Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1963, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1963, Qupperneq 4
I SOLSKINI OG HITA UM JOLALEYTID Ómar og fjölskylda hans búa i einbýlishúsi skammt utan við Lagos í Nigeríu Hér er hann með börnin fyrir utan húsið. ÍSLENZK HEIMELl V ▼ IÐ búum hér í Nigeríu vegna þess að ég hefi hér betri laun en víða annars staðar, fæ út- borgaða væna upphæð úr lífeyris- sjóði ef ég hætti eftir að hafa ver- ið hér í a.m.k. 5 ár og okkur var strax lagt til gott hús, búið nauð- synlegum húsbúnaði og veitt lán til bílakaupa. Þessu svaraði Ómar Tómasson, flugmaður, er ég var stödd á heimili hans suður í Lagos fyrir skömmu og spurði hvers vegna hann kysi að búa þar með fjölskyldu sína. En hann bætti því við að þau hjónin litu á þetta sem bráðabirgðaráðstöfun, þau ætluðu sér ekki að setjast þarna alveg að. Það er vissulega ekki lítils virði fyr- ir ung hjón, sem eru að byrja búskap með tvær hendur tómar að fá slíkt bráðabirgðaheimili. Þetta er lágt ein- býlishús í ágætu hverfi úti við flug- völlinn, þar eð Ómar starfar hjá Flug- félagi Nigeríu. Fyrir utan stofur eru í húsinu tvö stór svefnherbergi, búnings- herbergi, bað og eldhús og í bakgarð- inum hús fyrir þjónustufólk. Hring- stígur liggur upp að dyrunum og trén í vel snyrtum garðinum skyggja á næstu hús. Vilja gjarnan búa á íslandi. Þennan dag ærsluðust tvær ljóshærð- ar hnátur, Ólína á fjórða ári og Julie á þriðja, í garðinum. Þær höfðu farið úr fötunum og sprautuðu hvor yfir aðra köldu vatni úr garðslöngunni í sólinni og hitanum. Allir gluggar á húsinu stóðu opnir og viftur snerust til að fá andvara um húsið. Inn um opna vængjahurð sást inn í stóra stofu, að- greinda í borðstofu og setustofu með bókahillu. Þar sat Patricia, kona Ómars, og Kristján litli, stór og pattaralegur 10 mánaða snáði, lék sér á gólfinu. Um leið og ég kom inn, færði þjónn- inn mér kaldan drykk í glasi, en i þess- um heitu löndum, er alltaf fyrsta spurn- ing húsráðenda: — Hvað má bjóða þér að drekka? ★ Ómar átti ekkert að fljúga þennan dag og var um það bil að fara í klúbb- inn sinn til að spila billiard við félag- ana og síðan tennis á leikvellinum. Um helgar fer hann líka oft á sjó á lystibát með kunningja sínum, til að veiða á stöng, stórfisk að nafni barrakúta. Fyrst eftir að hann kom til Nigeríu fyrir 5 árum, var hann í borginni Kanó norður í landi og fór þá oft á veiðar til að skjóta villisvín og ýmiss konar fugla. En þar er aðalsportið að fara á hestbak og leika póló. — Þar eru ákaflega skemmtilegir hestar, enda eyðimerkur- mennirnir frægir hestamenn, segir Ómar. Þetta eru allt stóðhestar og ákaf- lega fjörugir. Um leið og Ómar fór út úr dyrun- um, spurði ég hann hvenær hann kæmi heim til íslands. — Við komum heim í frí í apríl, Og ég vonast til að flytja heim við tækifæri. — Hvað segir þú um að flytja til íslands, Patricia? — Ég vil búa á íslandi, svarar hún um hæl. Og ég segi það ekki út í blá- inn, því ég hefi verið þar. T.d. dvaldist ég þar í 9 mánuði einu sinni, átti Julie þar. Og við förum þangað alltáf í frí- um. Þá er Ómar dálítið upptekinn við að hitta vini og kunningja, en ég er viss um að ef við værum setzt þar að, þá mundi ég líka komast inn í kunningja- hópinn. í fyrstu átti ég dálítið erfitt með að fella mig við íslendinga, þar sem ég er ensk og dálítið þröngsýn. Mér fannst fólk drekka of mikið og eins fannst mér hræðilegt að fólk skyldi alveg hiklaust búa saman ógift. En nú er ég orðin dús við þetta allt saman, og vil helzt búa á íslandi. ★ Fjölskylda Ómars Tómassonar er reglulegir alheimsborgarar. Sjálfur er hann alinn upp í Kleppsholtinu, í hús- inu Tómasarhaga við Laugarásveg, Patricia er ensk að þjóðerni, Ólína fædd í Kanó í Nigeríu, Julie á íslandi og Kristján í Englandi. Börnin geta því valið um það, þegar þau eru orðin upp- komin hvort þau vilja rikisborgararétt föður síns eða þess lands, sem þau eru fædd í. Fjölskylda Patriciu er heldur ekki við eitt land bundin. Foreldrar hennar bjuggu í Kanó í Nigeríu, þar sem faðir hennar var slökkviliðsstjóri á flugvellinum, þegar hún kynntist Ómari. Og nú eru foreldrar hennar á Trinidad og hafa boðið henni að koma með fjölskylduna í sumarfrí. fslendingur með Afríkublóð í æðum. Kristján litli situr á gólfinu, stór og hraustlegur, og maður á bágt með að trúa því að fyrir aðeins 3 mánuðum hafi hann verið hætt kominn vegna malaríu. Hann var fluttur fárveikur í sjúkrahús, þar sem afrískir læknar björguðu lífi hans með blóðgjöf gegnum magann. Nú er hann aðeins með mar- bletti á mjöðmum og tvö ör á hálsi, þar sem fyrst var skorið til að reyna að koma inn blóðvatnsgjöfinni. Nú renn- ur því afrískt blóð í æðum snáð- ans. Síðan fór móðir hans með hann til Englands meðan hann var að ná sér. —. Hann fékk mjög góða aðhlynningu í barnaspítalanum hér í Lagos, segir hún. Þar voru mörg ákaflega mikið veik börn. Hjúkrunarkonan sagði mér að alltaf deyi mikið af börnunum, þrátt fyrir góða hjúkrun, af því að þau koma of seint. Foreldrarnir leita oft fyrst tii töfralæknisins heima í þorpinu sínu, en snúa sér ekki til sjúkrahúsanna fyrr en sem síðasta úrræði, og þá er það iðulega orðið of seint. — Börn þrífast hér annars ákaflega vel, segir Patricia. Þau leika sér mikið úti í sólinni. En það verður að gæta þeirra vel og ýmislegt er að varast, T.d. verður að gefa þeim daglega kín- ín sem vörn gegn malaríunni, láta þau Framhald á bls. 6. Barnfóstran með Kristján litla. Hann er stór og hraustlegur, þó að hann hafi verið hætt kominn vegna malaríu 3 mánuðum áður. 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. tölublað 1963

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.