Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Qupperneq 1
23. tbl. — 30. september 1962 — 37. árg.
ÞÓRHALLUR VILMUNDARSON:
Islendingar, sem fljúga milli
Reykjavíkur og Ný-Jork-
ar, mega hafa gaman af að vita, að
endilanga leiðina, um fjögur þús-
und kílómetra veg, sigla þeir yfir
íslenzkum sögustöðum — raun-
verulegum eða ímynduðum. Og
ekki spillir að hugsa til þess, að
sagan, sem gert hefur staðina fræga
og komið fræðimönnum um allan
heim til að skrifa sæg bóka og rit-
gerða, er orðin meira en þúsund ára
gömul, hálfu eldri en sjálfir þeir
Kólumbus og Cabot.
Hugsum okkur, að við leggjum af
stað frá Reykjavík um óttuskeið og
tökum stefnu á Gæsaflóa á Marklandi.
í dögun fljúgum við framhjá suður-
odda Grænlands. Hrikaleg fjöll gnæfa
upp úr skýjum, en að baki þeim felast
hugfólgnir staðir: Hvarf, Herjólfsnes,
Hvalseyj arfj örður, Garðar, Brattahlíð,
Sólarfjöll — og harmsagan mikla, sem
þeim er tengd, rifjast enn upp. í hug-
ann koma orð Matthíasar:
Kynjamyndir! hér er létt að yrkja:
Hér eru leiði heillar veraldar.
Inn yfir Marklandsströnd fljúgum við
í nánd Hamiltonflóa. Það var finnski
landfræðingurin: Tanner, sem fyrstur
benti á, að sunnan flóans væri að leita
Kjalarness og Furðustranda, hinna sér-
kennilegu kennimerkja, sem sagt er frá
í Eiríks sögu rauða: Broddgaltarhöfði
(Cape Porcupine), sem minnir á skip á
hvolfi, væri Kjalarnes, og sextíu kíló-
metra löng sandströnd norðan og sunn-
/. GREIN
an nessins væri Furðustrandir. Þessi
kenning Tanners hefur síðan orðið einn
helzti lykillinn að fundi rústanna á
norðurodda Nýfundnalands. Innan við
Hamiltonflóa tekur við hið víðáttu-
mikla Melvillevatn. Samkvæmt fyrr-
nefndri staðsetningu Furðustranda og
Kjalarness hefðu þeir Þorfinnur karls-
efni og Þorvaldur Eiríksson, bróðir
Leifs, átt að sigla inn í' Melvillevatn,
þegar þeir fóru að leita Þórhalls veiði-
manns. Og þá kynni að vera, að áin,
sem féll „af landi ofan úr austri og í
vestur“, þar sem Indíáninn („Einfæting-
urinn“) skaut Þorvald öru, væri Eng-
Sænski fornleifafræðingurinn Rolf
Petré og Gisli Gestsson safnvörður
bragða á grænjöxlum í skógi á Ný-
fundnalandi. Mundu þetta geta orð-
ið vínber hinna íslenzku Vínlands-
sagna?
lendingafljót (English River) sunnan
vatnsins.
Við innanvert Melvillevatn, skammt
frá flugstöðinni miklu við Gæsaflóa,
búa Eskimóar og Indíánar enn hlið við
hlið, og er sagt lítið vinfengi milli þjóð-
anna. Það er jafnvel stillt svo til, að
Eskimói og Indíáni liggi ekki í sömu
stofu í sjúkrahúsum landsins. Frá Gæsa-
flóa liggur flugleiðin suður yfir Mark-
land og St. Lárensflóa. Umhverfis all-
an þann flóa hafa staðir verið tilnefnd-
ir sem sögustaðir Vínlandssagnanna.
Danski prófessorinn Steensby kallaði
norðurströnd flóans Furðustrandir, og
var þeirri kenningu lengi fylgt. Hann
hugði, að sjálft St. Lárensfljótið væri
Straumfjörður og Hóps væri að leita
uppi í Montmagny, skammt neðan við
borgina Kvíbekk (Quebec). Úti í miðj-
um St. Lárensflóa er hin mikla Anti-
costieyja, og taldi Halldór Hermanns-
son, að austuroddi hennar væri hið
forna Kjalarnes. Margir hafa hins veg-
ar talið hinn sérkennilega Gaspéskaga
sunnan St. Lárensfljóts vera Kjalarnes,
þar á meðal Matthías Þórðarson. Þegar
suður yfir flóann kemur, tekur við
fylkið Nýja-Brúnsvík, en á norðurströnd
þess hafa ýmsir staðsett Straumfjörð,
svo sem Halldór Hermannsson og
Matthías Þórðarson.
Frá Nýju-Brúnsvík liggur flugleiðin
suður endilangt Nýja-England, norð-
austurhluta Bandaríkjanna. Flestir
fræðimenn, sem um Vínland hafa ritað,
munu hafa staðsett Hóp Þorfinns karls-
efnis og Leifsbúðir á strönd Nýja-Eng-
lands, og ættu þá fjöllin, sem talað er
um í Hópi, að vera nyrzti hluti Appal-
akíafjalla. Við fljúgum yfir strönd Nýja-
Englands skammt norður af Boston.
Fyrir neðan okkur er þá á hægri hönd
frjósamt og þéttbýlt land upp af ljós-
leitri sandströnd, og ekki vantar hér
hópin. Yfir höfninni í heimabæ Kenne-
dys Bandaríkjaforseta reikar hugurinn
aftur til þeirra dr. Valtýs Guðmunds-
sonar og Þorsteins Erlingssonar skálds,
sem kvaddir voru fyrir 66 árum til
Framh. á 8. síðu
Fiskiþorpið Lance-aux-Meadows á
norðurskaga Nýfundnalands. Tíu
mínútna gang þaðan eru hinar fornu
rústir. sem leiðangur Ingstads-
hjónaiu.a kannaði í sumar.