Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1967, Blaðsíða 16
mwrmjLÆmjmif wtm Lausn á síðustu krossgátu Hinn kunni bandariski spilari, John Crawford, sýnir okkur í eftirfarandi spili, öruggt og gott úrspil. Sagnir gengu þannig: Vestur — Norður — Austur — Suður Pass — Pass — 1 Spaði — Dobl. Pass — 2 Lauf — Pass 2 Grönd Pass — 3 Grönd — Allir Pass. Austur A K-10-7-6 V K-D-4 4 D-G-6-2 * K-10 Norður A D-8-4 V 9-7-6-3 4 K-4 * D-8-6-3 Vestur A 9-3 V G-10-5 ♦ 9-7-5 * G-9-5-4-2 Suður A Á-G-5-2 V Á-8-2 4 Á-10-8-3 A Á-7 Crawford var sagnhafi í 3 gröndum og vestur lét út spaða 9, sem drepin var í bortSi með drottningu, austur drap með kóngi og Crawford fékk slaginn á ásinn. Nú lét sagnhafi út hjarta ás, og síðan hjarta 2 og austur fékk slaginn á drottninguna. Austur lét nú út tígul 2, sagnhafi drap með áttunni, vestur lét níuna og drepið var í borði með kóngi. Enn var hjarta látið úti, austur fékk slaginn á kónginn og lét út tígul drottn- ingu, sem sagnhafi gaf. Næst lét austur út tígul 6, sagnhafi drap með tíunni og fékk þann slag. Nú tók sagnhafi tígul ás, laufa ás og lét út laufa 7, drap í borði með drottningu og austur fékk slaginn á laufa kóng. Austur á nú aðeins spaða á hendi og sagnhafi færi þannig slagi á spaða gos- ann heima, spaða 8 í borði og síðan slag á sfðasta hjartað í borði. Fékk hann þannig 9 slagi og vann spilið á skemmti- legan hátt. Fátt er í hugum manna öllu óskyldara en ríkið og þjóðin. Við erum þjóðin, bœði ég og þú, og allir vita að þetta er talsverð menn- ingarþjóð eins og bókaútgáfan dag- ana fyrir jólin sannar. Þegar við tölum um þjóðina, þá er það gjarn- an með virðingu; við finnum, að þetta er líkt og ein fjölskylda og lesum jafnvel minningargreinar í dagblöðunum, þó við höfum aldrei heyrt né séð þann, sem um er ritað. Öðru máli gegnir með ríkið. Þeir eru víst fáir, sem minnast þess með lotningu, né heldur að föðurlegrar umhyggjusemi verði vart, þegar það er annars vegar. Miklu fremur mætti af almennum viðbrögðum ráða, að ríkið sé ópersónulegt skrýmsli og'-velferð þess sé naum- ast í neinu sambandi við velmegun þegnanna. Þessvegna er viðhorfið á þann veg, að það sé allt að því ósvinna að svíkja ekki undan skatti, sé aðstaða til þess. Bágleg rekstrarafkoma ýmissa ríkisfyrirtœkja, bœði fyrr og síðar, á efalítið rót sína að rekja til þeirr- ar hugsunar, að óþarft sé að leggja sig fram, þegar ríkið á í hlut. Varla þarf að eyða orðum að því, hversu rangur og skaðlegur þessi hugsunarháttur er. Hann eitr- ar út frá sér og á meðal annars þátt í því, að meðferð á ýmsu því sem kalla mœtti almenningseign, jaðrar við siðleysi. Félög og stofnanir hafa orðið óþyrmilega fyrir barðinu á þessu, vegna þess að einstaklingar bera ekki virðingu fyrir þeim eigum, sem öllum standa frjálsar til af- nota. Mœtti í því sambandi geta þess, að Ferðafélag Íslands hefur, að því ég bezt veit, gefizt upp á að hafa ullarteppi í sœluhúsum sínum. Þeim var hreinlega stolið. Slysavarnarfélagið hefur orðið fyr- ir samskonar búsifjum; þeir menn eru til sem láta sig hafa það að stela jafnvel þaðan. Olíufélögin hafa haft loftþrýstimœla á benzín- stöðvunum hér í borg og lánað þá góðfúslega. Þesskonar lítilrœði í þjónustu getur komið sér vel, en nú rak ég mig á það á einni stöð- inni, að búið var að stela mœlinum svo oft, að forráðamenn þar sáu sér ekki fœrt að halda mælaút- lánum áfram. Afstaða manna til þeirra hluta, sem öllum er frjálst að nota end- urgjaldslaust, kemur í Ijós í hnot- skurn á þvottastœðum olíufélag- anna. Þegar menn eru búnir að skólpa skitinn af bílunum sín- um, snurfusa þá og pússa, er tœkjunum fleygt niður, þar sem staðið er. Sá sem nœstur kemur, verður œvinlega að byrja á að þrífa tœkin. En vilji svo til að ein- hver hafi með sér eigin þvotta- kúst, kemur gagnstœð afstaða í Ijós; þá er sá hinn sami þrifinn eins og köttur. Af svipuðum toga spunnin, en miklu verri þó er sú árátta að brjóta niður eða jafnvel að skjóta á vegvísa og skilti. , Þessi dœmi œttu að nœgja til að sýna rótgróinn hugsunarhátt gagn- vart álmenningseigum. Mér er sem ég sœi útkomuna, ef framkvæmd yrði hér sú Paradís sumra manna, að ríkið eigi allt og þegnarnir fái frjálsan aðgang að öllu sem þeir þurfa. — G.S. — ■ ■ ..... — — - -

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.