Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1962, Side 8
- / SLÓÐ Framh. af 1. síðu Boston til þess að kanna, hvort þar væru fundnar norrænar rústir. Var það bandarísk kona, ungfrú Horsford að nafni, sem forgöngu hafði um þær rannsóknir, og varð úrskurður þeirra félaga ungfrúnni til lítillar ánægju. Til vinstri handar sér nú móta fyrir Þorsk- höfða (Cape Cod), þar sem hið fræga landnemaskip Breta, Mayflower, kom að landi árið 1620. Þorskhöfði hefur einnig komið mikið við sögu Vínlands- rannsóknanna, þar hafa menn jafnvel þótzt finna „lendingarstað" víkingaskip- anna með ummerkjum. Eftir stutta stund er flogið yfir Langeyjarsund (Long Island Sound), sem Gathorne- Hardy hugði Straumfjörð, og inn yfir milljónaborgina við mynni Hudson- fljóts, Hóp Gathorne-Hardys. Ef við fljúgum nú aftur frá Ný-Jork til Ganderflugvallar á Nýfundnalandi, er m.a. farið yfir Nýja-Skotland (Nova Scotia), en einnig það land hefur verið tilnefnt sem Vínland fornsagnanna. Hinn kunni norski fræðimaður Gustav Storm taldi alla helztu staði Vínlands- sagnanna vera að finna á ströndum Nýja-Skotlands. Og loks er þá komið að Nýfundnalandi, sem helzt hefur ver- ið á dagskrá Vínlandsfræða undanfarin misseri, eftir að þau hjónin Anna Stína og Helgi Ingstad fundu á norðurodda landsins rústir, sem líkur þóttu benda til, að væru frá tímum hinna fornu Vínlandsfara og norrænar að uppruna. Tengsl samtíðar og sögu Þessa flugleið, sem hér hefur verið lítillega lýst, flugum við dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður, Gísli Gestsson safnvörður, sænski fornleifafræðingur- inn Rolf Petré og höfundur þessarar greinar, sem réðumst til Vínlandsferðar 12. júlí sl. til þátttöku í rannsóknarleið- angri Ingstadshjónanna á norðurodda Nýfundnalands. Ég hafði gaman af að spjalla við flug- mennina á leiðinni til Ný-Jorkar. Flest- ir mundu ætla, að íslenzkir fiugmenn væru dæmigerðir nútímamenn í þeim skilningi, að í huga þeirra kæmist ekk- ert að nema tækni og nýjungar, en ég hef hvað eftir annað orðið var við, að margir þeirra hafa vakandi áhuga á sögulegum og þjóðlegum fræðum. Ég sýndi flugmönnunum uppdrætti, sem ég hafði gert af ferðum Vínlandsfara, en þeir færðu gömlu örnefnin inn á sín kort. Ef til vill eiga þeir eftir að út- breiða fróðleikinn eins og íslenzku flugmennirnir á Grænlandi, en örn Ei- ríksson sagði mér í sumar vestur í Ei- ríksfirði, að hann væri búinn að kenna Dönum þar að nefna Narssarssuaq Stokkanes. Annað glöggt dæmi um söguáhuga íslenzkra flugmanna er, að einn þeirra, sem flugvél okkar stýrðu, Skúli Steinþórsson, er skráður nemandi í norrænudeild Háskólans og sótti m. a. rannsóknaræfingar á síðast- liðnum vetri um vandamálið Vínland- Vinland. Þannig má nú á dögum finna skemmtileg dæmi um, að enn lifir í fræðakolum fslendinga á tækniöld. Og í dæminu um Loftleiðamenn og Vínlandsfarana takast samtíð og saga í hendur á eftirminnilegan hátt. Loft- leiðamenn mega heita íslenzkir arftak- ar Vínlandsfaranna fornu, þar sem þeir halda uppi flugferðum norðvesturleið- ina yfir Atlantshaf, sömu leiðina sem Vínlandsfararnir sigldu. Því mega þeir sannarlega vera — og eru — minnugir þessara landsmanna sinna, sem brutust fyrstir manna yfir hið opna og veðra- sama úthaf milli gamla og nýja heims- ins. Og þeir hafa betra tækifæri en flestir aðrir til að halda á loft minningu Vínlandsfaranna og gætu sjálfir jafnvel sótt nokkurn styrk til vitundarinnar um framtak forfeðranna. Það hlýtur að vera kynleg tilfinning, sem grípur ís- lenzkan Loftleiðamann, er hann lítur úr stjórnklefa flugvélar sinnar, búnum hvers kyns mælitækjum, niður yfir hvítfextar öldur Atlantshafs, verður hugsað til landsmanna sinna, sem sigldu í bátskeljum sömu leið fyrir þúsund árum, jafnvel með konur, börn og bú- pening, og minnist afreka þeirra Bjarna Herjólfssonar frá Drepstokki í Flóa, sem fyrstur hvítra manna mun hafa augum litið hinn nýja heim, Leifs Eiríkssonar frá Eiríksstöðum í Haukadal, sem fyrstur Evrópumanna er talinn hafa stigið þar fæti á land, Þorfinns karlsefnis frá Höfða á Höfðaströnd, sem tilraun gerði til landnáms í hinum nýja heimi, konu hans, Guðríðar Þorbjarnardóttur frá Laugarbrekku á Snæfellsnesi, sem sögð er hafa farið allt frá Vínlandi í vestri til Rómaborgar í austrd og mun því mega telja víðförlustu konu heims á miðöldum, og Snorra Þorfinnssonar, sonar þeirra, fyrsta hvíta barnsins, sem fæddist í hinum nýja heimi. Tékkarnir frá honum Jóa 1 Eiríks sögu rauða segir, að þeir Þorfinnur karlsefni og félagar hans hafi á ferð sinni norðan frá íslandi og Græn- landi komizt lengst suður til Hóps á Vínlandi. „Þar voru þeir hálfan mánuð og skemmtuðu sér“, segir í sögunni. Við fslendingarnir þrír og Rolf Petré höfðum þann háttinn á að taka þegar í upphafi ferðar út skemmtunina, þar sem við „skemmtuðum" okkur í tvo daga í Ný- Jork við að skoða söfn og önnur stór- merki heimsborgarinnar. í Gander, hinni miklu flughöfn Ný- fundnalands, vorum við einnigítvo daga. Hér vaknaði á ný gamall áhugi á högum þessa lands, sem við vorum komnir til. Sá áhugi hafði upphaflega kviknað við lestur greina Steingríms læknis Matt- híassonar í Eimreiðinni fyrir allmörg- um árum. Samanburður íslands og Ný- fundnalands hlýtur af mörgum ástæð- um að vera forvitnilegur. Löndin eru álíka stór, og bæði eru þau strjálbýl og hörð. Fiskveiðar eru einn höfuðatvinnu- vegur beggja þjóðanna. Þó er sá mun- ur á, að á Nýfundnalandi eru aðeins um 10% þjóðarteknanna runnin frá fisk- veiðum, þótt fleiri stundi þá atvinnu- grein en nokkra aðra. Nýfundnaland er að vísu miklu verr fallið til kvikfjár- ræktar og annars landbúskapar en fs- land, enda eru þær atvinnugreinar nauðalítið stundaðar. en þar á móti kemur hin mikla auðlegð skóga lands- ins. Höfuðtekjur sinar hefur þjóðin af skógarhöggi og námagrefti, og er í síð- ari grein einkum mikilvægt, að Ný- fundnaland ræður yfir hinu málmauð- uga T.abrador og hefur miklar tekíur af námavinnslu þar. íbúatala Nýfundna- lands hefur vaxið ört undanfarin ár og er nú tekin að nálgast hálfa milljón. Eru flestir íbúanna af brezkum ættum. Það, sem lærdómsríkast er í saman- burði Nýfundnalands og fslands, er sú þróun, sem varð í löndunum á kreppu- árunum upp úr 1930. Á þeim árum fór Nýfundnaland, sem orðið hafði sjálf- stjórnarnýlenda árið 1855, á höfuðið og sagði sig til sveitar, fór á brezku krún- úna, ef svo mætti að orði komast. Var landið svipt sjálfsforræði og yfir það sett brezk stjórnarnefnd árið 1934. Á sama tíma áttu íslendingar ekki við minni örðugleika að etja en Nýfundna- land, en hertu sultarólina og þraukuðu af. Ef leitað er skýringa á hinum ólíku örlögum landanna á þessum þrenginga- tímum, segir mér svo hugur um, að þungt vegi á metunum, að íslendingar höfðu nýfengið sjálfstæði að verja, meiri þjóðarmetnað vegna sérstakrar tungu og þjóðmenningar og loks enga krúnu, sem þeir þóttust þá geta verið þekktir fyrir að segja sig til. Hérna sýnist mér væri athyglisvert rannsókn- arefni fyrir þjóðasálfræðinga, ef sér- fræðingar væru á annað borð til í þeirri vanræktu fræðigrein. Á Ganderflugvelli var veðurtepptur samtímis okkur brezkur verkfræðingur, og hafði hann dvalizt árum saman á Ný- fundnalandi. Þegar hann heyrði erindi okkar, vildi hann allt fyrir okkur gera eins og yfirleitt þeir menn, sem við höfðum skipti við á Nýfundnalandi. Hann ók með mér um Ganderbæ, ljóm- andi vel skipulagðan smábæ, sem risið hefur upp við hinn mikla flugvöll, og sýndi mér hina glæsilegu flugstöð og veðurathugunarstöð. Hann sagði mér margt um hagi landsmanna og stjórn- málaástandið í landinu. Brezka auðfélagið Bowater ræður yf- ir nær öllum skógum Nýfundnalands og rekur þar stærstu pappírsmyllur heims. Er það sagt greiða mjög lág gjöld til landsmanna samkvæmt gömlum samningi. Hins vegar er það greinilega óspart á að auglýsa starfsemi sína í blöðum landsins, því að þar blasa hvar- vetna við heilsíðuauglýsingar frá félag- inu, þar sem upp er talið, hve mikil vinnulaun það hafi greitt á undanförn- um árum og áratugum. Ekki verður lengi rætt við menn á Nýfundnalandi, áður en tal þeirra tekur að snúast um hinn mikla gróða Bowaterfélagsins og óhæfilega lág gjöld þess til landsmanna. Langvoldugasti stjórnmálamaður landsins heitir Joseph Smallwood og er foringi Frjálslynda flokksins og for- sætisráðherra landsins. Hann er lítill naggur og tölugur og má heita alráður í landinu, því að andstöðuflokkar hans ráða aðeins yfir fimm þingsætum af 36 í fylkisþinginu (1959). Veldi sitt á hann einkum því að þakka, að hann beitti sér mjög fyrir því, að Nýfundnaland gerð- ist fylki í Kanada árið 1948 og er nú mjög harður í kröfum sínum við stjórn Kanada í Ottawa. Þess vegna nýtur landið nú margvíslegra hlunninda frá stjórninni, og munar þar hvað mest um atvinnuleysisstyrkina, en mikinn hluta ársins er geigvænlegt atvinnuleysi með- al landsmanna, einkum fiskimannanna. Ganga styrkjaávísanirnar frá Ott- awa undir nafninu „tékkarnir frá hon- um Jóa“ (Joey’s checks), og vei þeim, sem vogar sér að hallmæla honum við viðtakendur. Norður á odda Frá Ganderflugvelli flugum við í tíu manna sjóflugvél Grenfells-stofnunar- innar (Grenfell Mission) í boði dr. Thomasar, yfirlæknis sjúkrahússins í St. Anthony. Líknarstarf Grenfellsmanna meðal fátækra fiskimanna á strönd Labradors og norðurskaga Nýfundna- lands er löngu heimsþekkt, og sækjast læknar og hjúkrunarkonur víðs vegar að úr heiminum eftir að vinna fyrir stofn- unina sem sjálfboðaliðar. Upphafsmað- ur þessa starfs var dr. Wilfred Grenfell, sem kom til Labradors og Nýfundna- lands skömmu fyrir síðustu aldamót og rann svo mjög til rifja örbirgð og bágt heilsufar landsmanna, að hann varði ævi sinni til þess að koma upp sjúkra- húsum og sjúkrastöðvum í þessum lönd- um. Miðstöð stofnunarinnar er í St. A.’ithony, helzta bænum á austanverðum norðurskaga Nýfundnalands, og veitir dr. Thomas henni forstöðu. Hann er fremur ungur maður, sagður sérfræð- ingur í fleiri en einni grein læknisfræð- innar og á allra kosta völ í milljóna- borgum, en kýs að vmna hér líknarstarf á hala veraldar. Okkar var sagt, að hann væri hálfguð meðal innfæddra manna. Flugvélin tók stefnu á Lewisporte á norðurströnd landsins. Hvergi örlaði á ræktuðu landi, á stöku stað sá ég smá- stíga í skóginum, ssm kynnu að vera frá tíð frumbyggjanna, Beóþúkkanna, hinna eiginlegu „rauðskinna“, sem svo voru nefndir, af því að þeir máluðu sig í fram an rauðum lit. Þeim var útrýmt ger- samlega, og er talið, að síðasti Beó- þúkkinn, kona að nafni Shanadithi, hafi horfið til feðra sinna árið 1829. Við flugum nú norðvestur yfir Notre- Dame-flóann og sáum þar þegar myndar- lega borgarísjaka. Flugvélin stefndi á Cat Arm vestan við Hvítaflóa (White Bay), skammt norðan við Sop’s Arm. Þann stað nefndi danski sjóliðsforing- inn Hovgaard til sem hugsanlegt Hóp Þorfinns, og hefði verið fróðlegt að skoða staðinn, þar sem nann er af ýmsum á- stæðum forvitnilegur. Flugvélin lendir fyrir utan Cat Arm við hlið fallegs vél- báts, og þar fara þeir dr. Thomas og fylgdarlið hans um borð í bátinn, því að ætlun þeirra er að sigla á honum til St. Anthony. Við höldum áfram ferðinni meðfram austurströnd hins mikla norð- urskaga, sem Norðmaðurinn Löberg taldi nýlega vera Furðustrandir. Er skemmst af að segja, að þetta er samfelld kletta- og hamraströnd, viðast skógi vaxin. At- hygli okkar vakti, að víða voru fannir skammt frá sjó, og er ströndin þó frem- ur lág. Við stöldruðum við í þremur smábæjum á austurströndinni, Roddick- ton, Englee og Conche, og sóttum þangað þrjár litlar stúlkur, sem flytja skyldi i sjúkrahúsið í St. Anthony. Þar lentum við á lítilli tjörn norðan við bæ- inn eftir allglæfralega lendingu, og var þá aðeins eftir síðasti áfanginn norður til Nollsvíkur (Noddy Bay), skammt fyr- ir austan Lance-aux Meadows. Ég skoðaði með nokkurri eftirvænt- ingu landið, sem blasti við fyrir neðan. okkur þennan síðasta spöl og kalla mætti uppland fundarstaðarins í Lance-aux- Meadows. Það reyndist vera geysivíð- lend skóglaus „Arnarvatnsheiði", og bar meira á vötnum en þurrlendi. Leizt mér vatnaland þetta mundu vera illfært yfir- ferðar. Dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður og greinarhöfundur komnir til Lance- aux-Meadows — og börn úr þorpinu. R LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. tölublað 1962

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.