Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1965, Side 8
M*
■M*
20 ára starf í augnabönkum
n£
I ú eru liðin nákvæmlega tutt-
ugu ár síðan fyrsti augnabankinn
var stofnsettur í Bandaríkjunum. Á
þessu tímabili hafa hundruð þúsunda
manna í mörgum löndum ánafnað
augu sin, til þess að hjálpa til að
gefa blindu fólki sjónina aftur, og
hornhimnuflutningur, sem þessi augu
eru notuð til, er framkvæmdur um
allan heim.
f Bandaríkjunum einum hafa
meira en 100.000 manns gefið augu
sín, og meira en 70.000 hafa fengið
sjónina aftur vegna þessa. En ennþá
eru óteljandi einstaklingar um allan
heim — margt af því börn — sem
gætu fengið sjónina aftur með horn-
himnuflutningi.
Ráðstefna, sem nýlega var haldin
í Washington, tók til meðferðar starf-
semi augnabankanna í heild tekið.
Þetta var fyrsta Hornhimnuráð-
stefnan; hún stóð yfir í fjóra daga
og var sótt af augnlæknum frá 36
löndum. Það, sem um var fjallað, var
m. a. tækni við geymslu og tilflutn-
ing augna, framfarir í skurðlækn-
ingum og rannsóknir, svo og starf-
semi Al'þjóða-augnabankans.
/\lþjóða-augnabankinn er deild
í Medico, sem er læknaþjónusta
CARE (Co-operatives for American
Relief Everywhere). Hann safnar
birgðum og sendir ókeypis gefin augu,
sem ekki þarf bráðlega á að halda
í Bandaríkjunum, til erlendra lækna,
sem þarfnast þeirra.
Bankinn hefur útvegað 928 horn-
himnur og 256 augu handa blindum
mönnum í 48 löndum, síðan hann var
stofnaður fyrir þremur árum. Hann
heldur líka námskeið í augnabanka-
tækni og skurðlækningum fyrir að-
komandi augnlækna Og félaga sína.
Eitt aðalverkefni hans er að ýta undir
stofnun augnabanka erlendis, svo að
önnur lönd þurfi ekki að treysta á
Bandaríkin á þessu sviði.
Lög og venjur á hinum ýmsu stöð-
um hindra það, að augu séu tekin
úr dauðu fólki, og á þetta einkum
við um þróunarlöndin, þar sem þörf-
in er hvað mest. Tracoma er horn-
himnusjúkdómur, sem hægt er að
lækna með tilflutningi frá heilbrigðu
auga. Áætlað er, að hann þjái 500.000
manns — aðallega í þróunarlöndun-
um.
uk Bandaríkjanna eru nú
augnabankar í Ástralíu, Bretlandi,
Ceylon, Indlandi, Pakistan, Hong
Kong, Japan, Malajsíu og Singapore.
f Bretlandi er sá helzti í Queen
Victoria Hospital, East Grimstead,
undir stjórn Sir Benjamin Rycroft —
og víðar er verið að koma slíkum
stofnunum á fót.
Konunglega blindrastofnunin hef_
ur yfir 35.000 gjafara skrásetta hjá
sér. Augnabankar voru fyrst form-
lega stofnaðir í Bretlandi árið 1952,
eftir að lög höfðu verið sett um það
efni. í Bretlandi tíðkast meira að nota
nýjar hornhimnur frekar en geymd-
ar.
Samt hefur verið fundin ný tækni
til geymslu augna, nú fyrir skömmu,
í Westminster-sjúkrahúsinu. Með
þessari aðferð er hægt að geyraa gefn
ar hornhimnur allt að því í tíu eða
jafnvel allt upp í 29 daga við -^79°C
hita. Á fyrstu timum hornhimnu-
flutnings var áríðandi að fram-
kvæma flutninginn sem allra fljót-
ast, og tíminn til að flytja nýja horn-
himnu var takmarkaður við 72
klukkustundir. Ný augu þarf að nota,
ef öll hornhimnan er undirlögð,
annaðhvort af slysi eða sjúkdómi. í
þeim tilvikum, þegar hún hefur að-
eins skemmzt á parti, duga augu,
sem geymd hafa verið og það jafn-
vel lengi.
Ekki nægir blindu fólki alltaf
hornhimnuflutningur, því að hann
kemur aðeins þeim að gagni, sem
blindir eru vegna gallaðrar horn-
himnu.
Hornhimnuflutningur er ekkert ný-
mæli í læknisfræðinni. Fyrst voru
gerðar tillögur um hann í lok 18. ald-
ar, af brezka vísindamanninum
Erasmus Darwin. En hinn mikli braut
ryðjandi á þessu sviði var þó þýzki
augnlæknirinn, dr. Arthur von
Hippel, sem árið 1887 flutti horn-
himnu úr kanínu í mannsauga. Ári
síðar framkvæmdi hann fyrsta flutn-
inginn, með góðum árangri, frá
einum manni til annars.
L æknar í mörgum löndum
héldu tilraunum áfram, en með litl-
um árangri. Það, sem stóð þeim mest
fyrir þrifum, var skortur á nýjum
Sé augnavefurinn, sem flytja skal,
heilbrigður og laus við galla, skipta
aldur gefandans, heilbrigðisástand
hans, sjóngæði eða dánarorsök engu
máli. Hornhimnur úr gömlu fólki
geta oft verið betri en úr ungu. Eina
skilyrðið er að hornhimna, sem gef-
in er, sé heilbrigð, og hana verður
að taka fáum klukkustundum eftir
andlátið og setja í þiggjandann, inn-
an tiltekins tíma.
Sjálfur hefur augnabankinn ekkert
samband við sjúklinginn. Læknar
með sjúklinga, sem þarfnast aðgerð-
arinnar, skrásetja sig hjá bankanum,
og fá svo þar nýjar hornhimnur,
eftir því sem þær eru fáanlegar.
Gefendaþjónustan starfar sem
hér segir:
Þegar gefandi deyr, og hann hefur
á sér eitthvert viðeigandi auðkenni,
tilkynnir læknirinn eða sjúkrahúsið
það næsta augnabanka og að horn-
himna standi til boða. Læknir
nemur svo burt hornhimnuna þannig
að ekki gæti neinnar afmyndunar og
á þann hátt, sem "samþykktur er af
ráðamönnum hinna ýmsu trúar-
flokka. Augun eru síðan flutt til
augnabankans í kældum geymum, og
þar eru þau rannsökuð, til að kom-
ast að raun um, að þau séu galla-
laus og heilbrigð. Samtímis eru vald_
ir tveir sjúklingar, sem næstir eru
á skrá. En þar eð sjúklingarnir þola
Sérfræðingur í augnabanikanuf skrásetur glervökvasýnishom.
augans er hægt að geyraa óskemmdan óratima.
Glervökva
hornhimnuvefjum.
Hornhimnan er einstök í sinni röð
að því leyti, að hún er eini gagnsæi
vefurinn í mannlegum líkama og
starfar sem „gluggi“ fyrir augað,
hleypir birtu í gegn og er sá eini,
sem auðveldlega er hægt að flytja
miiji manna.
ekki nema eina aðgerð í senn, verða
tveir sjúklingar aðnjótandi hinna
tveggja augna.
Þá er haft samband við augnlækn-
ana og þeir spurðir, hvort þeir geti
komið sjúklingum sínum í sjúkrahús
fyrirvaralítið. Ef allur undirbúningur
er til reiðu, eru nýju augun send
Mannsaugu sett í sérstakar umbúðir,
sem halda þeim „ferskum“ í 30 klst.
til ákvörðunarstaðar síns tafarlaust.
Ef ekki, geymir bankinn þau.
Stundum líða ekki nema tveir sól-
arhringar áður en hinar viðkvæmu
skurðaðgerðir eru komnar í kring og
tveir sjúklingar eru á góðum vegi
að fá sjón sína aftur.
Dr. Harry King yngri, forstöðu-
maður Alþjóða-augnbankans og pró-
fessor í augnsjúkdómafræði við
George Washington-háskólann, lét
þess getið á ráðstefnu, fyrir skömmu,
að takmarkaðar tilraunir með gervi-
hornhimnur hafi gefið árangur á
mönnum, en þörf sé á betra efni.
Slíkar hornhimnur, gerðar úr met-
hyacrylat eða silicon hafa gefizt vel
á tilraunadýrum.
Enda þótt skurðtæknin leyfi flutning
á hornhimnum úr dýrum til manns-
augna hefur líkami viðtakandans til-
hneigingu til að bregðast illa við þeim
sem framandi vef. Sterk meðöl eins
og cortisone og önnur bólgustillandi
meðöl eru notuð til að vinna gegn
þessum viðbrögðum, en enn er þörf
á betri stillandi meðölum, sagði dr.
King.
A uknar athuganir og rannsókn-
ir á hornhimnuflutningi verða höfuð
viðfangsefni nýrrar, mjög sérhæfðrar
rannsóknastöðvar, sem stofnuð verð-
ur fyrir 1.6 milljón dala fjárveitingu
(um 67,2 milljónir íslenzkra króna),
írá Heilbrigðismálastofnuninni banda
rísku til læknadeildarinnar í Colum-
biaháskólanum í New York.
Þessi stöð á að hafa með höndum
víðtækt rannsóknastarf, sem ein-
göngu snýst um heilbrigða og sjúka
hornhimnu. Þar verður samhæfð
rannsókna- og læknastarfsemi,
sem skurðlæknar, lífefnafræðingar,
líkamsfræðingar, lífeðlisfræðingar,
veirufræðingar, sj úkdómaf ræðingar
og ónæmisfræðingar taka þátt L
Önnur verksvið taka yfir háræða-
myndun í hornhimnunni, nýjar skurð
lækningaaðferðir, fullkomnun nýrra
gervi-hornhimna og aðferðir við að
koma þeim fyrir í auganu — svo og
veirufræði og lífefnafræði hornhimn-
unnar.
Þessi 1.6 milljón dala fjárveiting
skiptist á sjö ár, en fjárveitingin
fyrsta árið hefur verið ákveðin
$ 478.572.
Hinir ýmsu augnabankar í Banda-
ríkjunum hafa með höndum rann-
sóknir, auk hornhimnuflutningsins.
Ein þessara rannsókna hefur haft í
för með sér söfnun og geymslu gler-
vökva, hins hlaupkennda vökva, sem
augað er fyllt með. Þar sem horn-
himnan hefur losnað, er settur í aug-
að glervökvi frá hinum gefnu aug-
um, svo að þrýstingurinn eykst og
hornhimnan pressast að innri veg-
unum, þar til hún situr föst. Gler-
vökvann má geyma von úr viti, en
eftirspurnin fer langt fram úr fram-
boðinu.
IX I
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS-
31. tbl. 1965