Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1971, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1971, Síða 4
c y Frárennsli frá kjarnorkurafstöðinni mun halda höfninni híöri, en myndin er af líkani, sem höfundar áaitlunarinnar serðu. Þannig mundi hin yfirbyggða heimskautaborg líta út úr fjarlægð. borg undir tjaldhimni Framhald af forsíðu sæmilega hlýjar brækur og full- vist má telja, að margt verra geti hrjáð mannkynið en kuldi og myrkur. Um næstu alda- mót er talið að tala mannkyns verði komin í 7 milljarða og að það taki aðeins 40 ár til við- bótar að tvöfalda þá tölu, verði eklkert lát á fjölguninni. Er þá hætt við að einhvers stað ar verði orðið þröngt, líkt og í Austur-Pakistan, þar sem tug- ir milljóna búa á litlu svæði, meðal annars á lífshættulegum óshólmum. Fullvíst má telja, að stórauk- in byggð rísi upp á norðurhjar anum, vegna þess að í fyrsta lagi þarf þetta fjölmenna mannkyn sífellt aukið land- rými, en i öðru lagi vegna þess, að tæknin mun gera mönnum kleift að lifa þar mannsæm- andi lifi. Borg undir þaki Um þessar mundir er alþjóð- leg sveit arkitekta og sérfræð- inga að vinna sameiginlega að fullkominni áætlun og teikn- ingum af heimskautaborg með gífurlega stóru tjaldi eða plast himni yfir til að tryggja við- unandi loftslag. Áætlunin hljóðar upp á, að þetta mikla þak teygi sig yfir 3 ferkíló- metra iands og að undir því verði hitastig sambærilegt við hitann í borgum Vestur- Evrópu. Af þeim aðilum, sem isoma við sögu í þessari áætl- un, má nefna Ove Arup & Partners í London, sem gert Líkan af heimskautaborginni. í niiðju borgarinnar er gert ráð fyrir stóru litivistarsvæði með vötnum og alls konar gróðri, sem vel á að þrífast við þessar aðstæður. TJtan við borgina sjást flug- völlurinn og höfnin. “1 _ A, ,1 0 / ^5 oa (Sl / Oi Þverskurður af byggingum. Ofanjarðar verður einungis umferð fótgangandi fólks á sjáifrennandi gangstéttuni, en ailir flutningar fara fram nndir grunnplötunni og útilokar það hávaða og mengun. hafa styrkleikaútreikninga, Kenzo Tange í Tokio, Warm- bromim Studio í Stuttgart í Vestur-Þýzkalandi með Otto Frei sem aðalmann. Einar Þor- steinn Ásgeirsson hefur verið við nám í Wanmbromm og telst hann höfundur áætlunarinnar ásamt fleirum, sem hlut eiga að máli svo sem Institut íur leichte Fláchentragwerke og fleirum. Sóiin kiííi- á hveli heiða/hvarma gljár við baiigunum . . . í heim- skautaborginni verða skáldin að láta sér nægja að yrkja um gervisólina kláru á plasthveiinu, — að minnsta kosti yfir vetur- inn, og veturinn verður langur. Teikningin sýnir skermana, sem eiga að jafna sólarljósið á sumrum og gervisólina, en hvort tveggja mun ganga á braut yfir plasthvelið. ÁætlunLn er prótótýpa eða no'kkurs konar lykillausn fyr- ir sams konar heimiskautaborg- ir, byggðar undir hvolfþaki eða himni úr einhvers konar gerviefnum. í greinargerð um byggingaraðferðina segir svo: Byrjað er á þvi að jafna og hyggja kringlótta undirstöðu. Hiimna úr aðskildum, Loftþétit- um hólfum er síðan lögð á und- irstöðuna og þanin út með loft- þrýstingi. Borgin er síðan byggð á venjulegan hátt undir hvolftjaldinu, eða hvað nú á að kalla það. Hugmyndin er ekki ný; ýmsir hugsuðir hafa í alllangan tíma látið sér detta í hug, að þetta yrði reynt, en það er fyrst núna, sem það er 'tæfcniiega mögulegt. Einn þeirra, sem skrifað hafa um þess ikonar hugmynd er Buok- minster Fuiler, frægur banda- rískur verkfræðingur og upp- finningamaður, sem m.a. var höfundur „býkúpunnar" frægu, sem hýsti bandarisku deildina á heimssýningunni í Montreal. En hann var þó engan veginn í hópi þeirra fyrstu, sem skrif- að hafa af einhverju viti um heimskautaborg undir þaki. Tilkoma gerviefna, sem eru í senn létt og gífurlega sterk, hefur valdið þvi, að nú er far- ið að gera tilraunir fyrir al- vöru. Mætti í þessu sambandi minna á tjaldhimin þann hinn mikla, sem á að teygja sig yfir stóran hluta Ólympiusvæð isins í Múnchen á leikunum 1972. Hljóö og heilsu- samleg borg 15—45 þúsund manna Áætlunin gerir ráð fyrir, að útblásið nái hvolftjaldið yf- ir tveggja kíiómetra þvermál og séu 240 metrar undir það, þar sem hæst er i miðju. Uppistað- an í þakinu eru polyesterþræð- ir, en á það er strengd tvö- föld gagnsæ hirnna úr svo seigu efni, að maður getur gengið á henni strengdri. Enda mun ekki af veita; einhver spyr ugglaust, hvort hvolf- tjaldið muni ekki sviptast af í fyrsta heimskautabylnum. Höf- undarnir segja, að það eigi ekki að koma til og snjór á heldur ekki að geta safnazt á tjaldið. Hann fýkur út af því og á að safnast fyrir utan með þvi. Gert er ráð fyrir staðsetn- ingu í nánd við höifn og flug- völlur yrði byggður utan við borgina. Yfirbyggðir gangar liggja undan hvolilþakinu út til flugvallarins og eins til hafn- arinnar. 1 skýringum við áætl- unina stendur, að yfirbyggðir gangar mun einnig liggja út til geymsluhýsa fyrir véla- og bilakost borgarbúa. Bendir það tii, að bílaum.ferð verði ekki leyfð innan borgarinnar, sem kannski er líka óþarft, þegar lengsta leið er ekfci meiri 19. september 1971 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.