Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1967, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1967, Síða 12
Inga Jonsson: ■ B ir í Ameríku E, I ftir búsetu um nokkurt skeið í úthverfi — í stórbrotnu og óræðu landslaginu norðan New York — finnst mér ég lifa í mátulega hlýju tómrúmi: vorregn, þrumuveður, snjókoma og sum arvindcir ná ekki til mín milliliðalaust fremur en viðburðirnir á sjónvarps- skerminum. Umhverfi mitt þekki ég aðeins af því sem ber fyrir augu gegn- um bílrúðu. Allt sem ég þarfnast dags daglega get ég nálgast í bil og allt sem ég verð að fara get ég farið í bil, aðeins í bíl. Allt gengur eins og af sjálfu sér, allt er óhemjuvel skipulagt, fljótlegt, þægilegt. Allt er til í seilingarfæri, — allt, nema möguleikinn að fara í göngu- ferð. í>að er þar sem skórinn kreppir. Hv Lvar sem ég hef búið, hvort held- ur það hefur verið í sveit, borginni eða innbyrðis ólíkum evrópskum lönd- um, hefur fólk farið í gönguferðir, kvöldgöngur, sunnudagsferðir. Við höf- um þrammað tímum saman eftir götum og þjóðvegum, gegnum skóga, niður með fljótum; við höfum hallað okkur fram yfir brúarhandrið og spjallað sam- an, farið pílagrímsferðir til eftirlætis- staða, já, án þess að okkur fyndist við sérvitur eða frumleg höfum við haft heil kerfi af gönguferðum: hringferð- ir á kvöldin, r.óvemberferðir, já og var ekki líka sér sérstakur blær yfir því þegar við gengum að kvöldlagi upp að Syðri fjöllum. Við fórum í göngu- ferðir til þess að tala eða bara til þess að vera úti. Árstiðaskipti og veðurfar setti sinn sérstaka svip á hversdagslíf okkar. Við vissum líka, að þreytandi, niðurdrepandi hversdagsleiðindi lækn- uðust bezt með gönguferð — fyrr eða síðar í andblænum á brúnni, í fáfar- inni gÖtu með mjóa gangstétt og eina mjólkurbúð eða á hæð þar sem útsýn var yfir borgina, mundum við endur- heimta glaðværðina og farginu létta af huga okkar. Að ekki sé talað um sunnudagsgönguferðirnar, þegar öll fjölskyldan létti sér upp og hélt langt inn í skóginn. „Því að nú var áreiðan- lega hægt að tína „gullvivor“.“ í þessum gönguferðum var ævintýraþrá- in alltaf til staðar, löngunin til að kynnast nýjum og áður óþekktum stöð- um — við urðum að fara yfir hæðina, sjá hvað var hinum megin við beygjuna og sveigja inn á hliðargötur. Okkur fannst sjálfsagt að rannsaka ókunna staði og ókunn svæði, „leggja þau und- ir okl:ur“ fótgangandi eins og við kom- umst að orði. Einhvers staðar þarna inni, að baki ókunnuglegra framhliða, áttum við von á að finna staði, þar sem borgin opinberaði okkur hluta af leynd- ardómi sínum, ef við aðeins gengjum og gengjum þolinmóð. Á írlandi gengum við eitt sinn á milli tveggja bæja í ljósaskiptunum, fyrst framhjá gráum steinkofum, seinna fram með fljóti og mosavöxnum steinvegg þar til krökkt var orðið af sögum og ævintýrum und- ir trjánum. írlenzki kaflinn kom í góð- ar þarfir á tilbreytingarminni ferða- dögum. í Kaupmannahöfn er til yfir- lætislaust og mjög hversdagslegt torg með einu kaffihúsi með klunnalegum kaffibollum, sem er síðasti áfangi okkar á ýtarlegri rannsóknarferð um Kaup- mannahöfn. <x "g leyndardómurinn við þrálát leiðindi í úthverfi er sá, að maður hefur glatað tryggu, frjálsu, spennandi sam- bandi við umheiminn. Maður getur auðvitað einfaldlega tek- ið sér gönguferð eftir gangstéttarlausum vegkantinum, niður að hraðbrautinni og til baka, steinsnar frá stöðugri bílaum- ferðinni. Það ber við að lögreglubíllinn stanzar: „Er nokkuð að? Sprungið dekk?“ og aðeins útlendur hreimurinn getur gefið skýringu — innflytjandinn hefur ekki enn getað lagt út fyrstu af- borgunina af notuðum bíl. Annars mætir maður aldrei neinum á veginum, eini lífsvotturinn er andlit, sem snögglega bregður fyrir bak við bílrúður. En víð- átta úthverfisins, sem krefst bíla, á sér enga sögu og enga staði. Hér er ekkert útsýni, ekkert kemur á óvart og ekki heldur kunnuglega fyrir sjónir, og hverri gönguferð lýkur með endurnýjaðri til- finningu, að maður sé: hvergi. Þetta samfélag er auðvitað eðlileg af- leiðing af viðhorfi akandi einstaklinga til umhverfis síns, ytri aðstæður mótaðar eftir lífsstíl þeirra. Menn hafa einfald- lega einangrað allt sem er úti, með auknum þægindum hafa þeir slitið sam- og dali, það nær yfir stærstu vötn og minnsta skógarrunna. Meðfram aðalveg- unum standa byggingar af margvíslegri gerð, sumar með áberandi auglýsingum, sem horfa við stöðugum straumi akandi að verulegu leyti viðskiptavinur, hver lífshræring er verzlun. Af frjálsmann- legri fyrirlitningu á ytra samræmi hafa hér verið sett hlið við hlið bankar, „pizza“-eldhús og mótel, skólar, pylsu- vagnar og benzínstöðvar. Öðru hverju þéttist byggðin, þegar komið er í gömul bæjarhverfi með aðalgötu og pósthúsi, en eiginlegt viðskiptalíf hefur flutzt til stóru sjálfsafgreiðslustöðvanna, sem þenj ast yfir geysimikil svæði, og þar sér ekki út yfir bílastæðin. Þar inni ríkir árstíða- laus notakennd. Lampar, sem varpa frá sér dagsbirtu, lýsa, svo að hvergi ber skugga á, og við þægilegan klið stöð- ugrar hljómlistar er hægt að ráfa tímum saman í göngum milli útvarpstækja, meðala, gluggatjalda og matvöru. H . æðir, engi og ár, sem hingað og þangað hafa orðið afgangs, eru að- eins bil milli bilastæða og þakin sígarettupökkum, öldósum og bílræfl- um. Úthverfisbúinn gerir sér enga grein fyrir því, hve hræðilega ljótt þetta er, og það er því engin ástæða til að hlæja, þegar hann á ferðum sínum um Evrópu kvartar ekki yfir neinu nema skorti á bílastæðum eða hellir úr skálum reiði sinnar yfir illa skipulögðum götum. Á skopmyndum er hann teiknaður sam- vaxinn bílnum. Þegar hann stígur úr bílnum til þess að fá sér ferskt loft og hreyfingu, gerir hann það skipulega og í góðum félagsskap: hann spilar golf eða keiluspil. Ef einhver kæmi hugmyndinni um gönguferð á framfæri við hann myndi það vekja hjá honum óþægindi og undrun. Gönguferð er hreinlega ó- þægilegasta aðferð til að komast frá A til B; að fara í gönguferð eingöngu til tJr bandarísku háskólahverfi. I>ar er hæ gt aff fara í gönguferðir hvenær sem manni sýnist. bandið við himin og jörð. Veður og vindar himinsins koma mönnum ekki við nema að því leyti sem það hefur áhrif á færð og umferð. í milljónum lítilla húsa ríkir alltaf ákjósanlegasti hiti og menn ganga ekki á jörðinni: menn aka eftir henni í daglegum ferðum frá einu húsi í annað. Göturnar þjóna að- eins einum tilgangi: að liggja beint nið- ur að næstu aðalbraut, sem er tengiliður við næstu verzlunar- og þjónustumið- stöð, og á stöku stað — við innaksturs- brautir — tengiliður við fjölfarnar hraðbrautirnar. Þetta net mismunandi fínna og grófra möskva liggur yfir fjöll að ganga, til að hreyfa sig, virðist til- gangslaust, já allt að því óheilbrigt. — Ég fór nýlega í ferð með úthverfisbúa: Auk fjölskylduheimsóknar ætluðum við að koma við í New Bedford, bæ Moby Dicks uppi við strönd Nýja Englands. Ég hafði ekki aðeins lesið bókina fyrir skömmu, heldur hafði ferðafélagi minn kynt undir áhuga minn með því að segja frá byggðasögnum, framandi skip- um á höfninni og húsum með „ekkju- göngum“, þar sem skyggnzt var langt út til hafs eftir ókomnu skipi. Þetta var snemma í maí, hafið var bjart og gull- krossinn glampaði hátt yfir dökkum húsaþökunum, þegar við beygðum af þjóðveginum inn í borgina. En — við stigum aðeins úr bílnum til að borða. Úr bílnum sáum við hvala- safnið — það var lokað — og við ókum í bílnum að kapellunni þar sem Ishmael hlýddi á predikun um Jónas. Við ókum í bílnum niður að höfninni meðfram hæðinni, sem sjómennirnir höfðu ætíð gengið að lokinni bæn um farsæla sjó- ferð. Úr bílnum sáum við þröngar, sér- kennilegar götur þar sem þeldökk börn léku sér úti fyrir háum timburhúsum. Við lögðum bílnum við höfnina og skrúf- uðum niður rúðurnar og okkur var vísað á hvar farið er yfir til Nantucket. Vind- urinn barst inn í bílinn frá skútum og úr fúnum naustum og góðum ilmi sló á vitin. Síðan ókum við til mótelsins við hraðbrautina og horfðum á sjónvarp í herberginu. — Ég hef líka verið með i sunnudagsferð út í náttúruna. Fyrst var ekið eftir hlykkjóttum fjallavegum, stað- næmzt við og við þar sem útsýni var gott og teknar myndir, unz áfangastað var náð hátt uppi í laufskóginum við hvítfyssandi foss. Þar stigum við úr bíln- um. Á milli klettanna lá stígur undir trén. Við tókum myndir af fossinum og snerum síðan við og snæddum hádegis- verð á þýzkri þjóðvegarkrá, óhrjálegri með ómáluðum tréveggjum og göngu- skóm hangandi í þakinu. Á einn vegginn var skrifuð eftirfarandi auglýsing: Ol, eftir dásamlega heils dags gönguferð! E n úthverfisafstaðan er engan veg- inn takmörkuð við úthverfin, sem eru framar öðru háborg bíleigenda. Hvar- vetna, hvort heldur er í smábæ eða sveit, verður gangandi gestur fyrir sömu eindregnu andstöðu. Fyrirspurnir hans vekja grunsemdir — eða þá að honum er boðið far. Ruggustólarnir stanza undr- andi á svölunum. Maður er hundeltur eins og maður gengi um nakinn. Skógar og engi eru í einstaklingseigu og hvergi stígar fyrir fótgangandi, en sjávarstrend- urnar eru bílakirkjugarðar. Jafnvel í Villta vestrinu voru það aðeins ég og gamall Mexíkani, sem gengum. Við þess- ar aðstæður vaknar að sjálfsögðu snemma hugsunin „þegar þú ert í Róm..“; líklega væri réttast að breyta 1 áttum sínum og gera sér grein fyrir því, að maður getur aðeins skynjað Am- eríku gegnum ramma bílrúðunnar, því að þannig er því varið. Þess vegna verður hraðbrautin raunverulegust af öllu am- erísku. En þetta er of seint séð og þrátt fyrir allt er einn staður eftir: New York. Þar getur maður gengið í hvernig veðri sem er, mílu eftir mílu í mannþrönginni á breiðgötunum og þar uppgötvaði ég loksins eftir langa leit, að það er hægt að fara í ameríska gönguferð: IVIaður getur gengið yfir Brooklyn Bridge, frá einum brúarsporði til annars. Og þar, á miðjum brúarboganum, á gang braut, sem gerð er úr borðum eins og hlöðugólf, stendur maður eins og í risa- stórri rólu, sem er borin uppi af stál- vírunum og vaggast fyrir vindinum frá Atlantshafinu. Að austan og vestan er víkin með höfninni og frelsisgyðjunni, framundan eru dásamlegir skýjakljúf- arnir umhverfis Wall Street, sem gnæfa yfir eyjaroddann stórkostlegir og fram- andi eins og mánafjöll. Suðandi þyril- vængja eykur mikilfengleik himinhvolfs- ins og undir fótum manns dunar um- ferðin yfir brúna. Þá upplifir maður loksins eitt andartak drauminn ura Ameríku. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 12t marz 1907

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.