Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1962, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1962, Blaðsíða 9
Deftifa*s var T skipalesf á leið milli Irlands og Skotlands — Það var í morgunsárið, að þýzku kafbátarnir réðust til atlögu r r • ■ -aip •wrowxw? 4é *bl - M í«W»í' Wt$ I>e(tifossi sökt 15 maims saknað — 3ð er bjargað 99 S&knaö er þriggja kvenaa 09 æ s BSBBMggMgseMMBgaa .... Dettifoss í Hamborg. OG NÁÐILOKS FLEKANUM HVAR ERU ÞEIRNUl IMorgunblaðinu 24. febrú- ar 1945 getur að líta eftir- farandi frétt í sorgarramma á for- sidu: „ÞAU HÖRMULEGU TÍÐINDI HAFA BORIZT, AÐ DETTIFOSS HAFI FARIZT í HAFI FYRIR SKÖMMU, ER SKIPIÐ YAR A LEIÐ HINGAÐ TIL LANDS. EKKI ER ENN KUNNUGT, MEÐ HVAÐA HÆTTI SKIPIÐ FÓRST, NEMA AÐ ÞAÐ MUN HAFA VERIÐ AF HERNAÐ ARV ÖLDUM. — MEÐ SKIPINU VORU 45 MANNS, 14 FARÞEGAR OG 31 SKIPSMAÐUR. VITAÐ ER UM 30 MANNS, SEM B J ORGUÐUST OG ERU ÞEIR ALLIR KOMNIR í LAND í SKOZKRI HÖFN OG LÍÐUR SÆMILEGA AÐ ÞVÍ ER SEGIR 1 SKEYTI FRÁ SENDIHERRA ÍS- LANDS Í LONDON. 15 MANNS VANTAR OG ER EKKI VITAÐ UM AFDRIF ÞESS FÓLKS. — MEÐAL ÞEIRRA SEM SAKNAÐ ER, VORU ÞRÍR FARÞEGAR, ALLT KONUR, OG 12 SKIPS- MENN. FREGNIN UM AÐ DETTIFOSS HAFI FARIZT MUN HAFA BOR- IZT HINGAÐ TIL HERNAÐAR- YFIRVALDANNA Á MIÐVIKU- DAGINN, EN ÞÁ VAR ALLT í SLIKRI ÖVISSU UM AFDRIF FARÞEGA OG SKIPSHAFNAR, AÐ EKKI VAR HÆGT AÐ TIL- KYNNA NEITT UM SLYSIÐ. RIKISSTJ ÓRNIN FÓL SENDI- HERRA OKKAR í LONDON AÐ LEITA SÉR UPPLÝSINGA UM BJÖRGUN FÖLKS OG í GÆR- KVÖLDI BARST SKEYTI FRÁ SENDIHERRANUM, ÞAR SEM GETIÐ ER ÞESS, SEM AÐ FRAM- AN GREINIR“. Dettifoss var yngsta skip Eim- skipafélags íslands á þessum tima og annað farþegaskipið, sem félagið átti þá eftir af flota sínum. Gullfoss gamli var í Kaupmannahöfn, er innrás Þjóð- verja var gerð þar, en Goðafossi var sökkt í Faxaflóa af þýzkum kafbáti í nóvemiber 1944. Með Goðafossi fórust 24 manns, aðeins rúmum þremur mán- uðum áður en Dettifoss var söflckt út af Sflootlandi, að mongni 21. febrúar 1945. Má því segja, að skammt hafi verið stónhögga á milli, sem reidd voru að flota Eimiskipafélags íslands Þjóðin skeltingu lostin I forystugrein í Morgunblaðinu daginn sem slysaíréttin birtist, segir m.a.: „íslenzika þjóðin er skelfingu lostin yfir þessum tiðindum Hið mi'kla afhroð sem þjóðin hefur beðið á skipastóli sín- um af völdum styrjaldarinnar og hin mörgu mannslíf, sem glatazt hafa, er orðið svo geigvænlegt, að jafnvel sjálf- ar styrjaldarþjóðirnar komast þar ekki í samjöfnuð þegar miðað er við fólks- fjölda. Fyrir stríð átti Eimskipafélagið 6. skip. Af þeim hefur félagið nú misst 3. skip af völdum stríðsins: Gullfoss, Goða- Bogi Þorsteinss' foss og nú síðast Dettifoss. Tvö hin síðastnefndu voru meðal beztu skipa félagsins. Geta má þess, að þegar stríð- ið brauzt út átti Eimskip í smíðum vandað farþegaskip en missti það. Eimskipafélagið á nú aðeins fjögur skip eftir: Brúarfoss, Lagarfoss, Selfoss og Fjallfoss, sem félagið keypti haust- ið 1941. Tvö þessara skipa, Lagarfoss, og Selfoss, eru orðin svo gömul og úr sér gengin, að þau koma að litlu gagni. Með missi Dettifoss er horfið eina farþegaskip Eimskipafélagsins, sem var í Ameríkusiglingum. Stöðvast þar með flutningar fólks sjóleiðina milli íslands og Ameriku. Þarf ekki að lýsa vandræð- um þeim, sem af þessu hljótast, þar sem aðrar leiðir mega einnig teljast lok- aðar fyrir almenning. íslenzka þjóðin fær aldrei bætt hin mörgu mannslíf, sem glatazt hafa með missi skipanna. En skipatjónið verður hún að fá bætt. Það verður mikið átak En það verk verður að vinna og það hið skjótasta.“ I skipalest E inn þeirra manna, sem með Detti- fossi voru, og komst naumiega lífs af, er skipinu var sökkt, var Bogi Þorst- einsson, þá ioftskeytamaður, nú yfir- fiugumferðarstjóri á Keflavíkurfiugvelli Tíðindamaður Lesbókarinnar hitti Boga fyrir nokkru og rifjaði hann uþp það, sem gerðist þennan öriagaríka vetrar- morgun, úti fyrir Skotiandsströndum — Við vorum í skipalest frá New York til Belfast á Iriandi, sagöi Bogi. — Þetta var stór skipalest og í henni iíklega 80- 100 skip. Við íórum fyrir sunnan ír- land og síðan á milli írlands og Enig- landfí til Belfast. Þar stoppuðum við í sólarhring og tókum kol. Frá Belfast áttum við síðan að fara í smærri skipa- iest til Loch Ewe í Skotlandi en venja var að safna þar saman í lest skipum, sem fara áttu til íslands. — Við lögðum af stað frá Belfast um kiukkan fjögur um nóttina 21. febrúar 1945 í ágætu veðri Ég átti vakt í loft- skeytaklefanum frá klukkan 4 til kl. 8:30 um morguninn, en á stríðsárunum var haldinn hlustunarvörður allan sól- arhringinn og voru loftskeytamenn tveir Ég var annar loftskeytamaður í þessari ferð en fyrsti loftskeytamaður var Valdi mar Einarsson, nú fulltrúi ritsímastjóra. — Það var rólegt á vaktinni hjá mér um nóttina en skömmu eftir klukkan átta um morguninn kallaði 1. stýrimaður á mig út á brúarvæng til þess að skiptast á ljósmorsi við fylgdarskipið, vopnaðan togara. Þarna kemur það — Þegar ég hafði lokið ljósmorsinu var skammit þar til vaktaskipti áttu að fara fram svo að ég dokaði við og spjall- aði við Davíð Gíslason, 1. stýrimann. itétt áður en klukkan varð hálf níu leit ég niður á dekkið. Sá ég að Valdimar, sem átti að leysa mig af, var að koma út úr dyrunum á matsal yfirmanna. Rétt í sömu andrá heyrði ég að Davíð sagði: „Þarna kemur það!“ „Er það tundur- skeyti?“, spurði ég. — Um leið kvað við mikil sprertg- ing Mér fannst dekkið koma næstum upp í andlitið á mér, kastaðist á fjóra fætur hruflaði mig á hnjánum og missti húfuna. Ég reis strax á fætur og varð þegar ljóst að skipið hafði orðið fyrir annað hvort tundurdufli eða tundur- skeyti. Ég sá að toppurinn á frammastr- inu hafði brotnað svo að loftnetið lá niðri og kom því ekki til greina að nota loft- skeytastöðina, enda slíkt hvort sem var stranglega bannað þótt skip sykkju á stríðsárunum, ef þau voru í skipalest. Framhald á bis. 11. 28. tölublað 1962 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.