Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1963, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1963, Page 16
Le Corbusier er byggingar- listinni Jiað sem. Picasso er málaralistinni. Hann er nú orðið almennnt álitinn einn helzti frumkvöðull nútíma byggingarlistar og hann hef- ur afkastað ótrúlega miklu. í tilefni 75 ára afmælis Le Corbusier efndi Musée Nat- ional d’Art Modeme í París til þeirrar stærstu sýningar, sem nokkru sinni hefur verið efnt til á verkum listamanns- ins — og urðu margir, sem sýninguna sáu, undrandi. Það Þarna voru ljósmyndir og likön, sem. gáifu góða hug- mynd um hálfrar aldar starf Le Corbusier sem byggingar- og skipulagsfræðing. En hann er ekki jafnkunnur sem málari. Þarna voru samt 40 málverk, 50 téikning- ar, allmargar höggmyndir — að ónefndum veggteppum, húsgögnum, keramik og vasa- úri ,sem hann bjó til 15 ára gam.all og ber glöggan vott um atorku hans og einbeitni. Þetta kom mörgum á óvart. Málverk hans og höggmynd ir eru lykillinn að hugdett- um Le Corbusier, en hið sanna eði: og stærð hugmynd- anna kemur aðeins fram I byggingarlits hans. Hér birt- um við nokkrar myndir af því, sem fyrir augu bar á sýningunnni í París — og þarna er hann lika sjálfur. Hús hæstaréttar í Chandigarh, „drau maborginni", sem. Le Corbusier byggði frá grunni, núverandi höfuðborg Punjab-fylkis í Indlandi. Le Corbusier var aðal byggingar- og skipulagsfræðingur borgarinnar, teiknaði ekki að- eins hús hæstaréttar, heldur og flestar aðrar opinberar bygggingar i borginni. LE CORBUSIER OG SÝIMINGIN Á yngri árum fékkst Le Corbusier mikið við myndlist, en síðar hreif byggingarlistin hann — og hann gekk henni á hönd. Hér er eitt mál- verka hans frá árinu 1925: „Fiðla, glas og flaska“, heitir myndin. Nafn hans á myndinni er „Jeannert“. Haun- verulegt nafn hans er Charles Edouard Jeann- ert, en Le Corbusier var ættarnafn móður- ömmu hans — og það tók hann sér síðar. Lengst til vinstri er höggmynd, „Kona“, sem hann lauk árið 1953 og efst er „Vatn, himinn, jörð“, frá áriuu 1954. 8 PARIS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.