Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1963, Page 12
Þýzkir hermenn leita á verkamönnum í einni vopnaverksmiðjunni, sem Þjóðverjar ráku í Gyðingahverfinu í Varsjá. f pessum verksmiðjum fengu Gyðingar vopn til uppreisnarinnnar. I HETJURNAR | Framhald af bls. 1. Inn í hverfinu var gamall rabbí og kona hans, sem höfðu verið rekin úr húsinu sínu fyrir utan Varsjá og fengu nú að hírast i einu horninu í eldhús- inu hjá nágranna okkar. Kona rabbís- ins grét og kveinaði og grátbað mömmu að gefa sér kartöfluskræling. Þá gerði mamma það viljandi að skræla kart- öflumar þykkar en hún var vön, og gefa henni skrælinginn, vel vitandi, að þá fengi börnin hennar minna, sem því svaraði. En hvar getur hún nú fengið jafnvel þynnsta kartöflu- skræling handa sér og litla bróður mín- um? Nú er ekki einu sinni hægt að leita í sorptunnunum. E g geng fram með múrnum, sem klýfur Lesznogötu. Þar eru þýzkir varð- menn með fárra skrefa millibili, og svo sjálfboðaliðar frá Ukrainu, Litháen, Lettlandi og Eistlandi og svo nokkrir pólskir lögregluþjónar. Tveir þýzkir lög reglumenn reka ungan Gyðingadreng á undan sér með byssustingjunum. Hann slapp út úr hverfinu gegnum ræsin, en var gripinn fyrir fáum mínútum, þegar einhver æpti: „Júði.“ Það tók mig sex klukkustundir að skreiðast þúsund skref, þegar ég skreið gegnum skolpræsið. Þegar ég kom út í dimmunni, var ég forugur upp fyrir haus. Skinnið á lófunum og olnbog- unum var núið af mér á ósléttum stein- steypupípunum og allt hold mitt var eins og í eldi. Mér fannst fyrst ég vera hetja, en svo langaði mig bara að hverfa inn í mannþröngina og fela mig. Nú get ég ekkert aðhafzt og ég græt með sjálfum mér. Þjóðverjarnir hafa lokað útganginum úr skolpræsunum með gaddavír, og sett þar karbíd, sem í rak- anum gefur frá sér gufur, sem mundu kæfa hvern þann, sem væri þarna inni fyrir. Ég geng eftir Tlomackagötu þar sem Aðalsamkunduhúsið stóð. ^"að vantar ekki hirðusemina hjá Þjóðverjum: Þegar þeir lögðu sprengi- efnið til að eyðileggja samkunduhúsið, fóru hermennirnir í húsin (utan hverf- isins) og réðu íbúunum til að hafa gluggana sína opna, svo að rúðurnar brotnuðu ekki. Ég veit ekki hvað rak mig áfram, en ég gekk eftir Krasinskitorginu. Ég sé brennandi hús og Þjóðverja, sem eru að elta fólk og reka það saman. „Réttu megin“ við múrinn hafa börn verið að leika sér og lítill hópur af fólki að h«orfa á. Gömul kona signir sig og fer með faðirvorið. „Verði þinn vilji." Him inninn er blár og sólin skín. Hvernig er hægt að gera vilja Guðs? Ég kaupi mér eitt smábrauð, en get ekki komið því niður. Ég sting því í vasann. Mamma og bróðir minn hafa ekkert brauð. Rétt þarna hjá, í Dlugagötunni, er kirkja, sem ætluð er Þjóðverjunum. Hvernig biðjast þeir fyrir? Er Jesús orðinn Aríi? Fram með múrnum, alla leið að Mur- anowskitorginu, blasir við sama mynd elds og eyðileggingar og dauða. Þýzku „hetjurnar“ eru að berjast við leifarnar af Gyðingunum, sem einu sinni voru allt að því hálf milljón talsins. í septembermánuði 1939 var ég I nokkrar nætur að fylgja pólskum her- mönnum, sem voru að hörfa að vestan, þreyttir og gangandi eins og í svefni, oft berfættir en sjaldan vopnlausir. Einn dátinn sagði við mig: „Það er ykk ur Júðadjöflunum að kenna, að við er- um að bíða ósigur í þessu stríði“. Svo datt hann niður, uppgefinn. Fyrir ofan húsþökin get ég séð rautt og hvítt fiagg og blátt og hvítt flagg, hlið við hlið, blaktandi eins og í ögrun- arskyni, áður en Þjóðverjarnir draga þau niður. Dálítill hópur af fólki er einnig að horfa á þau. Það talar lágt, rétt eins og það væri við jarðarför. Ég heyri ung- an mann segja: „Loksins tekst þeim að ganga frá þessum óþjóðalýð." En gömul kona snýst að honum og æpir: „Guð mun refsa þér fyrir þetta guðlast, svín- ið þitt.“ Og einhver segir: „Það er sagt, að þeir hafi mann með riffil uppi á þakinu“. Einn riffil. Á móti herafla Þjóðverja. Ég er alveg að kafna, en ég verð að halda áfram. En það gæti vakið athygli á mér. Það þarf ekki annað en einn krakki æpi: „Júði“ og sam- stundis er úti um mig. Ég verð að fara heim, ef einhver skyldi gá að mér. Það er fólk í þessu víti hinu- megin við múrinn, sem veit heimilisfang mitt og kann að þurfa á mér að halda. En nú er bara möguleikinn orðinn lítill. Bróðir minn, sem er pólskumegin við múrinn kann að koma að heimsækja mig, ef hann heldur, að það sé óhætt, Fyrir mörgum mánuðum gátum við í félagi náð eldri systur okkar og yngri bróður út úr hverfinu. En önnur systir okkar og tólf ára bróðir, voru gripin af Þjóðverjum og myrt. Þeir höfðu fyrr barið Abraham með byssuskeftum. Þeir höfðu náð í hann, þegar hann reyndi að komast gegnum þýzka vörðinn til þess að ná í mat utan múrsins. Hinn bróðirinn, sem var sautján ára, fékk erfiðisvinnu í Terespol, um það bil 85 kílómetrum fyrir austan Var- sjá, og komst þangað á pappirum, sem Janec Topczewski hafði gefið honum og voru á hans nafni. Áður en við skildum, lofuðum við hvor öðrum því að gefast aldrei upp. En nú ar ég svo þreyttur og mér er óglatt. Janec Topczewski var í nauðungar- vinnu í Þýzkalandi 1940 og vann við hlið ina á Þjóðverja nokkrum. Þeir urðu kunningjar, og Janec, sem tókst stundum að ná sér í aukabita, gaf Þjóðverjanum af honum með sér. Loksins komst Janec eftir margar þrautir til Varsjár og nokkr um dögum eftir að þangað kom, sá hann mann, sem hann þóttist kannast við, í einkennisbúningi lögreglumanns, á verði við múrinn um Gyðingahverfið. Þetta var vinur hans, Þjóðverjinn, og Janec spurði hann beinum orðum — sem gat annars verið hættulegt — hvernig hann gæti tekið þátt í svona svívirðilegu at- hæfi — hvernig hann gæti fengið af sér að skjóta fólk, sem var að reyna að sleppa úr þessu víti. Og Þjóðverjinn svaraði: „Mér þykir nú ekki gaman að því, en ég verð að hlýða“. Janec hitti hann nokkrum sinnum eftir þetta og í skiptum fyrir heima- bruggað vodka, fékk hann hjá honum dálítið af mjóum riffilkúlum, sem við smygluðum svo inn í hverfið, yfir múr- inn. Þjóðverjinn sagði, að þetta væri betra en að berjast á austurvígstöðvun- um, þar sem hér væri tiltölulega gott öryggi og þægilegt líf í Varsjá. Það er orðið dimmt og Genia er komin að heimsækja mig og við sitjum þegj- andi í myrkrinu, til þess að vekja ekki eftirtekt. Genia er fjórtán ára og hefur sloppið út úr hverfinu. Bróðir hennar sagði henni, hvar ég hefðist við. Ég kom henni í vinnu, en hún var uppgötvuð og varð að strjúka. Nú sitjum við saman í myrkrinu og bíðum. Þriðjudagur 20. apríl 7943 E g hef ekkert sofnað alla nóttina, en hef sammælt mig við bróður minn og við förum heim til vinafóiks okkar í Okopowastræti, andspænis Feifer-leður- verksmiðjunni. Úr glugganum á ann- arri hæð, gegnum rifu milli gluggatjald- anna get ég séð þýzka hermenn. Þeir eru með vélbyssu í stellingu, að baki verk- smiðjunni og eru að skjóta á dauð, og að því er virðist, auð hús og kveikja í þeim. Þá kemur í ljós maður í einum efsta glugganum á sex hæða húsi, sem stend- ur í björtu báli og eftir nokkurt hik hleypur hann út um gluggann. Henry og Janina S. og faðir þeirra, Þýzkir hermenn á eftirlitsferð um brennandi Gyðingahverfið meðan á bar- dögum stóð. Stanislaus S., eru öll grátandi og hafa verið að biðjast fyrir í hálfum hljóðum. Bróðir minn tekur mig í fang sér og reynir að stöðva grát minn, en sjálfur getur hann ekki ráðið við sín eigin tár. Mikið er Stanislaus S. hugrakkur mað ur. Eitt ljósið, sem skín á dimmum tím- um. Hann er um sextugt og hefur þar til í dag, unnið í leðurverksmiðju, sem er staðsett í Gyðingahverfinu. Hann hafði sérstakt leyfi, en í stað þess að fara inn í hverfið um hliðið 1 Dzikagötu, eins og stóð á kortinu hans, var hann vanur að láta eins og hann væri að vill- ast og fara inn um hliðið í Gesiagötu, og gat þannig farið fram hjá núsinu, þar sem við áttum heima og þar sem móðir mín og litli bróðir minn eru enn í fel- um, af því að börn og gamalmenni eru þar ekki lengur leyfð. Stanislaus S. var vanur að rétta að þeim stórt brauð, þykkt smurt, og stundum jafnvel mjólk- urflösku. etta átti að vera hádegisbitinn hans sjálfs, og svo varð hann að svelta allan daginn, af því að Þjóðverjarnir litu nákvæmlega eftir öllu, sem menn báru á sér. Ef upp hefði komizt um hann, hefði hann verið skotinn tafarlaust. Við vorum að vona, að einhvern tíma gætum við fundið ráð til að koma móður minni og bróður mínum út úr hverfinu, en nú er engin von um það lengur. Vorsólin skín enn, en þykk reykjar- ský hanga yfir húsaþökunum. Öðru hverju heyrist geltið í vélbyssunum og einstöku sprengingar fallbyssukúlna eða handsprengja. Hvað get ég gert? Múrinn er svo þétt umkringdur, að mús gæti ekki sloppið gegnum hann. Ég fer út á götuna og inn í eina kirkj- una. Þögnin þar er ótrúleg. Ég get ekkert hugsað, en ég lít á Kristsmynd, og spyr sjálfan mig: „Hversu oft er búið að krossfesta þig? Hvað hefur komið fyrir andlegu leiðtogana? Eða Rauða kross- inn? Eða þýzku þjóðina? Hvar er rödd páfans? Hafa allir þessir fundið þægi- lega aðferð til að leysa Gyðingavanda- málið, eins og okkur hefur alltaf grun- að? Hafa þeir, eins og Pílatus, þvegið hendur sínar?“ Guð minn góður. Einnig þína þjóð er verið að brytja niður. Hvað verður um mig? Er ég að guðlasta? Ég- má ekki gráta, því að það gæti komið upp um mig. Hví hefur þú ýfírgefið okkur? Ég er vakandi, en mig dreymir samt. Og í draumnum vona ég, að verði ég gripinn, þá verði ég skotinn hreinlega gegnum höfuðið og á hreinum stað, svo ég detti ekki í forina. Eiga draumar ungs manns að vera svona? Þriðjudagur 27. apríl 7943 K-lukkan fimm í dag átti bróðir minn að koma. Hann heitir Moses, en gengur nú unJir nafninu Jan ZytnewskL En klukkan verður bæði sex og sjö og ekki kemur hann. Mér er illt og hræði- lega óglatt. Brátt er komið sólarlag. Hefur hann tafizt, eða .... Ég þori ekki að hugsa. Sofið get ég ekki. Miðvikudagur 28. apríl 7943 I morgun fór ég út að gá að hon- um. Hann var bara hálfu öðru ári eldri en ég, en hvílíkur styrkur fyrir mig; Hvernig kemst ég nú af? ViS lofuðum að gefast ekki upp, þó að annar félli, Það er hægast að lofa. Hægast að segja það. Ég kemst að því, hvað komið hefur fyrir. Hann var á gangi með Jan P. eftir ChlodnagötunnL Þýzkur lögreglu- 12 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 26. tölublað 1963

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.