Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1963, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1963, Qupperneq 13
dýragarðinum Allt í einu ber okkur inn í nýtt umhverfi með marg- íitu blómskrúði og byggingum með ýmsu sniði. Urmull af fólki er þar á gangi. Hvaða þorp skyldi þetta vera? Það er dýragarðurinn — Den Zoologiske Have — fang- elsi dýranna. Dýranna, sem fædd eru frjáls og engar þömlur eða haft þekktu, ekkert nema tak- markalausa víðáttu og frelsi, þang- að til manninum tókst að veiða þau í snöru sína og hneppa þau í fangelsi ævilangt. Dýragarðurinn er merkilegur staður, allt fyrirkomulag hans er listaverk og mun allt gjört til þess að dýrunum líði sem bezt. En ekkert getur þó bætt þeim upp frelsið og það leynir sér ekki, að þeim líður mörgum afarilla. Þau ráfa um eirðarlaus innan síns þrönga svæðis, útþráin pínir og nagar vikur og ár, þangað til öllu er lokið. Það var heitt þennan dag og það leyndi sér ekki að ísbirninum leið sár- illa. Hann slangraði um sinnulaus og magnþrota. Sama var að segja um bjarndýrið. En sem betur fer virðast mörg dýrin una vel hag sínum. Nokk- ur þeirra hafa töluvert frelsi, eru þau sinnar tíðar hér á landi og mestur fræði- maður í þeirri grein. Æðsti innlendur dómari var hann á fimmta tug ára, og þó að hann sætti oft hatrömmum árás- um, veit ég ekki til, að hann hafi nokkru sinni verið vændur um ranglæti í dóm- störfum. í refsimálum var hann braut- ryðjandi mannúðarstefnu, og varð oft ágreiningur með honum og samdómend- um hans í þeim efnum. Má um það og dómstörf Magnúsar yfirleitt vísa til hinnar fróðlegu bókar dr. Björns Þórðar- sonar um Landsyfirréttinn. Magnús hafnaði að vísu tilmælum stjórnarinnar um að taka að sér samn- ingu íslenzkrar lögbókar, en samt gætti að vonum áhrifa hans á íslenzka lög- gjöf með ýmsum hætti. Á embættisár- um hans var löggjöf landsins í hinum mesta ólestri, Jónsbókarákvæðin að verða úrelt í flestum greinum, en síðari lagasetning dreifð og sundurleit og óvissa um gildi margra lagaboða. Kom það í hlut Magnúsar og samdómenda hans að ákveða, hvað væru gild lög og hvernig þau bæri að skýra. Magnús vann einnig að sjálfstæðum fræðistörfum í lögfræði, einkum um skýringar laga og rannsókn á gildi þeirra. Hann gerði grein fyrir sveitarstjórnarlögum í riti sínu Hentug handbók fyrir hvern mann, og einnig samdi hann og lét prenta rit um sætta- stiftanir og annað um legorðsmál. Höfuð- rit hans í lögfræði er samið á latínu og fjallar um rannsókn á gildandi löguin íslands (Commentatio de legibus, quae jus Islandieum hodiernum efficiant). Var það gefið út í Kaupmannahöfn árið 1819, og hlaut hann fyrir það doktorsnafnbót í lögum við Kaupmannahafnarháskóla. Síðast, en ekki sízt, er þess að geta, að hann vann árum saman að endurskoðun Jónsbókar og nýrri x úfu á henni. Innti hann þar mikið siarf af höndum, einkum um rannsókn handrita og ákvörðun á efni þeirra. í utanför árið 1825 afhenti hann dómsmálastjórninni verk þetta í fjórum bindum. í tillögu til konungs árið eftir viðurkenndi dóms- málastjórnin réttarsögulegt gildi verks- látin vera á afgirtum svæðum. En þau, sem grimmúðug eru í eðli sínu, verða að sætta sig við búrið. Ég veitti því athygli hve sum dýrin voru fag- ureyg. Ég minnist hjartar og hindar, úlfalda og zebradýrs. í dýragarðinum eru fullvaxnir hestar sem ekki eru stærri en folöld. Skokkuðu þeir með lítil börn á baki sér á afgirtum reit og voru börnin æði brosleit. Um morguninn, áður en við lögðum af stað í dýragarðinn, lásum við í blöðunum, að þá um nóttina hefði fjölgað hjá flóðhestshjónunum. En það kvað vera fremur sjaldgæfur atburður. Og við vorum svo heppin að sjá frum- burð föður og móður. Móðirin var í polli sínum gmggugum og hjá henni kálfurinn í kafi. Þessi afarljóta skepna ins, en réð frá útgáfu þess, þar sem laga- ákvæðin séu í svo mörgum greinum úr- elt orðin. Hafa þetta vafalaust orðið Magnúsi mikil vonbrigði. Magnús hóf á gamals aldri að rita ævisögu sína, líklega um 1830. Segir hann frá æsku sinni og námsárum fram að lögfræðiprófi, en entist ekki aldur til að koma sögunni lengra áleiðis. í ævisögubroti þessu telur hann ótrauð- ur fram kosti sína og verðleika, og hef- ur honum verið metið það t.l raups og sjálfhælni, enda er því ekki að neita, að hann er óvenjulega hreinskilinn í þeim efnum. En fleirum hefur það sama á orðið, ekki hvað sízt þeim, sem með völd hafa farið eða í stjórnmálaerjum staðið, en finna á efri árum áhrif sín hjá þjóðinni fara þverrandi. Magnús andaðist hinn 17. marz 1833. Um þær mundir verða tímamót í sögu þjóðarinnar. Nýir menn koma fram með nýjar þjóðmálastefnur. Magnús hafði í fjóra áratugi borið fram merki þeirra umbótastefna, sem hann hreifst af og tileinkaði sér á æskuárum sínum. Þó að honum tækist ekki að bera allar hug- sjónir sínar fram til sigurs, má samt ekki vanmeta þá viðreisn, sem varð í íslenzku þjóðlífi um hans daga. Hann stríddi ekki gegn straumi aldar sinnar, heldur greiddi honum framrás með frjálslyndi á sinnar tíðar vísu, víðsýni og mikilli elju og kappgirni. Barátta hans stóð við forynjur undanfarandi alda, örbirgð, fáfræði, hjátrú og vana- festu. Um hans daga voru hér engin skilyrði til að bera fram kröfur um lýð- ræðisleg réttindi þjóðinni til handa. Það væri því ekki réttmætt að bera ævistarf hans saman við frelsisbaráttu þá, sem leiddi af frönsku stjórnarbyltingunni og hófst hér um sama leyti sem fráfall hans ber að höndum. En um þá baráttu hefur leikið svo mikill ljómi í augum þjóðarinnar, að undanfari hennar hef- ur viljað hverfa í skuggann. Þó er engin hætta á þvd, að Magnús fái ekki með kostum sínum og göllum sinn rétta sess í sögunni. 1ét sér mjög annt um afkvæmi Kandýrið, maki hennar, stóð skammt frá og glennti upp ginið ef einhver kynni að kasta inn í það heilu rúg- brauði eða einhverju öðru því, sem minna var. Mikill fjöldi dýra er þarna saman kominn frá flestum löndum heims. Stór og margbreytileg er fugla- hjörðin, allt frá fuglarisanum, strútn- um, til smáfugla, sem lítið eru stærri en fiðrildi. Fjölbreytnin í litskrúði fuglanna er undrunarverð. Veitinga- staður er fast hjá dýragarðinum undir laufþaki trjánna. Rúmast þar mörg hundruð manns í senn. Þegar við geng- um heimleiðis hitlum við betlara sem stóð við veginn og lék á munnhörpu. Rétti þessi vesalingur fram húfugarm sinn til þeirra sém fram hjá gengu. Býst ég við að ýmsir hafi látið falla smápening í hana. egar við höfðum matazt og hvílt okkur óku Leegaardshjónin með okkur út á land í einkabíl sínum. Voru þau að flytja Stefaníu, sem ég gat um fyrr. Var hún að fara í sumarfrí sitt. Þegar komið er út í sveitirnar og sveitaþorp- in er fegurðin dásamleg. Þar skiptast á skógarbelti, lítil stöðuvötn, akrar og blómagarðar. Húsin eru ýmist stór eða smá og mörg Ijómandi falleg. Algengt er, að ekki sér 'í húsin fyrir vafnings- jurtum. Þau eru klædd að utan þessu græna skrúði og gegnum það líta glugg- arnir út eins og djúpir hellar. Girðing- arnar kringum húsin eru alþaktar rauð- um og hvítum rósum. Mörg húsin standa inni í skógarrjóðrum og glittir í þessi hvítu ævintýraheimkynni gegnum skóg- arþykknið. í þetta sinn var ferðinni heitið til sveitaþorps sem heitir Gefjun. Þar skiluðum við Stefaníu af okkur og héldum heimleiðis. Þennan dag fórum við 100 km. veg. E inn daginn ókum við út á Am- ager. Amager er fráskilin Kaupmanna- höfn með síki og liggur brú yfir. Eyjan liggur lágt og er mjög frjósöm. Víðáttu- miklir akrar eru þar og mikið ræktað af alls konar káltegundum. Sagt er að Amager fæði Kaupmannahafnarbúa að mestu á þeirri vöru. í þetta sinn var ferðinni heitið í skóg sem nefndur er Kóngalundur. Við keyrðum alla leið nið- ur að ströndinni. Þar var fjöldi fólks að busla í sjónum. Aðgrynni er þarna mikið vegna þess hve landið er flatt og fólkið óð svo langt út í sjóinn að þar var til að sjá eins og flugur. Svo lögðum við leið okkar í Kóngalund, þangað sem ferð okkar var heitið. — Kóngalundur er stór og fallegur skógur. Þar dvöldumst við stundarkorn og nut- um fegurðarinnar. Síðan lögðum við af stað heimleiðis. Á Amager er fólk að vinna á ökrum úti. Kona gengur á undan okkur eftir veginum. Hún keyrir barnavagn með hægri hendi. f vinstri hendi ber hún vatnsfötu. Hún hefur töluvert langan veg að fara og ég sé að það skvettist út úr fötunni hennar. Ég sé eftir hverj- um dropa, sem hún missir niður, af því að hún þarf að sækja vatnið svona langt. Hún staðnæmist við garðshliðið fram- undan litlu húsi og setur frá sér fötuna. Ég lít framan í hana um leið og við brunum framhjá. Hún er brún á hör- und og hraustleg útlits. INæsta dag fórum við langt út á land. Fyrst ókum við gegnum sveitir og sitt.landsþorp, þ.á.m. 'gamlan bæ, sem heitir Köge. Bærinn stendur við samnefndan fjörð, þar eru ævafornar byggingar, þ.á.m. Sánkti Nikulásarkirkja frá 14. öld. Við höfnina er minnismerki af sjó- hetjunni Niels Juel, fæddur 1629, dáinn 1697. Við stöldruðum lengi við í skógi, sem nefndur er Töfraskógur, sakir fegurðar. Þegar við höfðum hvílzt og gætt okkur á nestinu gengum við riður að strönd- inni. Þar voru margir sumarbústaðir og börn og fullorðnir busla í sjónum. Það hlýtur að vera yndislegt að dvelja á sumrum á slíkum stöðum, enda kvað það aðeins vera ríka fólkið, sem getur leyft sér þann munað. Þennan dag sáum við í skóginum villtar hindir, en það kvað vera sjaldgæft að sjá þær. Þeg- ar við höfðum reikað um ströndina og skóginn eftir vild héldum við langan veg upp í sveit að gömlu konunglegu sloti, sem heitir Vallö. Ein danska drottningin, Sophia Magdalena, gaf það og stofnaði þar klaustur fyrir aðal- bornar konur. Okkur var sagt að ekki væri þar klaustur lengur, en höllin er nú dval- arstaður fyrir gamlar hefðarkonur. Þessar gömlu konur virða tízkuna að vettugi en fylgja gömlum siðum. T. d. vilja þær ekki nota bíla en aka í vögn- um sem hestar ganga fyrir. Fylgja höllinni hestar, vagnar og ökumenn í einkennisbúningi. Þegar við vorum að aka heim að slotinu mættum við einu slíku farartæki. Fjórar þessara gömlu hefðarmeyja sátu í vagninum sem tveir svartir hestar gengu fyrir. Búningar þeirra voru gamaldags, þær voru hrukk- óttar og súrar á svip. Slotið Vallö er byggt úr tígulsteinum. Höllinni fylgir landrými mikið og búskapur er rekinn þar í stórum stíl. Umhverfis þessa miklu byggingu er síki. Á því fljóta vatnalilj- ur. Innan síkisins er yndislegt blóm- skrúð. Við komum í hesthús slotsins. Þar voru stórir, fallegir, svartir hestar. Hesthúsið er rúmgott, veggirnir yfir stöllunum klæddir hvítum glerflísum sem gljáðu af hreinlæti. Yfir stalli hvers hests er skráð nafn hans. í námunda við höllina er kirkjugarður. Þar er með- al annarra stórmenna grafin drottning- in sem höllina gaf. Úr garði þessum tók ég til minja ofurlítinn marmara- mola, sem brotnað hafði úr einhverjum bautasteininum. Dag nokkurn skoðuðum við lista- safn ríkisins, — Statens Museum for Kunst. — Þegar í fyrsta skipti er stigið fæti inn á slík söfn grípur hugann helgikennd og orðlaus hrifning. Mál- verk og marmaramyndir bera vott um guðlega snilli listamannsins. Þarna eru málverk, sem kostað hafa offjár. Einn þeirra manna, sem þarna var til að leiðbeina gestunum, benti okkur á lítið málverk. Sagði hann að maður nokkur hefði keypt það í skranbúð fyrir 5 krón- ur. En kaupandinn hafði listamanns- auga og grunaði að þessi skítuga smá- mynd mundi vera listaverk. Hann seldi myndina aftur fyrir 2 þúsund krónur. Dönsku listaverkin í þessu mikla og fagra safni eru um 1000 og þau útlendu eru ekki mikið færri. Ég get ekki stillt mig um að minnast á eina deild í þessu mikla og fagra safni. Þar eru_ sýnd málverk eftir ný- tízku málara. Ég vissi ekki hvort heldur ég átti að gráta eða hlæja þegar ég kom inn í þessa deild safnsins. Hvílík af- skræming listarinnar. Þetta eru klessur og bein strik í sterkum litum sem eiga að tákna mannsmyndir eða eitthvað annað. Engin lögun er á neinu, allt skakkt og skælt, gjörsneytt fegurð. Mér var sagt að myndhöggvaralistin stefndi í sömu átt. Ef öll menning nú- tímans gengur þessa vegi er útiltið ekki glæsilegt. ~ 4/ * * ^ (qubmnav Jóhannódottur Jrd Aslaksðtööum. 3. tölublað 1963 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 1$

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.