Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.1966, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.1966, Qupperneq 2
Fyrir fáeinum árum sendi Lyndon B. Johnson alda- vini sínum, J. (James) William Ful- bright, ljósmynd, sem tekin hafði verið á ráðstefnu í Hvíta húsinu. Á myndinni sést Johnson útskýra málstað sinn með myndugri arm- sveiflu, en Fulbright situr annars vegar við borðið með dökk gler- augu, styður hönd undir kinn og virðist mjög vantrúaður á svip. Neðst á myndina skrifaði forsetinn: „Kæri Bill. Ég sé, að ég hef ekki verkað sérlega sannfærandi á þig. ■— Þinn Lyndon B. Johnson“. Ljósmynd með slíkri áritun væri ekki hægt að senda um þessar mundir. For- setinn reynir ekki lengur að sannfæra hinn gamla vin sinn. Þessir tveir menn, sem hittust áður á hverjum degi og tóku mikið tillit hvor til annars, talast ekki lengur við. Síðan Fulbright, sem er for- maður utanríkismálanefndar öldunga- deildar bandaríska þingsins, réðst heift- arlega á stefnu Johnsons i San Domingo- málinu 15. september sl., hafa þeir varla yrt hvor á annan, og síðan í október sl. hefur ekkert samband verið þeirra á milli. E INS og oft vill verða, þegar gaml- ir vinir verða sundurorða, hefur þykkja þeirra orðið ákaflega þung og greini- lega báðum sár. Johnson gengur svo langt, að hann býður Fulbright ekki lengur til opinberra veizlna í Hvíta hús- inu, og ekki þarf að taka það fram, að hann og ráðgjafar hans eru löngu hættir að sækja ráð og tillögur til Fulbrights. Johnson finnst sem gamall og tryggur vinur hafi svikið sig á örlagastundu og auðveldi andstæðingunum baráttuna, en Fulbright er eins og jafnan fyrr svo algerlega sannfærður um, að hann hljóti að hafa rétt fyrir sér, að hann lítur á úlfúð þeirra sem persónulegan harm- leik, er geti verið örlagaríkur í mann- kynssögunni. Johnson sé á villigötum; hann stefni til glötunar undir leiðsögn óhæfra ráðgjafa, meðan Fulbright og vinir hans hafi höndlað vizkusteininn. Fulbright hefur ávallt átt við slæman höfuðverk að stríða, og kunnugir menn ségja, að þessi deila hans við forsetann gangi honum svo nærri, að hann hafi aldrei þjáðst meira. Hann gleypir höf- uðverkj atöflur og róandi lyf án afláts og gengur með dökk gleraugu til þess aö verjast ofbirtu og glömpum ljós- myndavélanna. FuLBRIGHT, sem nú stendur á sextugu, er fæddur í Missouri, en er al- inn upp í háskólabænum Fayetteville í Arkansas, þar sem faðir hans varð auð- ugur maður. Fjölskylda Fulbrights á nú dagblað, skóglendi og timburverksmiðj- ur, meirihluta í banka, fasteignir og á- töppunarverksmiðju fyrir Coca Cola. Coca Cola-fyrirtækið mun hafa boðið honum að gerast sölusendiherra á heims- mælikvarða, hvenær sem hann vill drága sig í hlc frá stjórnmálum. J. WILLIAM FULBRIGIT William Fulbright varð stúdent frá Arkansas-háskóla, og tvítugur fékk hann hinn eftirsótta Rhodes-skólastyrk. Cecil Rhodes, sem Rhodesia er kennd við, á- nafnaði mestum hluta hins gífurlega auðs síns til stofnunar sjóðs, sem á að styrkja þýzka, bandaríska og brezka nemendur til náms í Oxford. 29 ára gamall varð Fulbright lögfræðingur frá George Washington-háskólanum. 1943 var hann fyrst kosinn á þing í öldungadeildinni og tók fljótlega sæti í hinni mikilvægu utanríkismálanefnd. — Árið 1959 varð hann formaður hennar, sem er ákaflega valdamikil staða. Hann getur hvenær sem er krafizt rannsóknar á hverju utanríkismáli sem honum sýn- ist, og því kom það ekki á óvart, er hann tók Víetnammólið fyrir nú á þessu ári. Þess skal getið til skýringar, að í Banda- ríkjunum gildir sú regla um val for- manna í þingnefndum, að sá úr meiri- hlutaflokknum á þingi, sem lengst hefur átt sæti í tiltekinni þingnefnd, verður sjálfkrafa formaður við fráfall fyrrver- andi formanns. Fuibright hefur því lengi verið einn áhrifamesti stjórnmálamaður Bandaríkj- anna. Víst þykir. að hann verði endur- kjörinn öldungadeildarþingmaður fyr- ir Arkansas, svo lengi sem hann vill. U TAN Bandaríkjanna er Fulbright þekktastur fyrir að vera frumkvöðull laganna um námsstyrki handa erlend- um háskólaborgurum, sem vilja nema í Bandaríkjunum, og bandarískum stúd- entum, sem vilja læra erlendis, enda eru þessir styrkir kenndir við hann. Tugir þúsunda erlendra stúdenta hafa átt kost á því að nema við bandaríska háskóla vegna þessara laga. í stjórnmálum er Fulbright ekki tal- inn raunsæismaður, heldur lærdóms- maður, sem setur fram kenningar. Hann er mjög umdeildur í Bandaríkjunum. Frjálslyndir menn hefja hann til skýj- anna fyrir afstöðu hans til vissra mála, einkum utanrikismála, en að öðru leyti aðhyliist hann einkennilega afturhalds- samar skoðanir. Hann hefur oft barizt íyrir stefnu, sem seinna hefur reynzt vera röng, en hann hefur ekki misst hugrekkið við það. Þvert á móti er hann nú sem jafnan fyrr óhræddur við að halda ákveðið fram óvinsælum skoðun- um. S TJÓRNMÁLASKÝRANDINN Kenneth Crawford sagði nýlega um hann: „Hann hefur hæfileika, sem er sjaldgæfur í stjórnmálabaráttunni: Hug- rekki til að gera skyssur. En — hvers vegna er hann alltaf að sanna það?“ Fyrst eftir heimsstyrjöldina hvatti hann til undanlátssemi gagnvart Sov- élríkjunum. Hann taldi litla sem enga hættu stafa af þeim, og útþenslustefna Stalíns væri hvergi til nema í hugar- heimi „bandarískra hernaðarsinna“. —• Hann hefur alltaf hvatt til sáttfýsi og samninga^ við kommúnistastjórnina í Feking. Árið 1961, þegar Bandaríkja- menn komust að því, að Rússar geymdu eldflaugar á Kúbu, hvatti hann Kenne- dy eindregið til innrásar á Kúbu, og þótti mjög miður, að ekki skyldi farið að ráðum hans. Þegar í ljós kom, að stefna Kennedys reyndist rétt, og eld- flaugarnar voru fluttar burtu án inn- rásar, viðurkenndi hann, að vel hefði verið haldið á málum, en taldi þó, að innrás hefði „hreinsað andrúmsloftið bet,ur“ en sú lausn, sem sætzt var á. Þegar tundurskeytabátar frá Norður- Víetnam réðust á bandarísk herskip á rúmsjó í Tonkinflóa árið 1964, var Ful- bright einn þeirra, sem lýsti yfir fullu trausti á aðgerðum Johnsons, og hann stjórnaði reyndar atkvæðagreiðslunni, þegar samþykkt var, að Johnson hefði leyfi þingsins til þess að „gera allar nauðsynlegar róðstafanir", sem honum þætti heppilegar í styrjöldinni. Nú nagar hann sig í handarbökin fyrir þessa af- stöðu sína þá. -I innanríkismálum er annað uppi á teningnum. Á því sviði eru skoðanir hans stundum erkiafturhaldssamar að áliti frjálslyndra manna í Bandaríkjun- um. Hann greiðir ávallt atkvæði gegn frjálslyndari löggjöf í verkalýðsmálum og allri löggjöf, sem minnir á „velferð- arríkið", svo sem sjúkrasamlagslögum, læknalögum og tryggingalögum. Verst þykir þó, að hann hefur lagzt eindregið gegn mannréttindalöggjöf- inni, sem á tryggja svertingjum áukinn rétt. Sú afstaða kostaði hann jafnvel ráðherraembætti árið 1961. Hann hefur þó ekki vilja viðurkenna beinlínis, að hann sé í hjarta sínu á móti löggjöfinni, heldur lætur í það skína, að á þessu sviði sé hann raunsær stjórnmálamaður, sem verði að taka tilliti til heimakjör- dæmis síns. Andstaða hans gegn mann- réttindalöggjöfinni sé gjaldið, sem hann verði að greiða Arkansasríki fyrir að fá að sitja á þingi og halda ræður um utanríkismál, en þeim hefur löngum verið ilia stjórnað að áliti hans. Hann hefur gengið svo langt að minna á ör- lög Brooks Hays, sem var fulltrúadeild- arþingmaður fyrir Arkansas, þegar kynþáttaóeirðirnar voru í Little Rock, og réðst á Orval Faubus fyrir stefnu hans í kynþáttamálum. Þetta leiddi til þess, að Brooks Hays 'tapaði þingsæti sínu. „Brooks Hays hélt fast við megin- reglu sína (prinsip). Og hvar er Brooks Hays núna?“ sagði Fulbright eitt sinn. YfIRHEYRSLUR í utanríkis- nefndinni vegna Víetnamsmálsins sner- ust gegn Fulbright í lokin. Gavin og Kennan studdu skoðanir hans að nokkru leyti, en Taylor og Rusk eru taldir hafa borið sigur af hólmi í hvössum orða- skiptum. Svo mikið er víst, að þegar þeir höfðu verið yfirheyrðir, lýsti Ful- bright því yfir, að rannsókn nefndar- innar væri lokið. Hann var þreytulegur og áhyggjufullur, þegar hann lýsti því yfir, en bætti því við á eftir við frétta- Framhald á bls. 13 Framkv.stJ.: Sigfns Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vieur Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Rítstjórn: Aðalstræti 6. Sími 22480. Utgefandi: H.f. Arvakur Reykjavílc. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13. marz 1968

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.