Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.1970, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.1970, Blaðsíða 14
Lausn á síðustu krossgátu SJÓNVARPSÚTSENDINGAR haja legið niffri unclanfarnar vikur, vegna sumarleyja starjsliðs, svo sem alþjóff er kunnugt. Lokunin er árviss viffburöur og jajn víst er, að ýmsir reka upp ramakvein, þegar þessi tími nálgast. Um það mætti sjálfsagt jjalla í langri grein og telja upp þungvæg rök með og á móti því, hvort rétt sé að íslenzka. sjónvarpið loki jyrir starjssemi sína í heilan mánuð. En öllu jorvitni- legra er, að ejtir jyrstu erfiðu dag- ana, virðist svo sem jáir sakni sjón- varps lengur. Margir varpa þá önd- inni alls hugar jegnir og ósjaldan heyrast þœr raddir, að nú hafi þeir jengið ró og jrið til að gera hitt og annað, sem haji setið á hakanum og ekki unnizt tími til vegna anna við að horfa á sjónvarpið. Auðvitað er það út aj jyrir sig sprenghlœgilegt, að jullorðið fólk skuli rígbinda sig svo við sjónvarp, að sú iðja komi niður á aðskiljanlegum áhugamál- um þess. Engu að síður er það stað- reynd, að þrátt jyrir að nœr fjögur ár eru liðin síðan við urðum þeirr- ar gæju aönjótandi að já íslenzkt sjónvarp, eru þeir líkast til enn í talsverðum minnihluta, sem hafa lagt sig eftir þeirri kúnst að velja og hajna. Viff tœkin er setið lon og don, og að lokinni dagskrá eru síð- an gjarnan gejnar kjarnyrtar yjir- lýsingar um, hversu ejnið sé lélegt og hversu mjög sjónvarpinu jari hrakandi. Naumast bregst þó að nœsta kvöld, klukkan sjö mínútur jyrir átta, eru menn komnir á sinn staff við tœkin. Ekki hirði ég um að gera sjón- varpsefninu skil, en langar aðeins að vekja athygli á því, hversu undra hœgt viff eigum með að vera án þess í heilan mánuð, þegar öll kurl eru komÁn til grafar. Og ej við erum orðin svo miklir sjónvarps- þrœlar, að viff komum engu í verk hina elleju mánuðina, er beinlínis góðverk að loka þann tóljta mánuð. Annaff er það, hversu almennt og útbreitt það er, að börn haji í öllu sína hentisemi í að horja á sjónvarp jram eftir öllum kvöldum og iðu- lega á þœtti, sem engan veginn eru við hœfi barna. Þar kemur eins og í fleiru jram þróttleysi joreldr- anna; þeir treysta sér ekki til að standa í hávaðarifrildi við þessi nú- tímaajsprengi sín, kaupa sér frið á þeim vígstöðvum sem öðrum með dœmalausri undanlátssemi. En segja mætti mér, að það vœri reynsla þeirra, sem hafa reynt að spyrna við jótum, að einnig á þessu sviði haji börn gott aj dálitlum aga og ákveðnum reglum. Undravert er, hve börn sœtta sig jljótt við að hverja af sjónvarpsstað, ej þeim eru gerðar Ijósar ákveðnar reglur um, hvaff þau megi horja á og livað ekki. Aukin heldur geta þau þá notað tíma, sem þannig vinnst, til lestrar eða iðkunar þroskavænlegri áhugamála, en sitja og mœna á þriðja flokks skemmtiþœtti eða reyjaramyndir, sem þau botna sjaldnast neitt í, en vekja hjá þeim œsing effa óróa, sem óhollusta hlýt- ur að vera að. Þessi mánuður er og ágætlega til þess fállinn að gera smáúttekt á ejni hljóðvarps, þar sem er vitað mál, að þann tíma er hlustað meira á hljóðvarp en alla hina ellefu mánuðina til samans, að ég hygg. 1 sjónvarpsvímunni höfum við lúmskan grun um, að ej til vill jör- um við einhvers á mis, öðru hverju. Nú skal úr því bœtt. Nú á að hlusta á útvarp og alla þessa frœðandi og skemmtilegu þœtti og margslungnu tónlist, sem maður hefur jarið á mis viff mánuðum saman. Og ejtir nokkur kvöld kemur svo raunar upp úr kafinu, að útvarpsejnið er þá ekki eins frœðandi og gott og við höfffum haldið. Erindin, sögurn- ar, upplestrarnir, tónlistin; ósköp finnst mér á stundum vera kastað höndum til þessa alls. Ejtir að haja nú hlustað á útvarp af mesta dugn- aði síðustu vikur, jer ég að snúast á sveif með þeim, sem haja það jyr- ir tómstundagaman að skrifa nöld- urbréj til hljóðvarps. Að vísu eru slíkar skoðanir ekki ný bóla og auðvitað er innan um og saman við ýmislegt gott ejni á boðstólum. En samt gerir sú áleitna hugsun vart við sig, að hljóðvarp haji sett ákajlega mikið ojan eftir tilkomu sjónvarpsins. Ekki skal ég jullyrða hvort elli- glöp jara að segja til sín jafnskjótt og jarið er yjir á jertugsaldurinn, en sé svo, þá lýsa þau sér þannig hjá mér, að mér finnst hljóðvarps- ejni hafa verið miklu betra í gamla daga — jyrir svo sem tíu árum, að ég nú ekki segi tuttugu. Kannski erum við orðin svona kröfuhörð. En engu að síður er ég sjálfsagt ekki ein um þessa skoðun. Fljótvirkar lausnir hef ég að sjálfsögðu ekki á takteinum frekar en aðrir þeir, sem gagnrýna, en varla er óeðlilegt þótt því sé velt fyrir sér hverju sé um. að kenna. Hljóðvarpi ætti auðvitað að vera það kappsmál að halda uppi harðri samkeppni við sjónvarp. En þessa verður ekki vart. Einhvers staðar á leiðinni hejur hljóðvarpið orðið viðskila við jramvinduna. Og þá kemur mér í hug sagan um hvíta landkönnuðinn, sem jór á jlakk um Afríku og fékk sér svarta burðar- menn til jylgdar. Ejtir nokkra vikna ferð, settust þeir allir niður og lireyfðu sig hvergi. Er landkönn- uðurinn innti þá eftir því, hversu seinagangur þessi sœtti, sögðu þeir að svo geyst hejði verið jarið yjir, að sálirnar hejðu orffið viðskila viö þá. Nú yrðu þeir að bíffa eftir að þœr nœðu þeim aftur. Og þetta á svo sem ekki aðeins við um hljóð- varp og sjónvarp. Þetta gœti einnig verið ábending til þœgindagráðugr- ar og dómliarörar íslenzkrar þjóð- ar. En það er aftur önnur saga. Jóhanna Kristjónsdóttir. •4 LESBÓK MGRGUNBLAÐSINS 26. j'úli 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.