Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Page 3
stjörnur, kórónur, sverð o. fl. Margir voru með yíirskegg, sumir sneru upp á þau. Við strákarnir komumst ekki í ástand- ið fyrr en flugvallagerðin hófst. Þeir völdu stað undir flugvöll lengst inni í fjarðarbotni, og þar spígsporuðu yfir- menn fram og aftur með alls kyns mælitæki, stóðu upp á hólum og kíktu í tækin. Við . strákarnir vorum látnir moka möl á bíla úr grús. Sá, sem var yfir okkur strákunum og hinum körl- unum, var lítill með þrjár stjörnur á öxlunum, önnur kinnin helblá, gekk um með kústskaft og kíki hangandi á annarri öxlinni. Við kölluðum hann Blápung. Einhver fullorðinn sagði okk- ur Blápungur hefði verið vegagerðar- verkstjóri inní svörtustu Afríku og stjórnað þar þúsundum af negrum. Hann var alltaf að ldkja í kíkinn og fylgjast með, að allir væru að vinnu. Við strákarnir vorum auðvitað alls ekki duglegir að moka, en ekki latari en aðrir strákar í öðrum bekk í gagn- fræðaskóla, og þess vegna stóð okkur ekki á sama, þegar Blápungur stóð yfir okkur og damlaði með prikinu í botn- ana á okkur meðan við pústuðum á milli bíla. Hann Jói á Efri Götunni var alltaf kaldastur af okkur strákunum í öðrum bekk. Þessi langi, krangalegi strákur, í laginu eins og mjólkurflaska, lét sér aldrei neitt fyrir brjósti brenna og hafði ótakmarkaða réttlætiskennd og alltaf ráð undir hverju rifi, og Jói sagði: Við verðum að koma helvítinu í skilning um, að við erum engir hotten- tottar. Ekki voru allir á einu máli, hvaða ráð væri tiltækast og árangurs- ríkast og þessvegna tók Jói sjálfur af skarið, og næst þegar Blápungur bjóst til að lumbra á okkur með kústskaft- inu, þreif Jói það af honum, braut það í tvennt á hnjánum á sér og kastaði brotunum framan í hann og sagði hon- um að éta skít. Baginn eftir vorum við allir reknjr úr flugvállarvinnunni. Lengi á eftir stóð í brösum að koma okkur strákun- um aftur í ástandið og loks eftir rúma viku tókst skólastjóránum með harð- fylgni og ýtni að koma okkur að við spítalabyggingu, en þá voru margir komnir í vegavinnu upp í sveit, svo að við vorum aðeins sex, sem nutum náð- arinnar. Tveir héldu út allt sumarið, hinir fóru líka í vegavinnu. Svo kom haustið í plássið eins og önnur haust. Þeir fóru úr skólunum og fluttu í braggana. Við strákarnir vor- um komnir í þriðja bekk, vorum 81d- ungarnir í skólanum, fundum talsvert til okkar. Stelpur, sem höfðu verið með okkur í barnaskóla sáust ganga með þeim, og sumar kerlingar í plássinu buðu þeim heim á kvöldin svo bæði kerlingar og stelpur voru komnar í ástandið. Eins og í öðrum plássum var skáld £ plássinu okkar og af því skáldið var af öllum, sem vit höfðu á, talið meir en venjulegt plássskáld, fannst okkur strákunum sjálfsagt að taka mark á því, Og þegar sá kvittur komst á loft, að skáldið væri á móti þeim, þá hlutum við líka að vera á móti þeim og ekki bætti atburðurinn frá suminu úr skák fyrir þeim né hitt, að þeir höfðu alveg svikið okkur um stríðið. Jói á Efri Göt- unni var meir að segja svo skáldlegur, að hann sagði skáldið ætti að vera and- leg leiðarstjarna okkar í baráttunni við þá. Við strákarnir sátum oft á ráðstefn- um og ræddum hvernig við gætum frekast orðið þeim til miska. Samþykkt var að víkja aldrei fyrir þeim á götu, dansa aldrei við stelpur, sem við sæj- um ganga með þeim og svo það sem var lang áhættusamast og mest spenn- andi að læðast á k'völdin heim að braggahverfunum og hengja upp stór spjöld, þar sem á var ritað á þeirra máli: Farið heim húgleysingjar eða þið þorið ekki í stríð ræflar. Stungið var upp á að klippa sundur símavíra, sem lágu í braggana, en það var fellt, þótti of mikil áhætta. Einu sinni vorum við teknir fastir og urðum að dúsa inni í bragga í meir en tvo tíma og hreppstjórinn kom og hleypti okkur út. Daginn eftir skammaði skóla- stjórinn okkur heil mikið. Á fullveldisdaginn átti að halda ball í Templaranum. Yfirmenn ætluðu að halda ballið og bjóða þangað stelpum og kerlingum. Við strákarnir héldum voða ráðstefnu kvöldið fyrir fullveldisdaginn. Auðvit- að var það Jói á Efri Götunni, sem fyrst fékk hugmyndina um gagnárás- ina: Allir strákarnir áttu að fá sér smá vasabækur, mæta svo við Templarann um kvöldið og skrifa upp nöfnin á stelpunum og kerlingunum, sem færu með yfirmönnunum á ballið. Hann rigndi allan fullveldisdaginn, svo við strákarnir þurftum að híma uppi í brekkunni fyrir ofan Templar- töglunum. Afleiðingin varð sú, eftir mik- Framh. á bls. 11 AÐ var um krossmessuleytið sem þeir komu í plássið. Þeir voru ör- fáir, fyrst aðeins fimmtán eða tuttugu og reistu tjöld úti á bökkunum, gul uppmjó tjöld. í einu þeirra höfðu þeir eidhús, og svo geymdu þeir vist byssur og skot í öðru, og sumir sögðu líka, þeir hefðu fallbyssur. Þeir byrjuðu undir eins að grafa, grófu langa og mjóa skurði, sem hlykkjuðust um alla bakkana, og alla leið niðrí sjálft plássið. Mikið var spjallað um allan þennan gröft, og menn voru ekki á einu máli eftir hverju þeir væru að grafa. Karl- arnir, sem höfðu verið í útlandinu sögðu, þeir væru að grafa skotgrafir, aðrir sögðu þeir væru bara að æfa sig í skurðgreftri, og um þetta var deilt og skrafað í búðarholunum og beituskúr- unum, og það var ekki fyrr en Mangi norski, sem lengi hafði verið í útland- inu og talaði alls konar útlenzkur, kvað upp þann úrskurð, að þeir væru að grafa skotgrafir og von væri á alvöru- stríði í plássið. Við strákarnir vissum óglöggt, hvernig stríð var, höfðum aðeins heyrt mikið talað um það síðasta árið, og ein- hverja óljósá hugmynd höfðum við um það væri eitthvað spennandi, svo við hlökkuðum til að fá stríðíplássið. Gamla fólkið talaði um stríðið í hálfum hljóð- um og bað guð sinn að forða sér frá þeim ófögnuði. Þeim fjölgaði þegar leið á sumarið. Þeir tóku að búa í skólunum, bæði barnaskólanum og gagnfræðaskólanum, líka tóku þeir gula timburhjallinn, sem var kallaður Bremenhúsið, þar höfðu þeir búðarholu og einhvers konar öl- krá. Báðir kennararnir í gagnfræðaskól- anum fengu vinnu hjá þeim, og skóla- stjórinn komst á skrifstofu. Sagt var þeir hefðu ofsahátt kaup, nefnd voru fimm hundruð á mánuði eða jafnvel hærri tala. Enginn vissi, hvað skóla- stjórinn var að skrifa, en það var víst eitthvað gróflega þýðingarmikið, því öllum kom saman um hann væri hætt- ur að brosa og hatturinn var eins og límdur á hausinn á honum, þegar hann mætti okkur strákunum. Fullorðna fólkið í plássinu kallaði þá ástand, og þegar menn fengu vinnu hjá þeim, var það kallað að vera í ástand- inu. Allt var ástand, bæði þeir sjálfir og allt í kring um þá. Fyrsti bragginn var reistur í portinu við hliðina á Bremenhúsinu. Bragginn var nýtt furðuverk í byggingarkúnst- inni, líkastur síldartunnu sundurskor- inni að endilöngu. Braggarnir spruttu upp eins og gorkúlur á haug. Fyrst einn og einn, síðan heilu hverfin. Fyrst var járngrind, bárujárn utan um, tex á veggi, trégólf innan í og bragginn til- búinn. , Þeir voru alls staðar, á báðum götum, uppi á hjöllum, niðrá bryggju og út á bökkum sprangandi um með byssu- hólka og höfuðföt úr blikki í laginu eins og kleinupottar á hvolfi. Fólkið í plássinu þekkti fljótt í sund- ur yfirmenn og undirmenn. Yfirmenn gengu ekki með byssur, voru í staðinn með einhvers konar prik, sem þeir vingsuðu út í loftið eins og montrassar, svo voru þeir með merki á öxlunum, Eftir Björn Sveinsson Bjarman Við ísafjarðardjúp Eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal Undra djúp við íshafs villtu slóð, um þig vil ég kveða lítinn óð. Harpan er gömul, höndin stirð og köld, en hugurinn geymir sögn, og mynda fjöld. Hér hnitar örninn hring við klettarið, horfir yfir voga og fiskimið. Æður og svanir út við hólma kvaka, í ám og vötnum fiskar bjartir vaka. Um yztu látur urt og kópar synda, við augum blasir hópur kynjamynda. Æðey, Vigur, Kaldalón og klettar, Kofri, Hestur, jökulurðir grettar. Gengið hef ég Hljóðabungu um nótt, í Heydal rætt við dverg og álfadrótt. Við innlögn siglt um sævardjúpið kalda, er sólin gyllir ský og öldufalda. — Mikla Djúp ég minnist ávallt þín, á meðan sólin gleður augu mín. 23. tolublað 1962 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.