Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Blaðsíða 7
 t a&fratiitftr kom þó til orða að snúa við, enda fór betur en á horfðist. Var nú haldið í átt til Há- barms.... Á leið okkar var ýmislegt athyglisvert að sjá og þó einkum eftir að við' kom- um á líparítsvæðið. Mátti finna margar og mismunandi steingerðir.... Er við vorum á tindi Hábarms um kl. 4 e. h. fóru að birtast þokúbakkar í norðrinu og huldu þeir útsýn til norðurs og austurs á ör- skömmum tima. Til allrar hamingju vorum við þá komn- ir svo hátt að unnt var að njóta útsýnisins í ríkum mæli. Við sáum vítt til vesturs (Heklu, Hlöðufell, Skjaldbreið) og norðurs (Langjökul, Hofs- jökul, Bláfell). Þá var einnig fagurt útsýni til Vatnajökuls. Frá tindi Hábarms blasti þó við enn sérstæðari sjón yfir líparítsvæðið. Litadýrð þar var slík, að ekki verður lýst fyrir þeim, er ekki hefur sjálfur séð. Á heimleið var gengið stöðugt á meðalhraða og farið var nú eftir Illagili og þaðan niður á veginn, sem liggur frá Land- mannalaugum. Föstud. 3. ágúst Hér urðu þáttaskipti. Eyþór Einarsson hafði farið um nótt- ina, en í hans stað voru komn- ir þeir dr. Björn, Yngvi og Sverrir. Þeir settu okkur nú til starfa. Flokkur A var sett- ur í að reisa girðingu um- hverfis blett nokkurn, en flokkur B hóf klippingu innan hringja nokkurra af miklum krafti. Hringir þessir eru % ferm að stærð og eru notaðir til þess að mæla gróðurmagn á afréttum, svo að hægt sé að mæla beitarþol þeirra. Mæl- ingarnar eru gerðar í sam- bandi við gróðurkortagerð At- vinnudeilar Háskóla íslands á hálendinu. Flokkur C fór með Sverri í jarðfræðileiðangur. Um kl. 7 e. h. var „dinner- inn“ snæddur. Var það ágæt ýsa, sem vísindamennirnir höfðu komið með. Var það góð tilbreyting frá duftinu, sem við erum alltaf með. Laugard. 4. ágúst Laugardagur til lukku. Hin- ir gömlu og reyndu sögðu, að morgunstund gæfi gull í mund. Fyrst í dag reyndum við að Framh. á bls. 13 Miðvikud. í. ágúst Við vorum vaktir með lúðra- Brezku piltarnir settu þetta skilti upp á staðnum FJÚLLUM blæstri og var þar Þjóðverjinn að verki.... Að loknum morg- unverði var flokkunum falið hverjum fyrir sig að safna sem flestum plöntum, en áður hafði Eyþór sýnt okkur helztu mýrarplöntur. Allt til kl. 4 e. h. mátti sjá leiðangursmenn snuðrandi um móa og börð, krafsandi í jarðveginn og reytandi plöntur, svo að til landauðnar horfði. Kl. 4 e. h. var safnast saman uppi í kofa og plönturnar greindar og taldar. f ljós kom, að fjöldi mismunandi tegunda, sem fundizt höfðu var 76. Meðan við vorum í grasaferð þessari reyttum við auk þess dálítið af fjallagrösum og er meining- Nýstárlegt ferðalag og skemmtilegt trompet. Skömmu fyrir hádegi var liðinu skipt í þrjá hópa. Hver hópur fékk til umráða tvö tjöld og skyldi hver hópur sjá um sína eldamennsku. — Úr dagbók enska piltsins: Að loknum morgunverði fórum við allir með Eyþóri Einars- syni, grasafræðingi, norður að Grænalóni, sem er nokkuð stórt vatn. Á leiðinni kynnti Eyþór fyrir okkur helztu plöntutegundirnar...... Um kvöldið fóru fram ýmsar í- þróttir, m. a. landsleikur í knattspyrnu og unnu íslend- ingar 6:3. Ennfremur var keppt í langstökki og sigraði þar aftur einn íslenzki piltur- inn og stökk vel yfir 6 m, sem er mjög gott miðað við að- stæður. Hinar björtu nætur eru mjög villandi, því að erf- itt er að átta sig á háttatíman- um, enda var komið fram yfir miðnætti, er við ioks fórum í pokana. in að reyna að sjóða úr þeim fjallagrasate. Fimmtud. 2. ágúst Veður var gott í morgun nær logn og létt yfir. ... Kl. 10,15 f. h. var tilkynnt, að lagt skyldi í fjallgöngu.... Gengið var sem leið liggur að Hall- dórsfelli. Áin var vaðin, þar sem fyrst að henni var komið, en á meðan dimmdi mjög snögglega í lofti og gerði helli- skúr ásamt dálitlu hagli. Ekki Þetta hlýtur að vera eitthvað forvitnilegt A Isumar var farin mjög skemmtileg og um margt óvenjuleg ferð inn á hálendi íslands. Hópur íslenzkra og brezkra pilta fóru ásamt fararstjór- um sínum inn í Jökuldæli og var markmið leiðangurs- ins að kynna þessum æsku- mönnum náttúrufræðileg vísindastörf og ennfremur að auka kynni piltanna frá þessum tveim löndum. — Leigangurinn var skipu- lagður af Æskulýðsráði Reykjavíkur og félagi í Bretlandi, sem heitir Brat- hay Exploration Group og hefur það markmið, að efna til slíkra ferða og rannsókna meðal unglinga bæði heima og erlendis. T ísindamennirnir dr. Björn Sigurbjörnsson, Eyþór Einars- son, Ingvi Þorsteinsson, dr. Sigurður Þórarinsson og Sverr- ir Scheving Thorsteinsson stjórnuðu verkinu, en farar- stjóri af íslands hálfu var Guttormur Sigurbjarnarson, kennari. Lesbókin hefur fengið leyfi til þess að birta kafla úr dag- bók leiðangursins og nokkrar myndir úr ferðalaginu og er það von okkar, að ýmsum muni þykja það skemmtilegt að kynnast nánar þessu ferða- lagi, því að hér er um nokkra nýbreytni að ræða og enn- fremur er það von þeirra, sem að þessu stóðu, að framhald geti orðið á slíku starfi, því að margir unglingar hafa áhuga á hagnýtum náttúrufræðum og nú er einmitt mikil þörf á fólki, sem kann skil á slíkum hlutum. Hér koma svo nokkr- ir þættir úr dagbókinni, en hún var rituð af piltunum sjálfum dag hvem, þannig að bæði enskur og íslenzkur piltur rit- aði um hvern dag. Mánud. 30. júlí Lagt af stað kl. 10 f. h. frá Lindargötu 50 með Gísla Eiríks syni, bílstjóra. Ekið var sem leið liggur austur fyrir fjall og ekki numið staðar fyrr en á Selfossi.... Er ekið var í Eld- gjá fengum við kvöldmat. Eitt stykki af súkkulaði og tvö stykki af hrökkbrauði, sem gengur undir nafninu „beina- kex“. íslenzkum líkaði súkku- laðið prýðisvel, enda óvanir slíkum kvöldmat, en töldu hrökkbrauðið vart mat. Brezk- um þótti hvort tveggja prýði- legt, enda sjálfsagt vanir slíku „mataræði". í Jökuldali var komið kl. 3,30. Ekið var heim að skál- anum og ruku þá ýmsir að honum með ópum og látum, enda hugðu þeir hann mann- lausan. Þó knúðu menn dyra. Heyrðu menn þá umgang inni fyrir og kom svo maður til dyra. Var hann að sögn ná- fölur af ótta og bjóst við draugum, sem spilltu nætur- friði hans. Kom í Ijós, að hér var Þjóðverji á ferð. Þegar átti að fara að tala við mann- garminn, kom í Ijós, að ensk- an var farin að segja til sín hjá íslendingum, því að einn sagði: „Bist du hier alone“? Að lokum tókst að tjalda og var þá kvöldverður fram bor- inn. Enski pilturinn ritaði m. a. um þennan dag: Við fórum um í fyrstu mjög eyðilegt lands- svæði. Fjöllin risu næstum beint frá jörðu og teigðu sig tignarlega upp í fagurbláan ís- lenzkan himininn.... Þriðjud. 31. júlí Við vorum vaktir um niu- leytið. Snæddum við þá morg- unverð, sem var hafragrautur, flesk og hrökkbrauð. Hafra- grauturinn var afbragðsgóður að öðru leyti en því, að saltið gleymdist heima og mjólkin var úr dufti. Nú kynntumst við Þjóðverjanum betur. Hann býður af sér fremur góðan þokka. Virðist hann vera ferðagarpur og náttúruskoð- ari. Hann hefur myndavélina mjög á lofti og leikur á 23. tölublað 1962 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.