Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1963, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1963, Síða 5
,Æ, hvað allt er Ieiðinlegt Skopmynd af frönskum góðborgurum á síðustu öld hvað allt er leiðinlegt! „Æ, hvað allt er leiðinlegt!" gæti verið yfirskrift yfirstandandi tíma á ís- landi, og er þó ekki þar með sagt að aldrei hafi verið leiðinlegra hér en ein- mitt nú. Vel má vera að einhver skeið JLí ýðrœðisskipulag byqgist á pví aö meirihlutinn ráöi, og af pví er oft dregin sú ncertœka ályktun, aö meirihlutinn hljóti ævinlega aö hafa á réttu aö standa. Fátt er fjær sanni eöa hœttulegra andlegu frelsi og framfaraviöleitni yfirleitt. Ef fram fœri skoöanakönnun á pví, hvaða bókmenntir vœru beztar, hvaöa listaverk mikilfenglegust, hvaöa skoöanir stórbrotnastar, mundi niöurstaöan veröa sú aö meirihlutinn greiddi pví atkvæöi sem er lágkúrulegast, andlausast og hégómlegast (sbr. metsölubœkur og vinsœlustu kvikmyndir). Flest paö sem miöaö hefur til framfara í ver- aldarsögunni hefur í öndveröu ver- iö fordœmt af meirihlutanum — eöa par til skörö voru rofin í pann mikla múr forheimskunnar og vana- festu sem meirihlutinn lileöur jafn- an um heföbundin viöhorf sín og stundarhagsmuni. Sókrates, Kristur og Lúther, svo nefndir séu af handahófi prír braut- ryöjendur, voru í minnihluta, en b e y g ö u sig ekki fyrir of- urvaldi meiri- hlutans. Þ ar kom, aö kenn- ingar peirra hlutu fylgi og viöurkenningu meirihlutans, en pá brá svo viö, a ö p œr tý ndu ein- hverju af upp- runalegum lcrafti sínum. Þœr uröu „sjálfsagö- ar“ og um leiö máttlitlar. Vaninn og hugsunarletin saug úr peim allan i merg. 7 Þaö virðist vera ein af pversögn- } um mannlegrar sögu og mennskrar náttúru, aö jafnslcjótt og einhver andleg staöreynd hlýtur blessun meirihlutans, týnir hún frjómagni sínu, hœttir aö bera ávexti. Allt líf viröist vera pess eölis, aö paö parfn- ast andstreymis og baráttu til aö\ 1 vaxa og proskast. Meölœti og „friö- ; ur“ viröast vera banamein lífsins. * Þess vegna er svo mikilvœgt aö minnililutinn hafi fullt tjáningar- frelsi, pví hann er beinlínis for- senda pess aö lífiö próist, bœöi á vólitískum og andlegum vettvangi. t rauninnl veltur lýörœöiö miklu fremur á prótti minnihlutans en valdi meirihlutans. Og l andlegum efnum er minnihlutinn skilyröi pess, aö menningin lifi. Af pessum sökum œtti kjöroröiö !að vera: Verndum lýörœöiö og menninguna gegn meirihlutanum! s-a-m. í íslandssögunni hafi verið leiðinlegri, en mér er ekki kunnugt um þau, enda yrði vitneskja um þau harla lítil hugg- un á þessum síðustu og verstu tímum. Satt að segja er það með ólíkindum hve mikið getur rúmast af leiðindum í jafn- litlu þjóðfélagi, og þó er kannski eng- inn hlutur eðlilegri þegar betur er að gáð: hvernig getur ástandið orðið öðru- vísi en óbærilegt í þjóðfélagi þar sem peningar og pólitík drottna yfir sálun- um? Þessi tvö ólukkans fyrirbæri, pening- ar og pólitík, hafa nefnilega þá ónátt- úru að draga á eftir sér önnur enn ó- merkilegri: lágkúru, þröngsýni, vana- þrældóm, varkárni og smekkleysi. En mannleg náttúra er nú einu sinni þannig gerð, að hún á erfitt með að sætta sig við leiðindin til langframa, og er þá gripið til meðala sem að vísu deyfa lífsleiðann í bili, en magna hann þegar frá líður. Þessi meðul eru m.a. hóflausar skemmtanir, áfengi, deyfilyf, spilamennska og alls kyns. della. En nú virðist svo komið, að menn eru jafnvel farnir að þreytast á að drekka eða dansa frá sér leiðindin — og hvað er þá til bragðs? ^era má að þessi þrúgandi lífs- leiði sé skilgetið og óhjákvæmilegt af- kvæmi velferðarríkisins, þar sem allt er öruggt og tryggt, engin knýjandi vanda- mál við að glíma, allt í föstum skorðum — sú er að minnsta kosti skoðun sumra mætra manna. Sá hlutur er altjent vís, að lífsleiði íslendinga á djúpar rætur í alltof snöggu og miklu meðlæti, sem hefur alið af sér andlegt og líkamlegt makræði. Látum vera þó menn verði líkamlega latir og værukærir í öllum þeim þægindum, sem þeir eiga völ á, en andlega slenið er vissulega úrkynjunar- merki sem ætti að valda öllum góðum mönnum ugg og óróleik. Að rífa sjálfan sig upp á hársrótunum er kúnst, sem fáir munu hafa lag á, og því er það vísast hrein goðgá að vekja máls á úrræðum til að lækna þjóðina af meini, sem hún er að verða heltekin af, en ég hefði ætlað að ákveðnir hópar í þjóðfélaginu hefðu hér verðugt verk- efni, og á ég þar við rithöfunda og listamenn yfirleitt. Lágkúran og smekkleysið í íslenzkum bókmenntum hefur farið vaxandi ár frá ári og náði hámarki í síðasta bólta- flóði með andatrúarskræðunum og ævi- sögu Kristmanns. Er nú svo komið, að í bókmenntunum örlar varla á frum- legri hugsun eða djörfu tiltæki. Flest er þar óendanlega flatt og vanabundið, sömu hugsanir og viðhorf tuggin upp aftur og aftur, sömu viðfangsefnum misþyrmt, sami leiðindablær yfir bókmenntum og listum eins og yfir þjóðlífinu í heild. 1- g vek máls á þessu hér, vegna þess að ég held þetta sé ekki óhjákvæmi- legt afsprengi velferðarríkisins. í Sví- þjóð, mesta velferðarríki veraldar, eiga sér stað mikil andleg umbrot, þrátt fyr- ir ýmis miður skemmtileg dæmi um úr- kynjun og lífsflótta meðal yngri kyn- slóðarinnar. Sama er að segja um Bandaríkin, sem jafnan hafa verið talin föðurland auðhyggjunnar. Og jafnvel í sjálfu höfuðvirki kommúnismans, Sovét- ríkjunum, eru andlegar hræringar sem hljóta að vekja manni forvitni og jafnvel öfund: bara að hér á landi ættu sér stað svipuð átök, hressilegar deilur og dirfskufull tiltæki sem hrektu burt lognmolluna og sofandaháttinn. Á íslandi eyða menn hins vegar púðri sinu í jafnauvirðileg og skopleg fyrir- brigði eins og deilur um andalækningar og spíritisma, andlausustu viðfangsefni á yfirborði jarðar! É , g held að það sé misskilningur, að íslenzkt mannlíf sé svo innantómt og ómerkilegt, að hér þrífist ekki annað en andatrúarrugl, ævisagnastagl og ófrjó dýrkun á fortíðinni (með draugum, álf- um og öðru tilheyrandi). Mér virðist þvert á móti vera mýmargt í íslenzku þjóðlífi sem taka mætti til rækilegrar meðferðar í opinberum umræðum: þröngsýnin í pólitik og almennum um- ræðum um dægurmál, spillingin í at- vinnulífinu og opinberum stofnunum, óttinn við almenningsálitið (sem er ekki annað en hjátrú), andleysið í bók- menntum og listum (þar með talið smekkleysi í byggingarlist og lágkúra í leiklist), dómgreindarleysið sem lýsir sér á fáránlegri oftrú á skoðunum út- lendinga, vanmatið á íslenzkri nútíma- menningu — og síðast en ekki sízt hræðslan við að fara ótroðnar slóðir í listsköpun, tefla á tvær hættur, gera sig hlægilegan ef því er að skipta, fremja axarsköft sem kynnu að stuðla að því að dreifa doðanum og hugsunarleysinu. 1. etta eru sundurlausir þættir, valdir af handahófi, og þeim er ein- ungis ætlað að árétta þá staðreynd, að íslenzku leiðindin eiga sér alls ekki fé- lagslegar forsendur, heldur eru þau sprottin af kæruleysi, leti og hugleysi. Ekki alls fyrir löngu kom að máli við mig ungur, hugmyndaríkur útlending- ur, sem hér er búsettur, og stakk upp á því að við reyndum að stuðla að útgáfu smárita eftir unga höfunda og lista- menn, ekki með það fyrir augum að græða fé eða kynna mikla list, heldur aðeins til að skapa ungum mönnum vettvang til að koma fram með það sem þeir eiga í pokahorninu af rituðu máli, teikningum, ljósmyndum eða öðru sem koma mætti á bókspjöld. Jr ó ekki hefðist annað upp úr slíku fyrirtæki en ergelsi góðborgar- anna, skammir máttarstólpa þjóðfélags- ins og rifrildi um gildi slíkrar viðleitni, væri betur af stað farið en heima setið, Ég held sem sé að deyfðin og leiðindin hjá okkur stafi meðfram af því, að ung- um og ódeigum mönnum gefast alltof fá tækifæri til að hlaupa af sér hornin á opinberum vettvangi og valda heil- brigðri hneykslun, róta upp svolitlu moldryki í kæfandi lognmollu peninga- dýrðarinnar. Ef við höldum áfram að gera aðeins það sem helgast af hefð og vanahugsun, líður ekki á löngu þar til húmorleysið og leiðindin svæfa okkur að fullu og öllu, breyta okkur í róbota með þúsund- kalla í heilabúinu og krónupeninga í augnatóttunum. eftir Honoré Daumier. 8. tðlublað 1963 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.