Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.1970, Blaðsíða 1
Danska skáldkonan Else Faber segir
frá bréfum föður síns, sem vann við
mælingar á íslandi laust eftir aldamót
Oft var yfir heljamli jökulvötn að fara.
Endurfundir við hið óséða
Heimsókn mína hingað til
„Sögueyjunnar" vildi é,g gjarn-
an nefna „Gensyn með det
aldrig sete“. Faðir minn vaf
nefnilega mælingamaður með
starfsmönnum danska herfor-
ingjaráðsins, sem voru hér við
kortagerð í byrjun þessarar
aldar.
Ég hef undir höndum ein
þrjátíu bréf frá árunum 1902,
1903, 1904 og 1907 sem faðir
minn skrifaði móður minni til
Danmerkur þar sem hann gaf
lýsimgu á sínu hættulega starfi,
fagurri og heillandi náttúru
landsins og hinum vingjam-
legu og hjálpfúsu íslendingum.
Einniig hafði ég meðferðis að
heiman hingað til Reykjavíkur
frumkort, sem faðir minn teikn
aði og ætla að færa íslenzku
safni að gjöf.
í fyrsta bréfi föður míns, sem
dagsett er 24. júlí 1902 segir:
„Laura sigldi frá Færeyjum
til Vestmannaeyja sem liggja
undan suðurströnd íslands, en
þær eru sérkennilegar og fagr-
ar og þar eru ótal fuglahjörg.
í björtu veðri er suðurströnd
Islands hrífandi, er sól'in slær
geisilum sínum á Eyjafjallajök-
ul. I baksýn eru hinir jöklarn-
ir og lengst í norðri gnæfir
Heiklutindur. Á Reykjanes’skag
anum teygja hraunbreiðurnar
sig í sjó fram. Við siglum fram-
hjá Eldey og tökum stéfnu í
norður inn Faxaflóa. í norð-
vestri sést hvít kápa Snæfells-
jökuls. Loks eygir maður blá-
gráu húsin í Reykjavík og all't
í kring um bæinn rísa fögur
fjöll, sem mynda hálfhring um
flóann. Skipið leggst við akk-
eri á læginu en þar er fjöldi
fiskibáta.
Laugardagur og mestur hluti
sunnudags fóru í að koma far-
angrinum fyrir og verða sér úti
um íverustað o.s.frv. Ég borða
á húsistjórnars'kólanum, þar
sem rekið er mötuneyti og
borga kr. 1.25 á dag fyrir Mlt
fæði. f>á hef ég tekið herbergi
á leigu ásamt með félaga mínum
Hansen og greiðum við kr. 9.00
á mánuði fyrir það eða kr. 4.50
hvor okkar. Hermannabeddinn
minn kemur í góðar þarfir því
við þurfum sjáilfir að leggja
til rúmstæði og rúmföt
Óbreyttu dátarnir búa ókeyp-
is í skólahúsnæði, sem stendur
autt nú í sumarfríinu. Ætlun-
in er að vinna tvær eða þrjár
fyrstu vikurnar í næsta ná-
grenni Reykjavíkur en síðar
mun ég búa í tjaldi hér aðeins
sunnar. Hvernig tekst þá til
með matargerð og annað þess
háttar veit ég ekki.
Störfin úti á víðavangi ganga
ágætlega, þar eð við höfum að
mestu siloppið við þoku svo að
teiknivinnan verður að bíða þar
til heim kemur. Þó var kalt á
lauigardaginn og snjóaði í fjöll.
Það sem óþægiilegast er við
veðurfarið hér að því er
varðar störf akkar, er að það
er svo óstöðuigt og breytilegt.
Saimdæigiuirs á maðiur yfirvof-
andii möng veðux bæði bjart oig
líka stoim og riigniinigu og jafn-
vel snijó'komu."
í bréfi frá 24. ágúist sama ár
skrifar faðir minn: „Ég hef nú
búið í tvær vikur í tjaidi, sem
er á að gizka eina míLu fyrir
sunnan Reykjavílk í miðju
hrauninu við Hafnarfjai'ðar-
veg. Dátarnir áttu í -erfiðleik-
um með að reisa tjöldin. Kort-
érs gangur er til næsta bæjar
þar sem við fáum vatn, en það
verðium við að spara en þvoum
okkur þó af og til. Hér er rnikið
hrafnager og gera þeir okkur
alls kyns skráveifur því að þeir
eru samkvæmt eðli sínu þjóf-
óttir og væru áreiðanlega búnir
að éta okkur út á gaddinn ef
við gættum þess ekki að loka
alltaf tjoldunum á eftir okkur.
Veðrið hefur verið afleitt síð-
ustu viku, kuldi, stormur og
rigning; eina nóttina fór hitinn
niður fyrir frostmark. En þetta
gengur nú samt allt vel, ég hef
heydýnu undir mér og fjögur
teppi og vef einu þeirra utan
um miig. Þrátt fyrir veðraham-
inn hefur útivinnunni miðaðvel
fram, því að maður heldur á sér
hita með öllum göngunum við
þrffliyrninigiaimælingarnar, en
dátarnir eiga í erfiðleikum með
að halda mælistöngunum lóð-
réttum. Teiknivinnan í tjald-
inu er leyst af hendi frá klukk-
an sex á kvöldin og fram í
myrkur eða þanigað til maðiur
sér ekki lengur til að teikna.
Um þetta leyti er hitinn um það
bil fimm til sex gráður. Ég nota
rúmið bæði sem teikni- og skrif
borð og ein af ferðakistunum
er stóll og svo vef ég teppi um
fæturna til að halda á mér hita.
Matvælin, sem við tókum með
okkur frá Kaupmannahöfn
hafa geymzt vel en þó hefur
ofiurlítið slegið í slkinkuna og
síðustu sneiðarnar hef ég soðið
og borðað með niðursoðnum
baunum. Við þessar frumstæðu
aðstæður, þarf ekki mikla kunn
óttu í matargerð. Á morgnana
og kvöldin fáum við okkur te.
Einstaika sinnum sjóðum við
okkur egg, sem þó sjást varla
hér því að lítið er af hænsn-
um hér um slóðir. Um daginn
keypti ég tíu egg á sex aura
stykkið. Ef ekki er o,f langt á
bæi þá getum við fengið keypta
mjólk og greiðum tuttiuigu aura
fyrir pottinn svo að hún e.r
alls ekki gefin. Að öðru leyti
lifum við mestmegnis af niður-
suðuvörunum, sem mér þykja
áigætar. Ég get hvorki sagt ég
lifi við neinn bungurkost né
lúksuslífi og fljótt reikmað hef-
ur fæðið ekki farið yfir átta-
tíu aura á dag, en vikumatseð-
illinn lítur út eitthvað á þessa
leið:
Það er vikan frá 12.8. til 18.8.
12. Nautakjötssúpa með kjöti
kr 0.25
13. Steikt flesk og kartöflur
kr. 0.50,
14. % lítri mjólk og sm,urt
br,auð kr. 0.25.
15. Baunir og skinka kr 0.50
16 % lítri mjólk og smurt
brauð kr. 1.25.
17. Kvöldverður í Reykjavik
kr. 0.55
18 Pylsur og grænkál
kr. 0.55.
A miðvikudaginn kemur flytj
um við okkur eina mílu sunnar,
oig ég vona að Vesita fari frá
Á föstudaginn var fór ég í
reiðtúr með lautinant Koch.
Við rið-um einar fimm mílur frá
klukkan þrjú til hálf níu og ló
leið okkar um hraun og veg-
leysur, en litlu íslenzku hest-
arnir eru dásamlegar skepnur
og furðu fótvissir. Ég ætla að
geyma að segja ykkur frá
hraunflákunum þangað til ég
kem heim. Það er náttúrufyrir-
brigði, sem enginn Dani getur
skilið nema að hafa séð það.
á