Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1972, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1972, Blaðsíða 2
Garfield á s.júkrabeði. Með honnm eru læknarnir Graham Bell og Simon Neweomb. að hann hafi verið heilsuveill og taugaveiklaður drengur, sem áð vísu hafi verið góðum gáfum gæddur, en hafi fljót- lega hneigzt til ofstækis í trú- málum. Þegar hann var nítján ára gamall gekk hann Oneida á hönd, og trúflokkurinn veitti honum aðstöðu til að vinna, svo og að sökkva sér niður í bibliu- kannanir. Vorið 1865 skyldi hann hefja lífsbaráttuna upp á eigin spýtur, hann hafði þá afl að sér nokkurs fjár og hug- myndir hans um trúmál virðast þá hafa verið ákaflega brengl- aðar og ruglingslegar. Hann hafði nú í hyggju að stofna kristilegt dagblað „Daily Theoerat" í New York. f>etta mistókst gersamlega og hin mikla fyrirmynd hans, Noy es, varð sá sem beizkja hans og smán kom til með að bitna hvað mest á. Árangurinn varð sá að hann sagði sig ekki að- eins úr Oneida, heldur kom nú upp ágreiningur milli hans og föður hans, sem varð til þess að leiðir þeirra skildu fyrir fullt og alit. Guiteau hafði lokið prófi í lögum árið 1868 og hann sneri sér nú að þeim störfum, þótt í smáu væri. Hann kvæntist einnig um þessar mundir, en skapsmunir hans voru slíkir að hjónabandið stóð aðeins skamma hríð og endaði síðan með skilnaði. Upphófst þá mikið vandræða tímabil I ævi Guiteaus, þvi að svo til allt sem hann kom ná- lægt fór út um þúfur og allt gekk honum í óhag. Hann vann sér ekki orð sem lögfræð ingur og reyndar komst það orð á að hann hlunnfæri og blekkti skjólstæðinga sína á ýmsa lund einkum í f jármáium. Aftur hafði hann uppi marg- slungnar áætlanir um að hefja útgáfu dagblaðs, en varð eins og fyrri daginn að gefa það upp á bátinn. Guiteau hætti nú lögfræði- vafstri og gerðist farprédikari. Hann samdi ótal smábæklinga, þar sem hann lagði út af kenni setningum eftir sínu eigin höfði. Um svipað leyti vaknaði með honum áhugi á stjórnmál- um. En þar varð honum ekki ágengt að heldur og enginn vildi á hann hlýða. Guiteau fylgdi Conkling að málum og hann fylltist megn- ustu óánægju, þegar Garfield var kjörinn. Engu að síður fylgdist hann þó með athöfn- inni í Washington, þegar Gar- field sór embættiseið sinn. 1 ævisögu Guiteaus eftir Charles E. Rosenberg, sem ber titilinn „The Trial of the Ass- assin Guiteau" dregur höfund- ur upp mynd af lífsþreyttum manni, sem lét snemma ævinn- ar bugast og fylltist beizkju og sjálfsvorkunnsemi. Hann dreg- ur einnig upp útlitsmynd af honum sem lágvöxnum manni og horuðum, 39 ára gömlum, í snjáðum fötum og lúðum. Guit- eau leit svo á að svikari væri setztur að í Hvíta húsinu, þar sem Garfield var. Sú hugsun tók að ásækja hann að það væri Garfield, sem stæði í vegi fyrir að hann hlyti réttmætan og verðskuldaðan frama í líf- inu. Honum yrði að ryðja úr vegi. LAU GARD AGURINN 2. JtJUf 1881 Laugardaginn 2. júlí 1881 hafði James Garfield verið for seti Bandarikjanna tæpa fjöra mánuði. Sá tími hafði einkennzt af þeirri ólgu innan flokks hans sem fyrr er getið og eng- ar meginlinur höfðu verið markaðar. í marzmánuði hafði Alexander Rússakeisari annar fallið fyrir morðingjahendi, en í Bandaríkjunum vakti það litla athygli; lífið var allt einang- aðra og takmarkað við Banda- ríkin. Þennan júlidag var Garfield á leið í heimsókn í gamla há- skólann sinn William College í Massachusetts. Siðan ætlaði hann að flytja ræðu. Lestin átti að leggja af stað frá Was- hington kl. 9.30 um morguninn. Aðeins fimm minútum áður kom Garfield til járnbrautar- stöðvarinnar í fylgd með Blaine, utanríkisráðherra. Við dyrnar á stöðvarhúsinu stóð iögregla heiðursvörð. Kvöldið áður hafði Charles Guiteau skrifað, hvar hann var staddur á ódýrú gistihúsi í Was hington: „Ég vildi forsetanum ekkert illt. Dauði hans var póli tisk nauðsyn." Þennan laugar- dagsmorgun snæddi hann stað- góðan morgunverð af beztu lyst og skundaði síðan áleiðis til járnbrautarstöðvarinnar. Hann nam staðar einu sinni á leiðinni til að láta skóburstara gljápússa skóna sína og hann afhenti fjölda bréfa til dagblað anna, þar sem stóðu þau orð, sem hér að ofan voru. Kearney lögreglustjóri, sem stóð úti fyrir stöðvarhúsinu heyrði skyndilega skammbyssu skot innan úr stöðvarsaln- um. Hann þaut inn og rakst í flýtinum á lágvaxinn mann, sem var á útleið i miklu hasti. En Kearney þóttist vita, að eitt hvað hefði gerzt inni á járn- brautarsalnum og hann stöðv aði manninn á flóttanum. Sjón- arvottar staðfestu að maðurinn hefði skotið á forsetann, sem lá í blóði sínu á gólfinu. Læknir var þegar kvaddur á vettvang og forsetinn var flutt- ur aftur til Hvíta hússins. Einn af þeim mönnum, sem var við sjúkrabeð hans var Robert Todd Lincoln, varnarmálaráð- herra og sonur Abrahams Lin colns, sem 16 árum áður hafði einnig orðið fyrir skpti laun- morðingja. Þegar Kearney flutti mann- inn til næstu lögreglustöðvar voru menn í fyrstu ófáanlegir til að trúa því, að Garfield hefði verið skotinn. En sá hand tekni, Charles Julius Guiteau varð fyrstur til að staðfesta skýrslu Kearneys. Hann dró fram bréf, sem utan á var skrif að til Shermans hershöfðingja, þar sem sagði að dauði forset ans væri pólitísk nauðsyn. 1 Hvíta húsinu barðist Gar- field við dauðann, en sögusagn ir fóru samstundis á flug um höfuðborgina og mögnuðust óð- fluga. Við yfirheyrslur lýsti Guiteau hiklaust stjórnmála- skoðunum sínum og kvaðst ein dreginn fylgismaður Comkl- ings. Þetta varð vitaskuld til að mjög magnaður orðrómur komst á kreik um að hann væri aðeins handbendi andstæðinga forsetans sem hefðu viljað ryðja honum úr vegi. Og nú rifjaðist morðið á Rússakeisara upp að nýju og ýmsir höfðu uppi þær kenningar, að skipu- lagðar alþjóðlegar hryðju- verkasveitir væru á bak við verknaðinn. En ekki leið á löngu áður en það mátti vera öllum lýðum ljóst, að Guiteau hafði framið verknaðinn upp á eigið eindæmi. Guiteau var að sjálfsögðu að alumræðuefni manna á meðal um gervöll Bandaríkin þessa júlídaga. Og hann naut þess að vera miðpunktur athyglinnar. Hann var óspar á að gefa yfir- lýsingar og tjá skoðanir sínar, hann sagði fyrir endurminning •ar sínar, þar sem koma fram að sérfræðinga dómi afdráttarlaus geðklofaeinkenni. 1 fyrstu Ieit út fyrir að Gar- field myndi lifa skotárásina af. Reynt var á allan hátt að lina þjáningar hans og færustu læknar kvaddir að beði hans. I byrjun september var hann fluttur til húss síns í New Jersey, þar sem veður var sval ara. En hægt og bítandi dró af honum og hann lézt þann 19. september. Hann var 49 ára að aldri. Almenningsálitið var tví- mælalaust á móti Guiteau. Ýmislegt er sameiginlegt með þeim atburðum, sem þarna gerð ust og í málinu Oswald-Kenn- edy. Þann 11. september skaut fangavörður á Guiteau, en missti marks. Vörðurinn Mason að nafni varð engu að síður þjóðhetja í landinu um nokkra hríð. 1 skrfum sínum í fangelsinu lagði Guiteau alltaf áherzlu á pólitíska nauðsyn verknaðarins, talaði um vilja guðs, sem hefði stjórnað honum og svo fram- vegis. Eftir andlát Garfields var augljóst að eina von Guit- eaus til að sleppa við dauða- dóm var að hann væri úrskurð aður vitskertur. En hann hafði framið morðið að yfirlögðu ráði og því var með öllu óhugsandi að hann yrði ekki látinon taka afleiðingum gerða sinna með því að vera líflátinn. Réttarhöldin yfir Guiteau hófust 14. október. Mágur hans, Sooville að nafni var verjandi hans, en átti óhægt um vik, því að Guiteau greip sýknt og heil agt fram í og mótmælti óspart vörn þeirri, sem Scoville hélt uppi, þegar honum bauð svo við að horfa. 1 lokaræðu sælcj- andans Davidge hélt hann þvi fram að þær hvatir sem lægju til verknaðarins væru af hé gómlegum og metnaðarlegum toga spunnar, og Guiteau hefði gert sér fulla grein fyrir þeim. Tal sakborningsins um guðleg- an innblástur væri kjaftæði eitt og aðeins til þess gert að reyna að forða morðingjanum frá því að taka út refsingu sína. Þann 5. janúar 1882 kvað kviðdómur upp úrskurð sinn. Guiteau var dæmdur til dauða fyrir morðið á Garfield, sem talið var framið að yfirlögðu ráði. Síðasta von Guiteaus var nú að leita til nýja forsetans Chesters Arthurs, en hann treysti sér ekki til að breyta dóminum yfir forsetamorðingj anum. Þann 30. júní, tæpu ári eftir að Guiteau hafði skotið á forsetann var Guiteau hengd- ur. Þar lauk lífi sjúks manns, en hanm var einnig fórnar- lamb uppvaxtar síns og að margra dómi einnig fóm- arlamb hinna miklu hugsjóna S'amtíma síns — framfaranna. Japönsk smáljód Sorgarljóð Þegar ég hræri strengi á sítar mínum, kveina ég dapur. Máski geymir hann anda látinnar konu minnar. Ókunnur höfundur (frá Nara-tímanum). Sumarnótt Vart hafði ég í nótt lokað augum mínum, er ég var vakinn af rödd morgungauksins, og það var perlugrár dagur. Ki no Tsurayuki (884—946). Þráinn Bertelsson þýddi. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. maí 1972

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.