Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1965, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1965, Page 11
s I 9 9 i S • i x P e n s a r • i Eg þarf að taka í lurginn á honuim! — Mér heí- ur verið sagt, að þú dundir við íþrúttir á sunnudöfgujm! — Það er haugalygi! Ég hef ekki lam ið hana heila eilífð! — Hví er ég að skipta mér af þessu! Dýrasögur The Silent Miaw. A Manual for Kidens, Strays, and Homeless Cats. Translated from the Feline and Edited by Paul Gallico. Heinemann, London. 1964. 25s. Uppruni þessarar bókar er furðulegur, handritið fannst á dyraþrepum að húsi bókaútgef- anda nokkurs, sem gefur út með- al annars kennslubækur. Handrit- ið var á dulmáli, vélritað. Rithöf- undurinn Paul Gallico hefur góða þekkingu á ýmiskonar dulmáli og því sneri útgefandinn sér til hans og bað hann að athuga hand- ritið. Hann fann loks lykilinn, sem líktist þó ekki venjulegum dulmálslyklum. Og til að gera langa sögu stutta varð sú raun, að handritið er líkast til skrifað af skilgóðum ketti. Þetta er hand- bók fyrir ketti, bæði húsketti, villiketti og flækinga. Hér er allt eðlilega skrifað frá sjónarmiði katta og fyrir ketti, en þótt svo sé getur fólk dregið nokkra lær- dóma af lestri bókarinnar, kettir virðast miklir mannþekkjarar og staðfestir höfundur það rækilega. Bókin er engu síður lýsing á homo sapiens en köttum. Því mið- ur hefur ekki tekizt að finna höf- undinn. Útgefandi hefur gefið handritið samvizkusamlega út og bókin er myndskreytt ljósmyndum Suz- anne Szasz og þær auka vissu- lega mikið gildi bókarinnar. Þetta er miög ánægjuleg bók og fallega Útgefin. Saga A History of Orgies. Burgo Part- ridge. Spring Books, London 1964. 7/6. Svallveizlur er hugtak yfir drykkju og kynferðissvall. Orgian er nokkurs konar öryggistappi fyrir bældar hvatir og þvinganir. Því hlýtur orgían að vera hýste- rísk i eðli sínu. Það hafa verið margar bækur samdar um kyn- hegðun þjóðflokka og þjóða, en þetta er fyrsta bókin um orgíur í merkingunni kynferðissvall- veizlur. Höfundurinn rannsakar ástæðurnar að orgiunum, þjóð- félagslegar og sá’fræðilegar. Þessi tegund afþreyingar hefst með Grikkjum i tengslum við trúar- brögðin. Með Rómverjum verður srgían grófari og blandin mýstik og kvalalosta. Neró, Caligula og Tiberíus héldu slík svallsam- kvæmi. Kynferðissvall og kvala- Iosti fóru að jafnaði saman með Jtómverjum. Á miðöldum eru nokkrir páf- anna frægir af sliku, svo sem Alexander Borgía og Benedikt IX. Síðar eru frægastar orgíurn- ar, sem Michelangeló stóð að, samkvæmt frásögnum Cellinís. Á 18. öld færist þetta óeðli í vöxt og á dögum Viktoríu drottningar voru svallveizlur haldnar á ólík- legustu stöðum. Höfundur gerir sér mikið far um að rekja ástæðurnar til svall- veizlanna og geta sumar kenn- ingar hans stundum orkað tví- mælis. En bókin er lipurlega skrifuð um efni sem kitlar marga, ef ekki flesta. Abschied von Dreitausend Jahren. Eine Geschichte Europas. Al- fred Rapp. Deutsche Verlags- Anstalt, Stuttgart 1964. DM. 19.80. Þetta ermjög persónuleg bók, sem flytur kenningar, sem eru að nokkru frábrugðnar viðurkennd- um sögukenningum. Höfundur er ekki myx-kur í máli. Hann álitur að saga Evrópu hafi markað heimssöguna allt frá því um 1000 f. Kr. og þar til nú. En nú eru þáttaskil. Evrópuríkin hafa ekki lengur forystuna um mótun sög- unnar. Þau skil urðu að lokinni síðustu heimsstyrjöld. Síðustu þrjú þúsund árin hafa ríki risið og hnigið. Rómaríki og arftaki þess Aust-rómverska ríkið og kaþólska kirkja miðalda, ríki Franka, ríki rússnesku zaranna. Spánn, Frakkland, England og Sovét-ríkið, allt voru þetta og eru evrópsk ríki. Höfundurinn fjallar um pólitíska og efnahags- lega sögu Evrópu og hikar ekki við að fara ótroðnar slóðir i skýringum sínum á atburða- rás sögunnar. Hann telur að áhrif Evrópu taki að sjatna um alda- mót og misvitrir landstjórnar- menn og skammsýnir pólitíkusar hafi átt mestan þátt í þeirri styrjöld, sem hann nefnir „þá heimskulegustu sem nokkru sinni hafi verið háð“ 1914—18. Það er líkast til að eintómir meðalmenn stjórni ríkjum Evrópu á þessu timabili. Sérstaklega telur hann þetta áberandi í Þýzkalandi, þar sem breytt hafi verið gegn þeirri utanríkisstefnu sem Bismarck mót aðPog sem hefði leitt til langvar- andi friðar i Evrópu, hefði henni verið framfylgt. Höfundur kemur víða við í riti sínu og skrifar mjög lipurlega og skýrt og af mikilli þekkingu og skaphita. Þessi bók minnir um margt á bók Parkin- sons, East and West, sem kom út i fyrra. The Decline and Fall of the Rom- an Empire. Edward Gibbon. An Abridgement by D. M. Low. Penguin Books in Association with Chatto and Windus. 1963. 15s. Það er vandasamt að gera úr- drátt úr bókum, þó einkanlega klassískum ritum, sem teljast til þess bezta. Þessi úrdráttur var gerður í þeirri von (kom fyrst út hjá Chatto og Windus 1960) að fleiri myndu ráðast til að lesa ritið, ef stytt væri. Allt ritið tel- ur venjulega sex bindi og oft fleiri. Þeir atbuiðir sem bókin rekur eru þeir markverðustu og afdrifaríkustu sem gerzt hafa i Evrópu og Austui'löndum nær. Og hvergi er þessum atburðum bet- ur lýst en í riti Gibbons. Það er viðtelcin skoðun, og með réttu, að þetta rit sé skrifað af eindæma þekkingu og ritsnilld. Þótt margt hafi komið í leitirnar síðan og geysimagn ritað um þessi efni, þá er rit Gibbons i fullu gildi. Þvi er full þörf á því að gera rit- ið sem flestum aðgengilegt, og þá helzt á þann hátt að stytta það. Með því munu þeir mörgu, sem lesa það stytt, einnig lesa það óstytt. Madame Necker lýsir ritinu á sinni tíð sem brú er tengdi sam- an fornöldina og nútímann, og þetta má segja enn. Gibbon var fæddur 1737 og fyrsta bindi Hnignunar og hruns rómverska ríkisins kom út 1776 og lokabindið 1788. Úrdráttarhöfundur tekur heila kafla og brot úr köflum, og frá þvi, sem sleppt er, er skýrt i stuttu máli, skipti það meginmáli. Þessi úrdráttur hefur fengið ágæta dóma. enda samantekinn af ágætum fræðimanni. S'ðfræði ........... Morality and Beyond. Paul Till- ich. Routledge and Kegan Paul, London 19.64. 14s. Höfundurinn er einn frægasti guðfræðingur, sem nú er unni. Hann hefur með hinum fjöl- mörgu ritum sínum og fyrirlestr- um náð eyrum fleiri en flestir að’-ir núlifandi guðfræðingar. f þessu kveri fjallar dr. æinieh xim aðalatriði allrar siðfræði. Hann telur að siðfræðin sé of oft skorin úr tengslum við guðfræð- ina, til þægindaauka fyrir sið- fræðinga. Hann álítur að siðfi'æði og guðfi'æði séu óaðskiljanlegar. Siðfræðin hljóti alltaf að vera hluti og þáttur guðfræðinnar. Hann átelur hinar rutlkenndu Jóhann Hannesson: ÞANKARÚNIR I FLEIRUM en Gunnciri á Hlíðarenda sýnist. hlíðin fögw þegar hún er gróið land. En furðuilaga fáum mönnum renn.ur til rifja að sjá uppblásnar hlíðar með fátæ.fcleg!um gróðurleiif- um frá liðinni tíð. Árlega vinnur uppblásturinn mikið verk i landi vtoru. Umtfangslitiar, en þó allþyxxkar gró&urspildur hverfa sums staðar á tveim til þrem áratugum, ag stöðugt skalast ag fýkur mold úr öðruim, sem stærri ei'u. Einkum á þetta við Suðurland. Erfitt verður landgræðendum fram- tíðarinmaT að veita viðnám eftir að gróðurmoldin góða er far- in veg allrar veraldar. Ekki, nægir auður og tækni, heldur þarf bæði manndóm og vakandi huga til að græða upp ör- foka land. Þótt oss hafi í svip tekizt að klæða nokkra mela og sainda viðkvæmri gróðui'slseðu, þá má ekki þar við staðar nema. Eyðingaröflin bíða búin til að sækja fram á ný ef frá er horfið eftir fáeina sikjóta sigra í fyrstu iotu. Uppblásturinn í ríki náttúi'unnar er ekki aðeins íslenzk ógæfa. Hann er heimsvandamál. Soil conservait ioin, jarðvegs- varðveizla, er mál, sem hugsjónafélög erliendis láta til sín taka, og einnig stjórnarvöld héraða og ríkja. — Sumar borg- ir, sem Marco Poilo gisti fyrir öldum, eru fyrir ailllöngu sokknar í sand. Einnig hafa staðvindiar frá Mongóliu velt sandi yfir blómleg héruð, en feykt jarðvegi annarra viðs vegar, og á köflum hatfa þeir kaffært Múrinn mikla. — Það kvað vera orðtæiki hjá Mongólum: „Þegar Kínverjair koma, þá fer rnoldin" Vér höldum e.t.v. að þetta sé ranglátur áróð- ur, en nóg er til af myndum þessu tiil staðfestingar. Unguæ akuryrkjubóndi tekur að piægja rricnnigóilsfct beitiland og sá í það. Hann lifir sœmileigu Líifi í nokkur ár. Þá keanuir óvenju- langur þurrkur og drepur við-kvæiman nýgræðinginn á akri hans. Eftir vei'ður flag með Laiusri mold. Þá fer bóndinn og bær hans hrynur í rúst. Svo laggur moldin af stað, og upp- biástursbletturinn stækkar Líkit og logi, sem borinn hefir ver- ið að þurrum bálkesti. Ég hef spurt rússniesfcian fræðimann tiðinda af vatninu í Kaspíaihafi. „Það læfcikar í því á hverjum degi“, sagði hann. „Og vísindamenn vorir vinna stöðugrt að lausn á þeim vanda, sem þar af leiðir. Fyrirhuigað er að veita í Voilgu ám, sem nú renna norður til íshafsins“. Hvað sem öðru Mður, þá hugsa Rússar nútímians iengra en tii iíðandi stundar. Undir eyðisöndum Asiu má allviða finna leifar af áveitu- kerfum landa, sem áður voru akrar, en eru nú eyddir af dauðum foiksöndum. Orsakir hafa ýmsar verið. Sityrjaildir tyddu jarðræktandi þjóðtfjpkkium, offjölgun átti sér stað í beitilöndum, sveifilur urðu í loftslagi, einkum rakamagni loftsins, langvinnir þuiTkar tæmdu stöðuvötn og skildu eftir leirfláka eða saltsléttur. Kasp'íahafið er á sömu leið og þessi hoi'fnu vötn, og það mun hverfa, ef ebki er að gert. Hve margt á rætur sínair að rekja til sfcammsýnna manna og ill- viljaðra og hve margt til náttúrlegra orsaka, er ekki auð- veit að greina. En eyðingaröfl manna og ólífrænnar náttúm geta tekið höndum saman til tortíminigar lífrænni niáttúru og mannabyggðum. Blóðþyrstir (herforingjar sóittuist etftir hauskúpu.m fórnarlaimba sinna til að hlaða vörður meðfram hernaðarleiðum sínuim. Þannig fór Tímur Lenk að. En vetrar- vindarnir fyLgdu fast á eftir og huldu sandi hús oig akra þeirra, sem úti'ýmt hafði verið, líkit og þeir vildu meina ár- ásarmönnum að njóta nokkurs ávinningB af sigrum þeirra. Til viðbótar kjarnasprenigjum, iðnaði og „mannfjölda- spremgjum“ má nefna uppblásturinn þriðju eða fjórðu spnengj- una, sem ógnar framtið uppvaxandi og komandi kynslóða, og veldur óvissu um öryggi manna og hamingju. Það skiptir ntieira méli en ætla mætti að vel takisit til um landgræðslu austur i Asíu. Að vísu er ekki upphláslurinn annað eins tor- tímingarafl og iðnaður og hagræðing — iðnaður h’eðuir hærri hauskúpuvöi'ður en Timur Lenk, einkiuim of til kemur hag- ræðing —, en það skiptir máli fyi'ir velferð hinna hógværu að uppblástur verði stöðvaður. Hvort meira minnkar ár- lega að tiltölu við fólksfjölda, vatnið í Kaspíahafinu eða moldin í börðum, rofum, flögum og skurðum meðfram vegum hjá oss, þá varðar það miklu fyrir friðsamlegt líf í framitið- inni að breyting verði á báðum þessum svæðum. kenningar, sem nýguðfræðingar muninn á fcenningum prótestanta bera fram um kristindóm. Hann og kaþólikka, afstöðu þeirra til telur upphaf alls góðs í ódauð- siðrænnar nauðsynjar. Þetta er legri sál mannsins, sem sé sköpuð vekjandi kver, byggt á miklum af Guði. Einnig ræðir hann mis- lærdómi og skörpum gáfum. 8. tbl. 1965. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.