Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Side 10
SIMAVIÐTALIÐ
Állinn
#•/• x T**' • •
litir i Tjorninm
— moo.
— Slökkvistöðin.
— Kjartan Ólafsson við?
— Það er hann.
— Þetta er á Morgunblaðinu.
Við hringdum bara til þess að
láta vita, að það væri ekki
kviknað í hjá okkur.
— Jæja, það var ágætt. Gott
að heyra það. Loksins hringir
einhver, sem ekki hópar: „Eld-
ur, eldur!“ Segið þið þá ekki
eitthvað fallegt?
! — Nei, ekkort markvert, en
hvað er að frétta af fuglunum á
Tjörninni?
— Ja, nú er blessuð krían far-
in, uppáhaldið mitt. Hún fer
alltaf í lok ágúst, þá hverfur
hennar hljómur. í sumar vegn-
aði henni vel, fjölgaði töluvert.
Já, já — það er svo sem allt
gott að frétta frá Tjörninni.
—■. Og nóg af öndum?
' — Aðallega stokköndum. Þær
virðast þola þetta bezt. Það er
enginn lúxus hjá þeim, það er
ekki eins og þær séu á silfur-
tærri heiðartjörn. Ónei, þetta
er orðinn hálfgerður forarpoll-
ur, þessi Tjörn. Annars hefur
stokköndinni vegnað vel, hún
hefur komið fleiri ungum upp
en í fyrra — held ég. Þó er
! Hverer
uppáhaldsmaiur
eiginmannsins
SPURNINGUNNI svarar í
dag frú Tove Böðvarsson,
eiginkona Gunnars Böðvars-
sonar, verkfræðings, Hóf-
gerði 3, Kópavogi.
„Gunnar hugsar ekki mik
ið um mat, þykir gott að fá
bara fisk og skyr. En samt er
nú hænsnakjöt hans eftir-
læti og höfum við oft soðnar
hænur með aspargus. Úr af-
ganginum af soð. hænsna-
kjöti bý ég til eftirfarandi
salat, sem 1 onum þykir sér-
lega Ijúffengt:
150—200 gr. mayonese er
blandað með 2 matsk. rjóma
(ekki þeyttum), 2 matsk.
tómatsósu og karry, eftir
smekk. Út í sósuna eru síðan
látin 2 harðsoðin, söxuð egg,
1 bolli af köldum, soðnum
hrísgrjónum ásamt soðnu
hænsnakjötinu. Látið í skál
og skreytt með rúsínum og
söxuðum hnetum. Þetta er
mjög Ijúffengt og borðað
með ristuðu brauði".
þetta erfiðara en áður, síðan
þeir hlóðu vatnsbakkann með-
fram Tjarnargötunni. Það er
erfitt fyrir ungana að komast
út á Tjörnina, þegar vatnsbakk-
inn er orðinn svona brattur, því
flestir fuglarnir, sem ekki verpa
í hólmunum, hreiðra um sig í
görðum hér allt umhverfis
Tjörnina — og þær þurfa því
að eiga greiðan aðgang að Tjörn
inni allt í kring, ef vel ætti að
vera. Áður var Vatnsmýrin aðal
varplandið. Nú er sá tími lið-
inn. Ég vona að hann Hafliði
skilji eftir svolitla fjöru fyrir
blessaða ungana, þegar hann fer
að lagfæra syðri Tjörnina.
— Og er samkomulagið gott
á Tjörninni?
— Milli kríunnar og stokk-
andarinnar er gott samkomulag.
Ég er nú hræddur um það. En
hettumávar og veiðibjöllur, sem
eru orðnir tíðir gestir síðan
öskuhaugarnir hurfu í Vestur-
bænum, eru ekki jafnfriðsamir.
Þessir óboðnu gestir ganga
jafnvel svo langt að sækjast eft-
ir brauði, sem fólk er að gefa
öndunum. Þvílík ósvífni.
— Og það er algengt, að þeim
sé gefið brauð?
— Já, svo að segja daglega er
fólk að gefa fuglunum brauð.
Dr. Finnur og hans menn sjá
um að fuglinn ekki svelti, en
aukabitinn virðist líka vel þeg-
inn. Börnin hafa líka ósköp gam
an af þessu.
— En gera ekki hrekkjalóm-
ar oft usla við Tjörnina?
— Nei, alls ekki oft. Tjörnin
er orðin friðhelgur staður í
huga allra Reykvíkinga — og
þó að hvorki börn né fullorðnir
virði alla slíka friðhelgi — þá
hefur Tjörnin og lífið á henni
ekki orðið fyrir barðinu á ó-
þokkum svo orð sé á gerandi.
— Hvað er að frétta af álft-
unum?
— Talaðu ekki um þær. Mesta
sorgarsaga. Þó þær gleðji augu
vegfarenda, þá held ég að bezt
sé að vera ekki að hæna þær
meira að en góðu hófi gegnir.
Það er sífelldur ófriður, sem
fylgir þeim. Leiðinlegt að horfa
Haukur Morthens syngur.
Ekki alls fyrir löngu kom út
33 snúninga hljómplata með
hvorki meira né minna en
sextán lögum, sem Haukur
Morthens syngur. Allt eru
þetta lög, sem áður hafa kom
ið út, annaðhvort á 78 eða 45
snúninga hljómplötum. Taka
þessar upptökur yfir tæplega
tíu ára tímabil, allt frá
Bjössa á mjólkurbíinum til
Smalastúlkunnar.
Þegar maður hlustar á öll
þessi lög á einni og sömu
plötunni þá kemur raunveru
lega bezt í Ijós hversu góður
söngvari Haukur er og hefur
verið gegnum árin, því hann
er jú búinn að syngja í tæp
tuttugu ár. Sum rólegu lögin
á þessari plötu eru frábær-
lega vel sungin, lög, sem
voru alls ráðandi í óskalaga-
þáttunum fyrir mörgum ár-
um og maður var búinn að
gleyma, svo sem Bláu augun,
í kvöld og Frostrósir, að ó-
gleymdu Capri Catarina,
sem er með því allra bezta
sem Haukur hefur gert á
plötu.
Upplýsingar allar á plötu-
umslaginu eru á ensku og
þess vegna gerir Fálkinn sér
líklega vonir um að útlend-
ingar kaupi þessa plötu, og
er ekkert ótrúlegra. Það
væri reyndar óskandi að
Fálkinn með sin góðu sam-
bönd erlendis kæmi þessari
og reyndar fleiri, íslenzkum
hljómplötum á markað utan
íslands.
Svo við snúum okkur aft-
ur að þessari plötu þá kc-tar
hún kr. 300,00, sem er of
dýrt, þar sem hér er um end-
urútgáfu að ræða, ~n 33 snún
inga plata, ný af nálinni,
kostar kr. 250,00. Hitt er svo
annað mál, að hér eru á einni
og sömu plötunni 16 lög, og
mörg hver í hópi þess bezta,
sem Haukur hefur gert, og
sextán lög sungin af Hauki,
þó gömul séu, eru miklu
meira en þrjú hundruð
króna virðL
essg.
upp á það. Þessi þýzku hjón,
sem voru flutt á Tjörnina fyrir
nokkrum árum, voru ófriðar-
seggir. Karlfuglinn sá aldrei
aðrar álftir í friði. Hann vildi
hafa Tjörnina fyrir sig og sina
kerlingu. Það finnst mér nokk-
uð mikil frekja. Hann hrakti
jafnvel eigin unga í burtu strax
og þeir voru orðnir stálpaðir.
Svona er það nú samt í þessum
heimi. Eilífur ófriður. Ef það
eru ekki Kinverjarnir, þá eru
það álftirnar.
— En er ekki annað líf í Tjörn
inni?
— Jú, þótt undarlegt megi
virðast. Það virðist ekki lífvæn-
legt nokkurri skepnu í vatninu
— jafnóhreint og það er nú. En
þarna eru samt þúsundir horn-
síla, geysimikið. Og áll held ég
að sé þarna líka. Hér áður og
fyrr, áður en ég kom á stöðina
árið 1922, þá veiddu Karl
"Bjarnason og Anton ál í gildru
í Tjörninni. Þessi veiði lagðist
svo niður, en ég heyrði, að þeir
hefðu orðið varir við ál ekki
alls fyrir löngu, þegar þeir voru
að hreinsa slý úr Tjörninni. Ja,
þeir eru ekki vandlátir að geta
lifað í þessu gruggi. — Einu
sinni gerði ég tilraun til fisk-
ræktar í Tjörninni, keypti þá
lifandi silung, sem þeir seldu á
planinu hjá Ellingsen. En sil-
ungurinn var vandlátari en áll-
inn. Ég keypti fjóra, sleppti
þeim hér við stöðina og ætlaði
að fylgjast met þeim við L akk-
ann. En >iti menn. Þeir voru
ekki búnir að vera margar mín- .
útur í Tjörninni, þegar þeir
flutu uppi — og voru steindauð-
ir. Siðan hef ég ekki gert til-
raun til þess að rækta fisk 1
Tjörninni. Ég held að það sé til-
gangslaust. Þótt Tjörnin sé fal-
leg, þá geri ég ekki ráð fyrir að
vatnið í henni sé nokkurri
skepnu heilnæmt.
10 lesbók morgunblaðsins
26. tölublað 1969