Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Síða 4
Húðir og hómiiíur SMÁSAGA eftir Henrich Schirmbeck ins gerðu þá að fullkomnum þrælum, þrælum eigin girnda og gjörræðis. Frjálsbornir menn gengust undir lögin af eigin vilja, sóru drottnum sínum eiða, bundust hvor öðrum og tryggðu sér með því rétt (libertas"). Samfélag miðalda var reist á tengslum manna við mann, rétti manns gagnvart manni og því var höf uðsynd samfélagsins fólgin í drottinsvikum „felonie“. Sam- kvæmt skoðun kirkjunnar stefndi sagan að ákveðnu marki, söguleg þróun var mið- aldamönnum raunveruleg og var að inntaki ætlun guðs og til- gangur hans með sköpunarverk inu. Miðaldasagnfræðingar skiptu sögunni niður í sögu- tímabil, hvert tímabil færði mannkvnið nær hinum hinsta tíma, heimsendi og miðaldir voru hluti síðasta tímabilsins. Hugmyndir manna úti hér um kristni, hafa líkast til ekki verið ósvipaðar hugmyndum al mennings á Norðurlöndum og Evrópu. Guð kristinna manna var guð valdsins, kraftmestur allra guða og baráttan stóð milli hans og Satans milli lið- sveita drottins og ára og ill- vætta fiandans. Kristni hér- lendis var frumstæð fyrstu öld- ina eftir kristnitöku enda virð ist hafa verið erfitt að aga landsmenn undir siðferðikröfur kirkjunnar á dögum fyrsta bisk upsins hérlendis. Heimi'dir um baráttu kirkjunnar við fornan óvanda og ósiði er að finna í elztu brotum kristins réttar. Þar koma fram óbeinar lýsing- ar á ástandinu eins og það var áður en kristinna ábrifa tók að gæta. barnaútburður. ófriður og fiölkynngi voru helztu agn- úarnir. sem reynt var að upp- ræta. Barnaútburður var þó leyfður um tíma og bendir það til fátæktar og barbarisma. „Be stialitet" var samkvæmt elzta kirkjurétti í Noregi, verstur • g'læpur og þar í landi voru einnig í fyrsiu nokkrar undan- tekningar frá banninu við barna útburði. Með tíundarlögunum eykst vald kirkjunnar stórlega eins og áður segir og þar með er lagður grundvöllur að bók- legri menningu 12. aldar hér- lendis. Á 12. öld er tekið að yrkja helgikvæði hérlendis. Skáld- skapurinn hafði fram til þessa verið helgaður norskum kon- ungum. Egill Skallagrímsson er fyrstur og merkastur hirð- ská'ldanna og blómatími þeirra verður síðan á 11. öld, þótt norskir konungar leggi eyru við slikum kveðskap fram á 13. öld. Uppskriftir og enduryrk- ingar eldri kvæða voru stund- aðar, gæti það hafa ver'ð í sam- bandi við nauðsyn skáldanna. Hirðskáldin voru áróðursmenn konunganna og í kvæðum þeirra geymdist saga ýmissa atburða, sem síðar var steypt saman við konungasögurnar, sem tekið er að rita á 12. og 13. ö'd. Skáid- skapur hérlendis á sína áheyr- endur við norsku hirðina og sama er að segja um saman- tekt konungasagnanna. Is- lenzk skáld og höfundar voru því mjög tengdir norskum land stjórnarmönnum. Hvötin til lof- kvæða um konunga voru laun- in og það er ekki fyrr en með auknu valdi kirkjunnar hér- lendis að hvatning gefst hér- lendis ti'l skáldskapar og sagna gerðar á snærum innlendra að- ila. Hin forna skáldahefð sem var nátengd göldrum lifði þó í ástakveðskap og harmljóðum, þótt kirkjan og liögin ömuðust mjög við fyrri tegundinni. Úti í Evrópu varð Cluny hreyfingin kveikjan að stór- auknum áhrifum kirkjunnar og ofurvaldi hennar á síðari hluta 11. aldar og á 12 öld. Þessara áhrifa gætir hérlendis furðu snemma og íslenzka kirkjan verð ur voldugri á íslandi á síðari hluta 11. aldar og fram um dauða Gissurar biskups, heldur en hliðstæðar stofnanir á meg- inlandi Evrópu. Áhrifin frá Cluny og trúarvakning meðal kirkjunnar manna á síðari hluta 11. aldar ná hingað með þeim mönnum sem stunduðu nám á Frakklandi og einnig frá norsku kirkjunni. Þegar líður á 12. öldina aukast áhrifin stórlega. Hugmyndir manna um guðdóm inn breytast. í stað voldugs himnakonungs kemur hinn kross festi. Kristin dulspeki, sjáífs- blekking og innlifun í kvöl hins krossfesta og kærleiks- boðun hans altekur marga beztu menn kirkjunnar. Þessi áhrif má marka greini- legast hérlendis eftir að Jón Ögmundsson var orðinn bisk- up á Hólum og hafði stofnað þar skóla. Áhrifin þaðan, skóli ísleifs í Skálholti og speki Sæ- mundar fróða áttu hvert sinn þátt í því ásamt tíundargjald- inu að vera hvati í siðmenning- arátt hérlendis. Hómilíur eru nefndar í mál- fræðiritgerðinni, sem rituð var um eða eftir miðja 12. öld. Hómilíurnar voru útleggingar eða þýðingar á textum Biblí- unnar. Þær eru að nokkru þýddar en sumir vilja álíta að meginið sé frumsamið hérlend- is. Af slíkum ritum hefur ver- ið til nokkurt magn snemma, vegna nauðsynja klerkdómsins. Heilagra manna sögur, sögur af postulum og Maríu eru að stofni til frá 12. öld. Þessi skrif eru einkum unnin samhliða skrifum Sæmundar fróða um Noregskonunga á latínu og skömmu síðar setur Ari fróði saman íslendingabók að frum- kvæði ríkjandi biskupa. Þá höfðu biskupar átt frumkvæði að endurskoðun laganna og skrásetningu þeirra og setn- íngu kristins réttar. Helgi Ólafs konungs orkaði sterkt á ís'lendinga ekki síður en Norðmenn og varð hvöt til helgisagnagerðar í stil timanna og frá þeim sögum runnu kon- ungasögurnar. Rit þessi eru sett saman að frumkvæði eða sem bein áróðursrit fyrir kirkjuna og eru skrifuð í hefðbundnum miðaldastíl, nema hvað skrúð- mælgi er takmarkaðri í sum- um þeirra, heldur en gott þótti á þeirri tíð. Þegar kemur fram á öldina hefst hér helgikvæða- samantekt af sama toga og slík kvæði gerðust á Þýzkalandi og Frakklandi nema hvað hér var haldið fornum kenningum skálda skólans. Placítíusdrápa er fyrsta norræna drápan um vinsælan evrópskan dýrðling. Jóns drápa postula og Kristsdrápa eftir Niku'lás Bergsson, sem aðeins eru til í brotum einkennast af kristinni dulspeki aldarinnar og táknfræði, hann ritaði auk þess leiðarvísi fyrir pílagríma, sem ætluðu til Rómar og Jerú- salem, en hann fór þangað sjálf- ur, kom heim 1154 og var þá skipaður ábóti á Munkaþverá. Svipaða dulspeki er að finna hjá Gamla kanoka í Þykkva- bæ í broti Jónsdrápu og þó einkum í Harmsól, sem er eitt fegursta kvæði ort hér á 12. öld. Lýsing Gamla á heimsendi sýnir að hann hefur þekkt Völuspá. Gamli notar heiðnar kenningar og þekking hans á heiðinni goðafræði og skáld- skap var frábær. Geisli Einars Skúlasonar er vél unninn bálk- ur, ortur í tilefni af stofnun erkistóls í Niðarósi og fluttur þar í dómkirkjunni. Það er eft- irtektarvert að beztu og mögn- uðustu kvæði sem ort voru á seinnihluta 12. aldar eru helgi- kvæði. Voldugasta kvæði þessa tíma bils eru Sólarljóð og sver það sig í ætt kristinna bókmennta siðari hluta 12. aldar eða und- ir aldamótin. Þessi bálkur jafn ast á við Völuspá og Lilju. Kvæðið er mjög persónulegt og fyllt táknmyndum, leiðslukvæði eða draumkvæði. Konungaævir í helgisagna- stíl voru settar saman á Þing- eyrum, ýmist á latínu eða ís- lenzku. Síðan er tekið að rita helgisögur og jarteiknabækur af íslenzkum biskupum og kirkju sögu og yfirlitsrit um norska og norræna landstjórnarmenn stundum beinlínis í áróðurs- skyni eins og Sverris saga Karls ábóta er gott dæmi um. Þannig verða klerkar arftak- ar hirðskáldanna sem sagnarit- arar konunga. Fyrstu sagnarit- ararnir, þeir fróðu, rituðu at- hugagreinar, minnisgreinar og þætti, sem síðar voru notaðir ýmist af þeim eða öðrum í stærri verk. Höfundaréttur var ekki til sem hugtak á miðöld- um, menn skrifuðu upp, endur- bættu eða bættu við rit ann arra. Sæmundar fróða og Ara er oft getið sem heimildar- manna og Ari getur helztu heim ildarmanna sinna, og var sá háttur tekinn eftir Beda presti. Sumir telja að frumdrögin að Landnámu hafi orðið til í grein- um og þáttum, skrásettum á 12. öld af Ara fró'ða og fleirum. Rit Framh. á bls. 12 6 en Morton hafði náð af- burða leikni í að semja og skrifa ieynilögreglusögur. Tímaritin og skemmtiritin rifust um hverja setningu, sem kom úr penna hans. Þeir, sem áttu leið framhjá blað- sölupöllunum á morgnana, gátu séð fjallháa hlaða af „hrollvekj- um" hans, en um kvöldið höfðu þeir hinsvegar horfið eins og dögg fyrir sólu. En hver var Ben Morton? Út- gefandi hans hafði jafnvel ekki minnstu hugmynd um það, því að Ben Morton stóð einungis i bréfa sambandi við hann. Hversdags- lega gekk hann undir nafninu Frank Muthner, var um fertugt og lifði hamingjusömu og friðsælu heimilislífí. Sem drengur hafði hann lesið hina frægu ritgerð eftir Thomas de Quincey um morð sem eina tegund æðri listar. Hann hafði heillazt svo af ógnvekjandi kald- hæðni þessarar frábæru og guð- lausu ritgerðar, að hann strengdi þess heit að helga líf sitt þeirri list upp frá því, en auðvitað að- eins á ritvellinum. Hann ávann sér skjótt auð og frama. Sjálfur var hann dálítið undrandi á því, hve fljótt þessi hetjulega ákvörðun bar ríkulegan ávöxt. Þrátt fyrir það steig vel- gengni hans honum ekki til höfuós. Hann var eftir sem áður dulbúinn þjónn Jistarinnar. Þó að fjárhagur hans leyfði, að hann keypti sér einbýlishús á Costa Brava og Jystisnekkju í Saint Tropez, hélt hann áfram að búa í ódýrri íbúð í venjulegu útborgar- hverfi, dútla í garðinum um helg- ar, fara í leiki við börnin sin og bregða sér öðru hverju í bíó með ungu fallegu eiginkonunni. V ið dyrnar að íbúðinni hans var fest venjulegu nafnskilti, sem á var pren^að fremur dufu letri „Franz Mauthner, tryggingasafn- ari". Aðrir íbúar hússins fengu þar með fullnægjandi skýringu á hamrinu í ritvélinni hans. sem barst úr vinnuherbergi hans á vissum, reglubundnum timum dagsins. Jafnvel eiginkona hans hafði ekki hugmynd um, hvað hann hafði fyrir stafni, og lét hann einan, þar sem hann töfraði fram hrollvekjandi sögur dögum, mán- uðum og árum saman, knúinn djöfullegum mætti. Það var ekki auðvelt að lesa í svip hans, hvaða starf hann stundaði: hann hafði blá, sakleysisleg augu, mjúka og eplarjóða vanga, strítt hár, og um barnslegan munninn lék stöðugt feimnislegt bros. Kona hans unni honum, börnin hans klifruðu á hné hans og skríktu af kæti, þegar hann leyfði þeim að leita að gotti í vösum sínum. Mesta gleði þeirra var samt að heyra hann leika búktalara. Hann gerði feikna lukku og var óþreytandi að koma með ný og ný tilbrigði. „Þú hefðir getað náð heimsfraegð á sviðum hljómlistar og fjölleikahúsa", sagði kona hans eitt sinn hlægj- andi við hann. Hún ætlaði að slá honum gullhamra, en orð hennar gerðu hann hugsandi og jafnvel dálítið hryggan. Hann fór inn í vinnuherbergið. hugleiddi málið um stund, og að lokum spurði hann sjálfan sig: „Hefir hún ef til vill á réttu að standa? Er ég gæddur annarri snilligáfu, sem enn hefir ekki fengið að njóta sín? En hvernig væri þá að sam- eina þær?" Hann hugsaði málið og andlitsdrættir hans vitnuðu um heimspekilegar hugsanir. En brátt varpaði hann þeim frá sér og gleymdi þeim loks alveg. Árin liðu. Ekkert hefði hindráð Ben Morton 1 að stefna hiklaust að og ná því markmiði sínu — að aíla sér meiri frægðar en Edgar Wallace, Agatha Christie, Georges Simenon og Dashiell Hammett — hefðu blöðin ekki dag nokkurn skýrt frá morði, sem hafði verið framið af óviðjafnanlegri snilld. Það væri að fara út fyrir takmörk þessarar sögu að segja frá morð- inu í smáatriðum. þó að slík frá- sögn staöfesti ennþá frekar, að Thomasi de Quince hefði ekki skjátlazt svo mjög. Allt um það er unnt að upplýsa eftirfarandi: launmorðinginn hafði myrt fórnar- 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. marz 19ð9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.