
Shaw
T homas Edward Law-
rence var fœddur 15. ágúst
1888. Hann var annar í röö-
inni af fimm óskilgetnum son-
ur. Sir Thomas R. Chapmans,
írsks baróns, meö fyrrverandi
gæzlukonu dœtra hans fjög-
urra, sem hann haföi skiliö
eftir x írlandi.
Lawrence var oröinn lœs lf
ára og tók til viö latínu 6 ára.
Hann nam viö Jesus College í
Oxford og var afburöa náms-
maöur í sögu, bókmenntum og
fornleifafrϚi.
Hann kom fyrst til nálœgari
Austurlanda, meöan hann var
enn í Oxford, og var í mörg-
um leiðangrum þangaö síöar. Á
þessum feröum lœröi liann aö
tala arabísku.
Hann var ekki tekinn í her-
inn 191lf vegna smœöar. Síöar
var hann þó sendur til Kairó
og þaöan tókst honum aö
œsa Araba til uppreisnar gegn
Tyrkjum. Honum tókst meö
skæruhernaöi aö reka Tyrki af
Arabíuskaga, og táka Damas-
kus, meöan brezki herinn var
aö slátra leifum tyrkneska
hersins.
Eftir stríöiö reyndi hann aö
leynast, sökum vonbrigöa yfir
friöarsamningunum. Hann var
ráögjafi Churchills í málum
Miö-Austurlanda og prófessor í
Oxford, en 1922 kastaöi hann
öllu frá sér og gekk í R.A.F.
undir nafninu J. H. Ross.
Hiö rétta nafn lians spuröist
fljótt og hann fór í skriödreka-
sveitirnar undir nafninu T. E.
Shaw, sem hann tók sér síöar
aö lögum. Hann fór síöan aftur
í flugherinn. Hann hœtti störf-
um í janúar 1935 og dó þrem
r.'ánuöum síöar í síysi á bif-
hjóli.
Eftir dauöa hans uröu miklar
deilur um hann, sem margir helztu
menn Breta tóku þátt í. Segja má,
aö hann hafi oröiö þjóösagnapersóna
í lifanda Itfi.
Hann hefur ritaö tálsvert. Aöál-
verk hans er ,fHinar sjö stoöir vizk-
unnar“, œviminningar. Hann ritaöi
álþýölegri frásögn af afrekum sínum
í Arabíustríöinu, „Uppreisnina í
eyöimörkinni“, sem hefur komiö út
á íslenzku.
aflið, framkvæmdin óendanlegt hugrekki
og breytileiki, takmarkið einskis virði.
Þeir voru eins jafnvægislausir og vatnið,
og mun-u kannski sigra að lokum, eins og
vatnið. Frá upphafi lífsins . . . “ o. s.
frv. endala-ust.
Það er því -auðsætt ,að þrátt fyrir ali-
ar gáfur hans. var hugur hans algerlega
á valdi þrárinnar eftir hinu göfuga, há-
leita og (ekki sízt, eins og ritstíll hans
sýnir) hinu skáldlega.
Og svo vikið sé að umgjörðinni. Lýs-
ingar Lawrence á eyðimörkinni eru ekki
með því bezta, sem hann hefur skrifað.
Ákafinn til að sannfæra er of mikill. Og
satt að segja þyrfti mjög ritsnjalian
mann til að túlka það landslag mað
orðum.
c
Otærð hennar er lygileg. Hnullung-
ar, sem virðast Jiggja við fætur manns,
reynast vera í mílufjarlægð. Rauðgulir
klettar, sem sjást í öllum smáatriðum,
reynast vera hálfs dags ferð í burtu yf-
ir bleikan sandd-al. Sums staðar er eyði-
mörkin svört eins og kol, með hvítum
hnúkum upp úr á stöku stað. Hún gefc-
ur líka verið rauð, g-ul, eða öskugrá.
Frh. á bls. 13
idm.