Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1968, Side 15
Jafnvel gamlar konur verða spilafíkn.nni að bráð.
LAS VEGAS
Framhald af bls. 5.
hinna dansandi kvenna svo það líkist
helzt kjöti, sem nýbúið er að taka upp
úr niðursuðudós.
Allir Bandaríkjamenn klappa af
hrifningu, þegar höfðað er til föður-
landsástar þeirra. Það atriði, sem mesta
ánægju vakti í revíunni „Hallo America
11“ var lokaatriðið, þar sem lítill hund-
ur, búinn út sem hinn bandaríski örn,
hoppaði á afturfótunum yfir sviðið.
Skortur á velsæmi nær hámarki í atriði
sem byggt er á „Hindenburg“ slysinu
1938.
En þrátt fyrir þetta smekkleysi eiga
menn þess einnig kost að njóta ágætra
skemmtiatriða eins og tii dæmis „New
Orleans 1880“ „Hooray for Hollywood"
eða „The Fifth Avenue Easter Parade“
og er það „krystalsalur" Desert Inn
hótelsins, sem býður upp á þessi skemmti
atriði.
H ótelin inni í miðborginni eru ekki
eins lokkandi, en milljónir ljósa frá
Fremontstræti lýsa miðhluta borgarinn
ar svo vel upp, að það er bezt upp-
lýsti staður í heimi. —
Sá, sem flýr inn í hin vel loftræstu
hótel undan hinum mikla hita úti, þarf
ekki að vera mikill áhættuspilari. Ef
hann vill ekki hætta á að nálgast hin
mörgu spilaborð, þá standa honum til
boða tuttugu þúsund sjálfvirkar spila-
maskínur og lokka með háum vinningi.
Það er víst óþarft að taka það fram,
að þann vinning fá menn sárasjaldan.
Þegar við sólarupprás stendur fjöldi
áfjáðra „spilamanna“ — einkum hús-
mæður — við „autómötin" og stingur
peningum í þau. Fólk þetta stendur oft
klukkutímum saman við sama autómatið
í þeirri von, að heppnin verði því skyndi
lega hliðholl. Hinar snotru „Money
Purses“ — en það eru stúlkur með stóra
poka fulla af skiptimynt — skipta hverj-
um dollaraseðlinum á fætur öðrum.
Jafnvel úti fyrir hótelunum og spila-
sölunum er erfitt að sniðganga hinar
áteljandi spilavélar eða sjálfsala. Þeir
kosta 1000 dollara, og stór félagssam-
tök leigja þau út fyrir 450—600 dollara
á mánuði. Hvert sem farið er, leggja
þessir sjálfsalar snörur fyrir smápeninga
manns. Á veitingahúsum, póststofum og
strætisvagnablðstöðum, hjá tannlækn-
um og rökurum, við flugvöllinn, já
meira a'ð segja á salernum kemst mað-
ur ekki hjá návist þeirra.
essir einhentu vasaþjófar og spila
borðin hafa það í för með sér að pen-
ingar skipta hraðar um eigendur í
Las Vegas en í nokkurri annarri banda-
rískri iðngrein. Agóðinn af spilaautó-
mötunum og hinum grænu spilaborðum
hverfur að sjálfsögðu mjög fljótt inn í
einkaskrifstofur hóteleigendanna, þar
sem peningarnir eru taldir, án þess
nokkur forvitin augu trufli þá athöfn.
Hinn afskaplegi gróði leiðir hins vegar
bandarísku skattayfirvöldin stundum til
þess að senda leynilögreglumenn út af
örkinni, til að kanna nánar tekjumögu-
leikana.
Og það er full ástæða til þess. Nýlega
hefur „Desert Inn“ verið forsíðuefni í
dagblöðunum. Einn meðeigandi hótelsins
var viðriðinn svikamál í Wall Street,
og bandaríska leyniþjónustan fékk fang-
stað á eftirmönnum Wilbur Clarks.
Fyrir tveimur árum gengu tveir síma-
viðgerðarmenn inn í lyftuna, beint fyrir
framan nefið á einkanjósnara hótelsins.
Þeir brunuðu upp á fyrstu hæð, þar
sem þeir tilkynntu, að þeir ættu að
gera við galla í símaleiðslunni. í raun
og veru voru þeir ekki sendir frá síma-
viðgerðarþjónustunni, og í stað þess
að gera við símaleiðslu, þá komu þeir
fyrir nokkrum örlitlum segulupptöku-
tækjum í veggjunum.
” næstu tvö ár gat því leynilög-
reglan fylgzt með öllu, sem gerðist í
Desert Inn, og fyrir nokkrum mánuðum
gátu bandarísku blöðin flutt risafréttir
um það, að spilatekjur Las Vegas hótel-
anna hyrfu í vasa glæpamanna. —
Enginn sem nokkuð þekkti til í Nevada,
hafði nokkru sinni dregið í efa, að eitt-
hvað væri gruggugt við ástandið í Las
Vegas. Eftirfarandi atvik er enn ein
sönnun þess:
Þegar Toni Cornero ætlaði að hefja
rekstur Stardust hótelsins fyrir nokkr
um árum, þá var honum boðið til Desert
Inn, til að halda upp á þann merka at-
burð. En hátíðahöldin fengu óvæntan
endi. Toni Cornero dó af hjartaslagi.
Og nú rekur sami félagsskapurinn bæði
hótelin.
„Þessi borg er ekkert frábrugðin öðr-
um“, sagði Oran Gragson, borgarstjóri
Las Vegas, ekki alls fyrir löngu í við-
tali við blaðamann. Hann hefur verið
þar borgarstjóri óslitið síðan 1959. í
þetta umgetna skipti var hann reyndar
tæplega vel til þess fallinn að eiga
langt blaðaviðtal, því hann hafði greini
lega tekið þátt í meiriháttar veizlu-
höldum daginn áður og var ennþá undir
áhrifum þeirra.
Annars hefur ríkið (Nevadaríkið,
þýð.) stofnsett sérstaka spilagæzlunefnd
Dansmeyjar í cinum af hinum fjölmörgu næturklúbbum í Las Vegas.
atvinnuleyfi sínu. Sagt er, að Sinatra
hafi selt sinn hlut í hótelinu fyrir nokkr
ar milljónir dollara. Eigi að síður giftist
hann Míu Farrow á Sandshótelinu.
F jöldi leynilögreglumanna vaktar
hin fjölsóttu spilahótel og spilasali.
Leynilegir speglar, sem er hugvitsam-
lega komið fyrir í loftunum, gerir þeim
kleift að sjá með kíkjum allt, sem ger-
ist á spilaborðunum. Njósnarar njósna
um aðra njósnara. En hættulegasti njósn
arinn fyrir þá, sem leita eftir stórum
vinningi, er sendur út af stjórninni í
Wasliington, og er hann á veiðum eftir
þeim, sem hátt spila, ef skattaframtal
þeirra er ekki í samræmi við það, sem
þeir kunna að vinna.
Einkalögregluþjónar allra hótelanna
hafa fengið sérstakar skipanir um að
hafa eftirlit með hinum fræga stærð
fræðiprófessor, Edward Thorp, en hon-
um tókst með aðstoð reiknivélar að
finna upp kerfi, sem gerði honum kleift
að vinna 18 þúsund dollara á tveimur
tímum við spilaborðin. Eigendur allra
spilahúsa í Las Vegas sjá svo um, að
þessum hugvitssama manni verði vísað
út; hvar sem hann kann að birtast í
þeirra húsakynnum, og er þetta ástæð-
an til þess, að einkanjósnarar rannsaka
nákvæmlega andlit hvers og eins ókunn
ugs manns.
Árlega koma 40,000 pör, til að láta
pússa sig saman í það heilaga í Las
Vegas, og fyrir það greiða þau meira
en 20 milljónir dollara árlega til Ne-
vada fylkis. Dag og nótt er verið að
gefa saman óþolinmóð hjónaefni í þess-
ari mestu hjónabandsparadís í Banda-
ríkjunum.
Það er ekkert afskaplega dýrt að
láta gifta sig. Dómari tekur 5—15 doll-
ara fyrir giftingarleyfið, eftir því á
hvaða tíma sólarhringsins hann er ó-
náðaður. Og giftingarkapellurnar taka í
mesta lagi 30 dollara fyrir prest, organ-
ista, blóm, ijósmyndir og hljómplötur,
sem hefur að geyma jáyrði hjónanna.
Finnist mönnum þetta hins vegar of dýrt
þá geta menn látið ólöglærðan embættis
mann (fredsdommer, þýð.) vígja sig
borgaralegri vígslu. Þá er ökuskirteini
það eina, sem menn þarfnast, til að
sanna, að þeir gangi ekki undir fölsku
nafni.
En Las Vegas er ekki aðeins hjóna-
bandsparadís, heldur fara hjónaskilnað-
ir þar einnig fram á öllum tímum. Þó
tekur skilnaður nokkru lengri tíma þar
en gifting. Sá eða sú, sem ætlar að
skilja við maka sinn, verður fyrst að
búa sex vikur samfleytt í borginni. Sá
biðtími er ákvarðaður í hagnaðarskyni,
því að hinir 4500 óánægðu eiginmenn, og
þá ekki síður konur, sem koma árlega
til að fá skilnað, eru góðir hótelgestir
og viðskiptavinir við spilaborðin og í
skemmtisölunum.
Það hefur jafnvel heyrzt, að sumar
konur hafi svo mikla skemmtan af þessu
að þær hafi þegar gifzt og skilið oftar
en tíu sinnum í Las Vegas.
sem S ah vernda gott mannorð Las
Vegas búa. Leynilögreglumenn frá þess
ari nefnd rannsaka nákvæmlega alla
þá, sem ætla að vinna eða spila í borg-
inni. Að því er blaðið Washington Post
telur, þá er þægilegra fyrir kommúnista
að komast inn á Kennedyhöfða, heldur
en fyrir glæpamann að komast til Las
Vegas.
Nokkru sinnum á ári fer nefndin í
skyndirannsóknarferðir, og gefa þær
oft tilefni til stórra blaðafyrirsagna og
bæjarslúðurs. í fyrra voru til dæmis
tekin ljósin af „Silver Slipper" hótel-
inu, en það hafði á sér ósvikinn „villta
vesturs" stíl. Að því er sagt var, var
notað blý í spilateningana þar.
Það er mjög mikilvægt að hafa eftir-
lit með útbúnaði þeim sem notaður er
við áhættuspilin, en óvæntar heimsóknir
eftirlitsnefndarinnar geta einnig stafað
af öðrum orsökum. Þegar Frank Sinatra
braut óskráð lög fyrir tveimur árum,
með því að leyfa atvinnuþjófnum Sal-
vatore Giancana að leita hælis í Sands
hóteli, sem Sinatra átti í félagi við
nokkra vini sína, þá var hann sviftur
Ekki liafa allir efni á að spila við
grænu borðin og þeir notast við spila-
kassana.
Ein af sextán „giftingarkapellum" í
Las Vegas þar sem hægt er að fá skjóta
þjónustu.
7. apríl 1968.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15