Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1972, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1972, Qupperneq 3
Beina- fundurinn á Fossá 1896 Páll Böðvar Stefánsson skráði Árið 1896 var rifið niður mikið stórþýfi í túninu á Fossá við Hvalfjörð norður og aust- ur frá baanum. Miðsvœðis í stykki þessu var þúfa, er oft hafði vakið eftirtekt og talsvert umtal meðal gesta og heima- manna. Það gerði tómahljóðið er vart varð við, þá gengið var harkalega um hana, eða stapp að niður fæti. Allur grassvörð- ur hafði verið ristur ofan af þessu mikla stykki, og byrjað að pæla, er gest bar að garði, bóndann að Hvitanesi. Bauð Matthias Eyjólfsson fóstri minn, honum í bæinn til kaffi- drykkju. Ólafur móðurbróðir minn hafði oft við orð, að skyggnast í þúfu þessa, en pabbi hans bannaði sMkt rask. En nú kom tækifærið til rannsóknar. Þá sundraði Ólafur þúfunni. Und ir henni nærri miðri var dæld nokkur og lausleg moldin. Þar kom í ljós talsvert af hálffún- um beinum. Hafði auðsjáanlega verið grafin geil niður milli þúfnanna og inn undir, svo þarna varð ágætur og öruggur felustaður. Verksummerki voru algerlega hulin, þeg- ar vandlega var frá gengið. Ég hljóp með tvö bein inn í bæ- inn til gömlu mannanna. Afa mínum brá við fund þennan. Þeir grandskoðuðu beinin nokkra stund með hörku og al- vörusvip. Ekkert orð fór þeirra í milli, þar til afi rauf þögn- ina og bað mig skila til Ólaís að grafa öli bein vel og vand- lega niður, og var svo gjört. Þarna fann ég hjá beinunum merkisgrip er var á stærð við stór steinbrýni, en ólíkt að lög- un, því það hafði verið skaf- ið svo mjög fram af báðum endum og brúnum á alia vegu, að ekki voru þeir meir en 12 mm þvermáls. En nærri 50 mm hver kantur um miðju. Graflet- ur var á þrem hliðum steins- ins. Á einum stóð G.Þ., á öðr- um troglagaður reitur en á þriðja kantinum að líkindum árlalið 1744. DRAIJMURINN Nóttina eftir þennan óvænta fund dreymir mig að ég er staddur norðan við bæinn hjá fyrrnefndri þúfu. Mér þótti túnið líta út eins og ég hafði vanizt, og ekkert jarðrask far- ið þar fram. Brátt verð ég var við ókunnugan mann þarna. Hann er vel meðalmaður á vöxt, beinn og þreklegur, blá- eygður og fagureygður, skarp- leitur, ljóshærður og skegg- laus. Berhöfðaður er hann og yfirhafnarlaus en kjólklæddur, buxur dökkar, með mjög grönnum ljóslituðum röndum. Mér ,kom í hug að hafa séð prestinn okkar Þorkel á Reyni völlum í mjög iíkum klæðnaði á stórhátiðum og taldi víst að maður þessi væri hámenntaður höfðingjasonur, eða jafn hátt- settur og skipaður embættis- maður. Hann var lítillátur og ljúfur í allri framkomu; bað mig fylgja sér til húsbóndans að falast eftir gistingu. Þá gengum við rakleitt til bæjar. En mér þótti undarlega við bregða, því hlaðið og göngin inn í bæinn og þá ekki sízt bað stofan voru þéttskipuð fólki, konum og köi'lum, er ég hafði aldrei fyrr séð. En gömlu mennirnir, Hvitanesbóndinn og afi minn, sátu við kaffi- drykkju, rétt eins og þegar ég var að sýna þeim beinin. Þá lét ég afa minn vita um komu ferðamannsins er ætlaði að biðja um gistingu. En hann sagði hana heimila og honum veikomna. Þeir heilsast og afi spyr gestinn, hvaðan hann komi, svo um nafn hans, og hvert ferðinni sé heitið. Gest- urinn svarar öllu greið- lega. Hann kveðst koma að vest an, héti Gunnar og vera á leið suður. Fleiri orð fóru þeirra miili er ég festi ekki í minni. Svo gengum við Gunnar út og norður fyrir bæinn að beina- þúfunni. Þar hvarf hann mér algerlega. Og er draumurinn þar með á enda. Nálægt 20 árum eftir að mig dreymdi þennan draum, hitt- umst við Hannes Þorsteinsson þjóðskjalavörður • inn undir Kirkjusandi. Var hann á morg- ungöngu, en ég á heimleið frá sundlaugunum þennan sunnu- dagsmorgun. Kom mér þá í hug að heilsa karli og segja honum frá beinafundinum ásamt draumnum. Hannes tók mér mjög vel og bað mig hefja frásögn mína, greinilega og ró- lega. En er ég hafði lokið henni, kvaðst hann vel vita, að nú ætti hann að leysa úr gát- unni, hver hinn kjólklæddi maður hefði verið, og sagði ég hann hitta rétt á það. Ekki kvaðst karl geta lofað mér því fullkomlega. En víst vildi hann reyna að gjöra allt er sér væri mögulegt til þess að fræða mig um þetta, með því að þetta virtist vera all- merkilegt. Bað mig að koma til sin á Landsbókasafnið, eftir nálega mánaðartíma. En aldrei gat ég gefiö mér tíma til þess. Þar næst skipaði hann mér að ganga með sér og yrða ekki á sig að fyrra bragði, heldur bíða þess, að hann ávarpaði mig. Gengum við fullan klukkutíma og fórum mjög hægt. Nokkrir menn er mahtu okkur tóku ofan höfuðföt- in fyrir skjalaverðinum, en hann virtist ekki verða þess var. Svo er við vorum komn- ir að húsdyrum Hannesar, kvaðsV hann vilja segja mér það liklegasta er honum gæti sem stæði í hug komið um kjólklædda manninn. Hafi hann átt upphafsstafina á steininum, er þið funduð hjá beinunum, svo sem draumur- inn bendir til, þykir mér Mk- legast að maður þessi hafi ver- ið Gunnar Þórðarson frá Hvammi í Dölum. Hann var skólagenginn innanlands og ut- an. Stúdentspróf tekið hér heima, og embættispróf við Hafnarháskóla. Síðan stundaði hann nám i Frakklandi, og i Þýzkalandi. Það bera skóla- bækur þar með sér á hvorum stað. Og alls staðar er hans getið á sama hátt. Framúrskar- andi námsmaður, stakur reglu maður i einu og öllu, en hvergi er hans getið eftir að hann nær 27 ára aldri. Við Jón Þor- keisson höfum leitað hans i mörg ár utanlands sem innan, og engu orðið nær um afdrif hans fram yfir það sem ég hef nú um getið. Þykir mér Mkleg- ast, að þetta sé hinn sami Gunnar. Og hafi hann verið myrtur á þessum bæ. En auðvit að er ógerningur að segja nokkuð með vissu um þetta. Fáist ekki önnur gögn fyrir því sem tæplega er hugsanlegt úr þessu. Foreldrar og systkin Gunn- ars, og einn ættliður frá Þórði presti, prófastur Þórður prest- ur að Hvammi í Dölum fædd- ur 1684 dáinn 1739, Þórðarson lögréttumanns, Finnsonar á Ökrum og Guðbjargar Jóns- dóttur frá Syðra Rauðamel Björnssonar. Þórður lærði und ir skóla hjá séra Jóni Hall- dórssyni í Hitardal, stúdent frá Skálholti 1707. Vígðist að Borg á Mýrum 1708. Tók við Hvammi í Hvammssveit 1721 og hélt til dauðadags. Eftir hann er annáli og ættatal. Prófast- ur til æfiloka. Kona séra Þórðar 1709, Þor- björg Eiríksdóttir prests að Lundi, Eyjólfssonar. Börn þeirra, Margrét, átti Jón Sig- urðsson á Ingjaldshóli, 2. Ragnhildur átti Magnús Jóns- son, ráðsmann á Skarði. 3. Sr. Eirikur að Nesi í Aðaldal, fæddur 1713. 4. barn Guðrún, seinni kona Ketils prests á Húsavík. 5. Séra Þorsteinn prestur i Hvammi eftir föður sinn, fæddur 1715. Ein dætra hans, Halldóra, kona Guð- mundar sýslumanns á Svigna- skarði. 6. barn séra Þórðar og frú Þorbjarsjr var Jón, mik- Framh. á bls. 11 ý ‘ts'7 / ' 14. mai Í972 3 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.