Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1965, Síða 8
Hið þriðja stórvirki og langtum
mesta sem N. H. hefir nú með höndum
er bygging stórrar nýrrar verksmiðju til
þess að framleiða alúmín. Er þar ekki
smátt í böggum, því að auk verksmiðj-
unnar, sem verður ærið fyrirtæki, er
Norsk Hydro að virkja fallvötn í mikl-
um mæli til þess að framleiða orku til
rekstursins.
Félagið hefir fyrir alllöngu eignazt
vatnsréttindi í Röldal og víðar inn til
fjalla, þar sem mætast Rogalands-fylki og
Hörðaland. Er þar hafin virkjun, stíflu-
gérð og fleira þar að lútandi, með stór-
um tökum. Stofnað hefir verið sérstakt
félag um þessar framkvæmdir, Röldal-
Suldal Kraft A/S, en að því stendur
Norsk Hydro að hálfu og norska rikið að
hálfu, þó með því skilorði að Norsk
Hydro á að eiga þess kost síðar að leysa
inn hlut ríkisins. Norsk Hydro annast
allar framkvæmdir við að byggja orku-
verin og aðalafllínu til sjávar til Sauda
í Ryfylke. Byggð verða S orkuver, sem
samanlagt munu framleiða 385,000 kw.
Áburðarverksmiðjur Norsk Hydro í Glomfirði, skammt norðan við norðurbaug. Þaðan var flutt fljótandi ammóníak tii
áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi.
keypt 200 ha lóð á Karmöy, og þar rís
nú hin mikla verksmiðja, sem talin er
vera að stofni mesta iðnvæðingar-fyrir-
tæki sem til þessa hefir verið efnt til í
Noregi. Fyrsti áfanginn er miðaður við
að ársframleiðslan verði 60—80 þúsund
smálestir hráalúmíns, og að um 800
manns vinni við fyrirtækið.
Um 700 manns vinna nú að fyrstu
framkvæmdum á Karmöy, þar sem
meðal annars þarf, aðeins til þess að
ryðja og jafna grunninn, að sprengja um
600,000 rúmmetra af föstu bergi.
Aætlað er að orkuverin í Röldal og Sul-
dal kosti um 370 millj. n. kr., og alúmín-
verksmiðjan á Karmöy um 600 millj. kr.
Það lætur að líkum að slíkt risafyrir-
tæki muni hafa mikil áhrif á atvinnulífið
á Karmöy. Vil ég víkja að því fáeinum
orðum.
Eyjan er 177 ferkm að stærð, láglend
er hún, mesta hæð yfir sjó 118 m. Samt
er landið klettótt víða, klappahryggir, og
ræktað land, mýrarsund og lyngmóar, á
milli. Karmöy skiptist í 5 hreppsfélög og
tvö bæjarfélög. íbúatala þeirra allra er
um 11,500. Nú hefir eyjan öll verið gerð
að einu hreppsfélagi.
Laugardagskvöld í Reykjavík .. ..66 44
Karmöy-búar hafa löngum stundað
sjóinn meira en aðra atvinnu, þótt bú-
skapur sé töluverður á eynni, enda er
þar veðursælt og mildir vetur, þótt oft
gusti af hafi. Margir sjómenn úr þessum
sveitum hafa sótt og sækja síldveiðar
hér við land. Á ýmsu hefir leikið með
afkomuna, og oft verið þröngt í búi, þegar
sjórinn hefir brugðizt. Er því að vonum
er Karmöy-búar hyggja gott til hinna
miklu framkvæmda og stóriðju á vegum
Norsk Hydro. En þetta á raunar við um
fleiri en Karmöy-búa. Haugasund og ná-
grenni þeirrar borgar er ekki í meiri
fjarlægð frá verksmiðjuhverfinu en að
verkamenn þaðan geta auðveldlega sótt
vinnu í verksmiðjunum, og þessi mikla
atvinnuaukning og starfsemi hlýtur að
snerta Haugasund mjög sem miðstöð
samgangna og verzlunar í Haugalandinu,
sem svo er nefnt.
N-
1' u mun eg venda kvæði mínu i
kross um framkvæmdaferil Norsk Hydro,
og snúa heim á leið, þangað sem mikið
og margt er rætt um stóriðju.
Það bar við ekki alls fyrir löngu að
skip frá Norsk Hydro kom til Gufu-
ness, færandi varninginn heim, þessu
Ævintýriö í Vesturdal
Frá Sauda leggur N. H. tvöfalda afl-
línu suðvestur til Karmöy, utan við
Haugasund, þar sem áður hét Körmt.
Eru línur þær, sem félagið leggur allt frá
orkuverunum, 2Í5 km að lengd, og áætlað
að þær kosti um 50 millj. króna. Eyjan
Körmt er okkur kunn úr sögum, þar
gerðust þeir atburðir er Þórarni Nefjólfs
syni tókst að tefja svo líflát Ásbjarnar
Selsbana að Erlingi á Sóla vannst tími
til að koma á vettvang og bjarga Ás-
birni úr höndum Ólafs konungs. Á Stang-
arlandi á Körmt bjó hann lika sagna-
ritarinn Þormóður Torfason, þar sem nú
er kaupstaðurinn Koparvík.
H in tvöfalda afllína frá Sauda til
Karmeyjar verður svo við vöxt, að hver
lína á að geta flutt 500,000 kw orku,
spennan verður 300 þús. volt. Af öryggis-
ástæðum eru afllínurnar tvær, annað
þykir ekki viðhlítandi, á svo miklu velt-
ur að aldrei verði straumlaust í verk-
smiðjunum, sem nota aflið, þótt bilun
verði á línu. Er línurnar geta flutt 500,-
000 kw orku er auðsjáanlega miðað við
aukna orku og framleiðslu er fram líða
stundir, og sennilega innan tíðar. Við
Karmsundið verður hafið milli mastra
afllínunnar 850 m, línumöstrin við sundið
verða 90 m há, svo að skipaumferð um
sundið, sem er mikil, verði fær öllum
stórskipum.
Á Körmt byggir félagið Alnor A/S
alúmín-verksmiðjur. Þetta félag er sam-
eignarfélag Norsk Hydro og amerísks fé-
lags, Harvey Aluminium. Alnor hefir
Eftir Árna
FYRIR nokkru flutti ég tvö er-
indi í Ríkisútvarpinu, er ég nefndi
Ævintýrið í Vesturdal. Fjölluðu
þau um félagið Norsk Hydro,
stofnun þess og viðgang sem stór-
G. Eylands
Aðalstíflugarðurinn til vatnsmiðlunar
verður byggður í Valdalen, 85 m hár og
400 m langur. Við það verður sá dalur
lagður undir vatn um aldur og ævi. Er
bændum í Röldal mikil eftirsjá í því,
leggja aflleiðslur yfir fjöll og firði norð-
ur til Husnes í Harðangri. Þar er félag,
sem að mestu er erlent að fjármagni, að
byggja alúmín-verksmiðju. Hafa risið
allmiklar pólitískar öldur í Noregi út af
því fyrirtæki; telja margir, að iðnaðar-
málaráðuneytið og stjórnin hafi samið
mjög af sér við hina erlendu aðila. Senni-
lega gætu íslenzkir aðilar nokkuð af því
máli lært.
Verksmiðjur Norsk Hydro á Rjúken í Vestfjorddal á Þelamörk.
iðjufyrirtækis. Rakti ég þar nokk-
uð afrekaferil þeirra manna, er
mest komu þar við sögu, fyrst og
fremst Sam. Eydes, verkfræðings,
og Kr. Birkelands, próf., sem
fyrstir leystu þá þraut að vinna
köfnunarefni úr loftinu.
í lok hins síðara erindis veik ég
nokkuð að stóriðjuhugsjónum
Einars Benediktssonar og því
sambandi, sem kann að hafa verið
á milli fyrirætlana hans og hug-
mynda annars vegar og fram-
kvæmda Norsk Hydro hins vegar.
Þess hefir verið farið á leit við
mig að ég birti þann hluta erindis-
ins í Lesbók. Fer síðari hluti er-
indisins hér á eftir, þótt eigi verði
við því gert, að hann er slitinn
bagalega úr samhengi, en erindin
sem heild eru of löng til birtingar
í Lesbókinni.
þar eð Valdalen er einn af beztu og fræg-
ustu seljadölum Noregs. Eru 17 sel í daln-
um, og er búið þar á sumrum við geit-
fénað, en mjólkin unnin og gerður hinn
góðfrægi Röldals-geitostur. Leggst nú sú
framleiðsla niður á þessum stað. Röldal
Ysteri hefir á undanförnum árum tekið
á móti 250—450 þús. lítrum af geitamjólk
á ári, eftir árferði og búskap. Mest munu
þó gestir og gangandi, sem til fjalla
sækja, sjá eftir Valdalen, en stóriðjan og
orkan fer ekki að slíku.
Þegar orkan frá Röldal er komin til
strandar í Sauda, í botni Ryfylke-fjarð-
anna, skilja leiðir. Þaðan lætur ríkið
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
25. tbl. 1965