Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1969, Blaðsíða 6
úr húsum manna undir himinn beran. Sérðu það sem ég sé? Minningar eftir Hafstein Björnsson, miðil. — 2. hluti „Það er þá svona með þig, Steini minn" egar Aðalbjörg sat úti fyrir dyrum sínum með prjón- ana sótti ég, krakkinn, mjög til hennar. Hún var svo ákaf- lega hlý, hún Aðalbjörg. Hún talaði svo rólega og átti svo fallegt bros, og svo átti hún alltaf eitthvað til þess að gefa, stundum kandíssykur í pilsvas- anum eða rúgbrauðssneið, sem hún smurði gjarnan þannig að drepa þumalfingri ofan á smjör- ið. Einkennilegt var þarna fyr- ir sunnan bæinn, hvað alltaf gat verið rólegt og hljótt í kringum hana Aðalbjörgu. Þó var eins og alltaf væri eitt- hvað að gerast þar. Kötturinn hringaði sig á sólheitri dyra- hellunni, eða sat spekingsleg- ur í dyrunum og virtist vera í þungum þönkum. Maríuerlan sem verpti við bæjarburstina hennar Aðalbjargar, trítlaði um 'hlaðið fyrir framan fætur henn- ar og hegðaði sér eins og hún væri alltaf að steypa stömpum. Kisa virtist skoða hana sem hvern annan heimamann. En skyndilega setur kisa á sig kryppu og hvæsir inn í dyrnar. Skottið verður digurt og hún gengur skökk aftur á bak. Hversvegna gerir hún þetta? Hvað var þarna á seyði? þarna inni í dyrunum? Hvað skauzt þarna fram fyrir stoð- ina? Var þetta barn? Já, það var lítill strákur á að gizka tveggja ára. En mikið var hann einkennilegur, svona þrekinn yfir herðarnar, magamikill og þykkleitur í andliti. En hvað var þetta? Var hann ekki með skegg? Jú, það leyndi sér ekki. Hann hafði úlfgrátt kraga- skegg, en var rakaður kring- um munninn. En hver var þetta? Ég glápi á þessa mann- veru, eins og naut á nývirki. Ég hef víst verið eitthvað und- arlegur í háttum, því að gamla konan segir allt í einu: „Ojæja, já, ojæja. Það er þá svona með þig, Steini minn! Varstu ein- hvers var? Ojá,“ og hún reri fram í gráðið. „Þú þarft ekkert að vera smeykur. Þetta er vin- ur minn. Hann er búinn að vera það lengi, og á meðan hann er í mínum húsum, verð- ur aldrei tómt búrið hjá mér. Ég skal segja þér að þetta er búálfur, og þeir slá sér að þar sem þeir finna hlýju og samúð okkar mannanna, og fá að vera í friði. Eins þykir þeim mjög gott að vera þar sem ostur er, og eins og þú veizt bý ég stund um til mysuost og mjólkurost, ojá, það er nú það Steini mirm!“ „En éta þeir ekki ostinn frá þér, Aðalbjörg?" spurði ég. „Onei, ætli þeir láti sér ekki nægja lyktina af honum.“ Og svo reri hún með p-rjóna sína, yndislega glöð og ánægð og raulaði rimnastúfs lag- part e’ða stef úr sálmi. En allt í einu segir hún: „Heyrðu! Hefir þú ekki tekið eftir hóln- um hérna fyrir utan og ofan Miklagarð? Svo er annar dálít- ið minni hérna fyrir framan," og hún bendir í áttina að Hall- dórsstöðum. „Ég skal segja þér að í báðum þessum hólum býr huldufólk.“ Ég hváði og spurði: „Huldufólk! Hvað er nú það?“ „Huldufólk eru börn- in hennar Evu, sem hún var ekki búin að þvo þegar Guð kom í heimsókn til hennar, og nú skal ég segja þér söguna af því. Hún er svona: Einhverju sinni kom Guð almáttugur í heimsókn til Adams og Evu. Fögnuðu þau honum vel og sýndu honum allt sem þau áttu innanstokks. Þau sýndu honum líka börnin sín og þótti honum þau efnileg. Hann spurði Evu hvort þau ættu ekki fleiri börn en þau sem hún hefði sýnt hon- um. Hún neitaði því, en svo stóð á að Eva hafði ekki verið 'búin að þvo sumum börnunum, fyrirvarð sig fyrir að láta Guð sjá þau og skaut þeim undan. 'Þetta vissi Guð og sagði: „Það sem á að vera hulið fyrir mér, skal einnig verða hulið fyrir mönnunum." Þessi börn urðu nú mönnum ósýnileg og bjuggu í holtum og hæðum, hólum og steinum. Þaðan er huldufólk og álfar komnir, en við menn- irnir erum komnir af þeim börnum Evu, sem hún sýndi Guði. Huldufólkið, Steini minn, hefir kýr, kindur og hesta og öll húsdýr eins og við. Það sem- ur sig mjög að okkar lifnaðar- 'háttum. Það heyjar, veiðir sil- ung og fisk eins og við, og það fer kaupstaðarferðir eins og við, en það er betra að koma sér vel við það, leggja ekki til þess að fyrra bragði, því að þá hefnir það sín grimmilega.“ „Hefir þú séð það, Aðalbjörg “ spurði ég. „Ojá, ég hef oft séð það og átt samleið með því um ævina. Það hefir alltaf verið mér gott, frekar vikið mér heldur en hitt.“ „Kanntu marg- ar sögur um huldufólk?" „Sitthvað hef ég nú lært um dagana af því tagi,“ svaraði hún. Stundum skildi ég ekki setn- ingarnar sem Aðalbjörg sagði, það voru svo einkennileg orð, sem hún raðaði saman. Hún var svo greind, hún Aðalbjörg, mér fannst hún vita miklu meira en allir aðrir. Hún sagði að þessar torskildu setningar væru spak- mæli, sem væru höfð eftir álf- um. Hvað ætli hún hafi átt við um daginn, þegar hann Palli kom með fisk utan af Krók, þá sagði hún: „Allir skyldu fisk- inn í pörtum en ekki heilan sjóða!“ Eða þegar hún sagði við konu á næsta bæ: „Næmt skornar neglur og norður- þvegið hár mun hverjum í hel 'koma.” ,,Á ég að kenna þér versin, Steini minn, sem litla stúlkan sem ólst upp hjá álfum til 13 ára aldurs, kom með til mann- heima?“ Ég hef víst játað því: ég var ekkert nema eyrun þeg- ar Aðalbjörg sagði frá ein- hverju. Síðan raulaði 'hún vers- in fyrir munni sér, en þau voru þannig: 1. „Jesú minn bróðir í himnaríki er, græðarinn minn góði, geymdu mig hjá þér. 2. Svo skalt þú mæla þá út þú gengur 3. Fel ég minn anda í hendur Guði. Haf þú orðtak slíkt um ævi alla.“ „Þú hefir trúlega orðið var við krakkana, hérna úti á bæj- arhólnum,“ sagði Aðalbjörg, „Ég sá í fyrradag, að þú varst að leika þér með þeim. Þau voru þrjú. Telpan, sem er dálítið eldri en þú, var að sýna þér fallegu hárauðu peysuna sína og húfu, sem var eins. Annar drengurinn var eldri en þú, hinn nokkru yngri. Þeir skiftu sér ekki eins mikið af þér. Svo varstu víst orðinn þreyttur, því að þú settist við snúrustaurinn og varst í þann veginn að sofna þegar ég kom til þín. Manstu þetta ekki, Steini minn?“ „Jú, krakkarnir! Ég hélt að þau væru frá Miklagarði eða Mar- bæli,“ sagði ég. Þú veizt að engir krakkar eru í Mikla- garði,“ svaraði hún, „og svo er aðeins eitt barn í Marbæli „hún Lína hans Hjartar meðhjálp- ara og hún fer aldrei svona langt.“ „Aðalbjörg! Sér Palli huldu- fólk“? spurði ég. „Nei, það sjá ekki allir huldufólk, Steini minn. Guð hefir ekki gefið öll- um að sjá eins.“ Og þannig reyndi hún að útskýra allt fyr- ir mér sem sannast og réttast sem hún vissi, bæði af sinni eigin reynslu og annarra. „Steini minn! Vertu alltaf góð- ur við litlu krakkana sem koma að leika við þig, en mundu mig um að fara ekkert frá bænum. Ef þau biðja þig um að koma með sér, þá komdu fyrst til mín Þú getur leikið þér hérna úti á hólnum, eða fyrir sunnan bæ- inn hjá mér.“ Ósköp var þetta undarlegt, sem hún Aðalbjörg var að segja mér, að fólk byggi í hólum og klettum. Hvernig gat það verið? Hólarnir voru ekkert annað en mold og klettarnir svona harð- ir og kaldir. Nei, þetta gat ekki verið satt! En hún Aðalbjörg skrökvaði aldrei. En hvernig var þetta allt? Ég botnaði ekk- ert í því. Eitt sem ég braut heilann mikið um var þetta með hann Kát, hundinn hans pabba. Það varð að lóga honum vegna þess að hann lenti í áflogum við aðra hunda, og þeir bitu hann. Þá varð að fá hann Halldór á Halldórsstöðum með stóru byssuna og hann skaut Kát. Svo var hann grafinn fyrir utan túngarð. En viti menn! kemur ekki Kátur um kvöldið eins og hann var vanur og fer að éta úr dallinum sínum. Hann leit til mín svo undur elsku- lega og dillaði rófunni, labb- aði síðan til pabba og lagði hausinn á hnéð á honum. Var 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. marz 1969

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.