Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Page 4
Kynþáttamúrarnir riöa til falls VI Ð T A L við áhrifamesta svertingja nútímans, dr. Ralph Bunche, vara-framkvstj. SÞ, um lokaþáttinn í kynþátta- stríðinu, aldarlanga þróun, SÞ og vaxandi þýðingu smærri þjóða í heimsmálunum. „Fyrsti svertinginn í Ameríku, sem hefur náð alla leið upp á há- tindinn“. Þetta er aðeins ein umsðgnin af mörgum, sem heyra má um dr. Ralph Bunche. Sem vara-fram- kvæmdastjóri SÞ hefur hann getið sér heimsfrægð sem „heimsstjórn- málamaður“ — maður, sem allir geta treyst f Bandaríkjunum skarar hann fram úr öllum öðrum, sem vísindamaður á sviði hagfræði og uppeldisfræði, og sem mað- ur er hann elskaður og dáður af öllum, sem kynnast honum. En enda þótt hann sé fyrsti maður síns kynþáttar, sem með hinu háa em- bætti sínu hefur náð alla leið upp á hátindinn — í hæð við konunga og rík- isforseta, er hann þó fyrst og fremst svertingi, og sem maður getur hann — utan em.bættis síns — ekki annað en haft áhuga á kynþáttastríðinu, sem um þessar mundir geisar í Bandaríkjunum. Framar öllum öðrum sem eru við þetta riðnir, lítur hann á málið á löngu færi, vísindalega, eða hvorttveggja í senn sem maður og vísindamaður: — Reynið að skyggnast aftur í tímann og söguna. Það væri beinlínis óhugsandi að bylta þjóðfélagi svo rækilega, sem við gerum nú, án ófriðar og uppreisn- ar. Orðin koma hægt, hógværlega og vel- hugsuð. Hvert þeirra er merki um ára- langa diplómatiska æfingu, sem hann hefur öðlazt í starfi sínu hjá SÞ. Mf að sem nú er að gerast hjá okkur, er stéttabarátta — bylting — en þó friðsamleg bylting, vel að merkja. Ef ekki kæmi til ofbeldisaðgerða, þegar breyta skal þjóðfélaginu svo róttækt mætti það kallast kraftaverk. Ég trúi á fólkið í nútíma þjóðfélagi — en ekki á kraftaverk. En við skulum líta á þetta frá annarri hlið — frá jákvæðri hlið: Sjálf átökin eru sönnun þess, að þjóðféiagið ólgar en staðnar ekki. Það er merki þess, að lýðræðisþjóðfélag breytist stöðugt — þroskast. En er nú ekki erfitt stundum að koma auga á það? Ef t.d. litið er á ástandið í Jackson eða Mississippi í fyrra, í Ox- ford? — Jú, gott og vel — svertingjarnir voru að því komnir að springa 1 Missis- sippi. Ég sá það sjálfur, þegar ég var þar í vikunni sem leið. Þeir eru þreytt- ir, eða kannski öllu heldur uppgefnir, svo að þeir eru að þrotum komnir, af því að bíða. Æsingin eykst með degi hverjum. Það skal ég gjarnan kannast við. En samt sem áður — og það get ég aldrei nógu oft tekið fram. . . Það sem við sjáum um öll Bandaríkin, er há- markið — eða lokaspretturinn í langri, langri þróun. Hann hlaut að koma fyrr eða síðar, með ofbeldisverkum. kröfu- göngum, götuáflogum, fangelsunum —• og — svo hryggilegt sem það er — skothríð og morðum. — Hvernig getið þér tekið þessu svona rólega, talað svo rólega um það? — Ég er lengi búinn að vera svert- ingi. Því megið þér ekki gleyma. . . . og á eftir að vera það lengi enn, ef allt fer að líkindum. Þegar við nú, seint og um síðir, erum í þann veginn að rita lokakaflann í frelsisbaráttunni, er hægt að taka því rólega. Jafnvel þótt sumstaðar sé öflug andstaða, þá fer þetta að ganga friðsamlega til, á þeim stöðum þar sem framsýnir menn eru við völd á hverjum stað. B erið þér sjálfur saman ástandið í Alabama fyrir nokkru, við háskólann þar, eða Clemson College í Suður-Kar- ólínu við „uppreisnina í Oxford". Þar var um að ræða óvild en ekki uppreisn. Og er það ekki sönnun þess, að jafnvel fólkið svo langt suður frá, er eitthvað farið að læra. — Eruð þér ánægður með réttinda- frumvarpið,' sem Kennedy hefur lagt fyrir þingið? — Um það vil ég ekkert segja. Ég get beinlínis ekki, sem embættismaður hjá SÞ, sagt neitt álit á því. Það væri brot á diplómatiskum siðareglum, meðan málið er enn í deiglunni. — Það hefur heyrzt frá NAACP, að það ætli að efna til fjöldagöngu 300.000 svertingja — til Washington, til þess að knýja fram samþykki frumvarpsins? — Um það er ég jafn-ófróðUr og þér. í bili held ég, að þeir ætli aðeins að efna til þessarar göngu, til þess að koma í veg íyrir, að öldungadeildarmenn frá ur að reka á eftir því með of mikilli hörku? — Mér finnst það hafa sýnt sig í seinni tíð, að harkan þarf ekki að vera til ógagns. Ég held ekki, að þetta geti haft nein áhrif. — Þér töluðuð sjálfur um „hægfara þróun“, hér í Bandaríkjunum. Hvers- vegna hafa svertingjar þolað svona langa bið? —Það finnst mér vera þeím heldur til hróss, en jafnframt hættir mönnum til að gleyma, hve langæ þessi barátta er orðin. NAACP var stofnað fyrir meira en 50 árum, en þar á undan var Booker Washington með kjörorðið: „Biðjið og lærið. Gerizt færir í starfi. Vinnið virð- ingu hvítra manna þannig, en gleymið aldrei að þið eruð svertingjar, með öll- um þeim takmörkunum, sem því eru samfara." ►J vo kom NAACP árið 1909. Það voru fyrstu „árásar“-samtökin sem störf uðu þó friðsamlega með „árásum" fyrir milligöngu dómstólanna, til að fá kjör okkar bætt. Síðan hefur þróunin haldið áfram, með hvern hæstaréttardóminn á fætur öðr- um, fram að 1954, sem var tímamóta ár, þegar dómur fékkst fyrir því. að „að- skilnaður“ i menntamálum væri stjórn- arskrárbrot. Síðustu níu árin hefur þróunin gengið með risaskrefum með „kyrrsetum" í veitingahúsum, atvinnu-útilokun, „frels- isakstri“ í áætlunarbílunum í Suðurríkj- unum og stofnun eins féiagsins eftir annað. — En eru þessi félög ekki orðin of mörg, þannig að minna gagn verð af þeim, þegar barizt er svona dreift, á mörgum vígstöðvum? — Það er vitanlega alltaf hætta á ó- samkomulagi um aðferðirnar. Og slíkt getur verið hættulegt. Hinsvegar er enginn ágreiningur um takmarkið, og því fleiri félög sem við höfum að baki okkur, því fleiri svertingja getum við náð sambandi við. Og við þurfum á þeim öllum að halda. — Hefur frelsisbarátta nýlenduríkj- anna í Afríku nokkra þýðingu haft hér í Bandaríkjunum? — Ég tel, að þetta tvennt hafi fylgzt að. Við hvert ríki i Afríku, sem fær frelsi, eykst áhugi svertingja hér til að berjast enn betur fyrir réttindum sínum, og fyrir hverja framför — eða ofbeldis- aðgerð — sem á sér stað hérlendis, eykst áhugi manna í nýju ríkjunum á að vinna æ betur að framförum í þeim ríkjum, sem þeir eru að skapa. — Hafa nýju ríkin í SÞ nægilegan skilning á þeirri ábyrgð, sem því fylgir að vera meðlimur i samtökunum? — Ég mundi heldur vilja orða þetta öðruvísi: Það hefur verið ánægjulegt, einkanlega þó síðustu árin, að sjá vax- andi ábyrgðartilfinningu gagnvart heim- inum, hjá flestum ríkjunum, hvort sem þau voru ný eða gömul. Einkum eru smærri ríkin í þann veginn að fá mjög aukm áhrif. Og mín skoðun er sú, að þetta megi telja kost. Suðurríkjunum tefji fyrir málinu, með málþófi og breytingartillögum. —__ Þingmenn eru þekktir fyrir það, sem þei'r kalla með fínu nafni „virðulegt sjálfstæði". Getur ekki verið hætta á, að fylgismenn frumvarpsins úr Norður- ríkjunum snúist gegn því, ef farið verð- I J afnframt kemur fram aukinn skilmngur hjá þróuðu löndunum á nauð syn þess að hjálpa hinum vanþróuðu — báðum í hag. Það óhugnaniegasta, síð- ustu tuttugu árin, er það, að lífskjara- Dr. Ralph J. Bunche mismunurinn hefur farið vaxandi ár frá ári. Ef til vill tekst okkur nú að breyta þróuninni ofurlítið, og hvort heldur hjálpin kemur frá einkaaðilum, frá ein- stökum ríkjum, frá SÞ, eða hún heitir lán eða gjöf, þá skiptir það minna máli en hitt, að hún komi þanmg að þiggj- andinn geti varðveitt sjálfsvirðingu sína. — Þetta má líka heyra hér i Banda- ríkjunum? — Já, og það er það, sem sannfærir mig um, að við séum nú á lokaáfangan- um í baráttunni, þar sem við erum að sigra, bæði úti um heim og heima fyrir. — Þjóðfélagslega eða kynþáttalega? — Þetta er kynþáttastríð, skal játað. En samtímis er það svo geysileg þjóð- félagsleg bylting, að annað eins hefur aldrei sézt. f Bandarikjunum er það algjört frelsi 20 milljóna manna, og út um heim stærsta „krossferð", má næstum segja, sem sagan hefur nokkurntima séð, gegn fátækt og hungri. — Hvað segja „útlendingarnir" í SÞ um baráttuna hér í Bandaríkjunum? — Fyrstu viðbrögðin eru líkust tauga- áfalli: — Hvernig í dauðanum getur ann- að eins og Oxford-uppreisnm fengið að gerast í þjóðfélagi, sem kallar sig siðað? En þegar talað er við þessa menn, skilja þeír venjulega, að báðir aðilar hafa nokkuð til síns máls. Ef ekki ann- að, þá það, að óeirðirnar skuli geta átt sér stað. Það er vert að athuga, í hve mörgum löndum stjórnin mundi útrýma svona hópum, sem gerðu uppreisn, eða varpa öllum foringjunum í fangelsi. Hér hafa þeir leyfi til að fara kröfu- göngur, enda þótt einstöku ruddamönn- um í lögreglunni hætti til að sleppa sér. Við höfum ekkert einkaleyfi á að vera góðir hér í Bandaríkjunum. Það land er ekki til þar sem allir eru annaðhvort góðir eða allir vonir. Hvert einasta ríki í öllum heimi er samband af hvorutveggja — eiimig Bandaríkin. 4 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 26. tölublað 1963

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.