Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1971, Síða 1
BöE *£'*?****?'. . v <■ > -XÍ -K&tM í&CvK ví<- gSSSS -í. ..v>*;
( S3. tbl. 19. scpt. 1971 46. árg. ]
Heimskauta-
borg
undir
tjaldhimni
íslenzkur arkitekt, Einar Þorsteinn Ásgeirsson, er
ásamt fagmönnum frá Japan, Þýzkalandi og Eng-
landi í samstarfshópi, sem telur fullvíst, að þessi
byltingarkenncla hugmynd geti brátt orðið veru-
leiki.
NorÖurhjariim og Suðurskautslandið hafa
íramundir þetta ekki freistað margra til búsetu.
í>að fer hrollur um fólk í suðisegari löndum og
jaflnvel íslenzkt hitaveitufólk lika, þegar sýndar
eru í sjónvarpii myndir af harðri Lífsbaráttu á
Baffinslandi, Grænlandi, Labrador eða Síberíu.
Þó er munurinn á birtiunni í svartasta skamm-
deginu þar og hér einungis sá, að hér er skíma
fram yfir hádegið, en þar er alveg myrkur. En
að sjálfsögðu er mikill munur á hitastigi í þess-
úm iöndum og á Islandi, að minnsta kosti yfir
veturinn.
Þegar Rómverjar voru herraþjóð heimsins
fyrir um tvö þúsund árum, fannst þeixn ekki
ómaksins vert að gera Norðuriandabúa að skatt-
þegnum; lengst komust þéir norður til Englands.
Við Miðjarðarhafið gengu menn á þessum tíma í
kirtlum eða skykkjum, en einhver fræðimaður
hefur nýiega bent á, að þeir hafi gengið berrass-
aðir undir kirtlum sinum og skykkjum og þar sé
komin skýringin á þvi, hvers vegna Rómverjum
fór að líða hálf bölvanlega, þegar norðar kom.
Nú þarf enginn að florðast norðurslóðir vegna
þess að hann hafi ekki Framh. á bls. 4
*