Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1972, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1972, Page 7
Enianue! Swcðenborf. Lesendnm skal til frekari fróð- leiks bent á grein um Sweden- borg eftir Kristmann Gnð- mundsson, sem birtist í Morg- unblaðinu 11. þ. m. UR KENNINGUM EMANUELS SWEDENBORGS Sigurjón Guðjónsson þýddi Dulfræðingurinn og náttóru fræðingurínn Emanuel Sweden- borg var fæddur í Stokkhólmi 1688, en dáinn í I.ondon 1772. Hann var sonur Jespers Sved- bergs biskups, er var einn ágæt asti maður sænsku kirkjunnar við lok 17. aldar og í byrjun hinnar átjándu. Swedenborg var mjög bráðþroska og sökkti sér ofan í bækur þegar á barns aldri, sérstaklega trúhneigður, sá dularfullar sýnir og gekk oft í svefni. Faðir hans, sem reynt hafði nærveru engla, var sann færður um að þeir töluðu fyrir munn hans við og við. Swedenborg las „klassisk“ mál (grrísku og latínu) til að byrja með, en sneri sér síðan af mikltim áhuga að stærðfræði og náttúrufræði og hinum mörgu greinum hennar. Á unga aldri fór hann í fjögurra ára námsför til Englands, Frakk lands, Hollands og Þýzkalands, en slíkar ferðir voru iðulega farnar af sonum ríkra heldri manna á Norðurlöndum á þess um tímum. Skömmu eftir að hann kom heim, gaf hann út fyrsta náttúrufræðiritið á sænsku. Þessi hálærði maður var í miklum metiim hjá Karli tólfta konungi. Aðlaði konung- ur hann. Breytti hann þá ættar nafni sínu úr Svedberg í Swed enborg. Árið 1745 tekur hann að rita um trúmál, sem hann liallaðist æ meira að. Hann er þá í Lond- on. Hann sér þar sýnir: Krist- ur birtist honum og allir leynd ardómar himinsins, andaheims- tns og vitis ljúkast upp fyrir honum, að því er hann telur. — Fjarskyggnisgáfa lians var slik, að frá London sá hann Stokk- hólm brenna. Trúarrit sín — og önnur — reit hann á Iatínu og gaf út í London, með því að útgáfa þeirra var bönnuff í Svíþjóð. Svo er Swedenborg lýst, að hann hafi verið frábærlega geð þekkur maður, enda eignaðist hann marga vini og áhangend- ur, en um leiff harffa andstæð- inga, sem ekki gátu fellt sig við ýmsar kennlngar lians. — Ekki niyndaði hann sjálftir sér- trúarsöfnuð, en alllöngu eftir hans dag bundust áhangendur hans samtökum um það. Hreyf ingin brciddist út um Evrópu og Ameríku, og lifir þar góðu lífi enn ■ dag. Ber hún nafnið: Kirkja hinnar nýju Jerúsalem. Swedenborg boðar: Guð er einn undir þrem nöfn um. Biblian er guðdómlegt verk, sem túlka her andlega. Maðurinn verður hólpinn fyrir trú og siðgott líferni. Maðurinn rís upp strax eftir dauðann, í andlegum líkama. Getur niaðurinn aflað sér auðæfa, en haldið þó voninni um himininn? Hverjum manni ber að hugsa um sjálfan sig og afla sér lífs- nauðsynja: fæðis, fatnaðar, hús næðis og annarra hluta, sem eru samfara því lífi, sem hann er þátttakandi í. Og honum ber ekki aðeins að afla þeirra fyrir sjálfan sig, heldur einnig sína nánustu, og miða ekki einungis við daginn í dag, heldur cg framtíðina. Með því að afla lífs nauðsynja, er hann fær um að hjálpa öðrum. Án þeirra getur hann það ekki. Ef tilgangurinn er sá einn að verða ríkari en aðrir, einungis sakir sjálfra auðæfanna, af ánægjunni að verða öðrum meiri, er tilgangur hans illur. Maður, sem er þess sinnis, elsk ar ekki náunga sinn, en sjálf- an sig. — En ef tilgangur hans með söfnuninni er að geta orð- ið öðrum að liði: samborgurum, þjóðfélaginu, landi sínu og kirkju, — þá er vel. Ef tilgang- ur hans með því að öðlast opin bera þjónustu hefur sama markmið, elskar hann aðra. Það er tilgangurinn í þessum efnum, sem skapar manniniL Fer upprisa mannsins fram þegar í stað eða er henni skotið á frest? Þegar maðurinn hverfur úr þessum heimi inn í andlegan heim, eins og verður er hann deyr, fer hann með allt með sér sem maður, nema jarðnesk an Iíkama sinn. Þegar hann heldur in.n í andlegan heim, eða lífið eftir dauðann, er hann í líkama eins og hann var í í þess um heimi, að útliti er engínn munur. En líkami hans er þá andlegur, og þannig aðskiiinn frá öliu jarðnesku. Maðurinn rís upp strax eftir dauðann og þá birtist hann sjálfum sér í líkama eins og þeim, sem hann haíði hér, með svipuðu andliti, örmum, hönd- urn, fótum o.s.frv. Þegar hann sér sig og þreifar á sér, finnst honum hann vera eins og hann var í heiminum. Engu að síður er það sem hann sér og þreifar á ekki ytri mynd, er hann bar í heiminum, heidur hans innri maður, einmitt þetta mannlega sem lifir. í stuttu máli: Þegar maður- inn hverfur frá einu lífi til ann ars eða frá einum heimi til ann ars, þá er það eins og að flytja sig milli stafe; því hann tekur með sér allt sem með honum bjó. Þegar maðurinn deyr, flytur hann aðeins frá einum heimi til annars. Og því er það, að dauð inn í Orðinu táknar að réttum skilningu upprisu og framhald lífsins. Þannig er iíkamsdauðinn ekki annað en ficimhald lífsins. Því að þegar maðurinn deyr, rís hann upp í andanum. Dauð- inn er því einungis frambald lífsins. Vegna dauðans yfirgef ur maður lífið í jarðneskum heimi og lifir í andlegum heimi. Hagur mannsins fyrst eftir dauðann er líkur því sem hamn var í heiminum, af því að mað urinn er ennþá sjálfum sér lik ur hið ytra. Hann hefur því svipað andlit, er svipaður í máli og i lund, svipaður að siðgæði og að þegnlegu lífi. Hann veit ekki annað en að hann sé á jörðinni. Hann veitir þó athygli þvi sem verður á vegi hans og man það sem englar sögðu við haim, þegar hann var reistur upp. Nú er hann andi. Þannig er einu iífinu framhaldið í öðru. Dauðinn aðeins millivegur. Náttúrlegi líkaminn er ekki framar nauðsynlegur Sankti Páil segir í I. Kor. 15, 44: „Það er náttúrlegur líkami og það er andlegur líkami“. Þegar likaminn er ekki leng- ur starfhæfur í náttúrlegum (jarðneskum) heimi, er sagt að maðurinn deyi. Þetta gerist þegar önduninni og hjartslætt- inum lýkur. Samt deyr maður inn þá ekki, en er aðeins skil- inn frá líkamanum, sem hann notaði hér í heimi, þvi að sjálf- ur mílðurinn lifir. Sagt er að sjálfur maðurinn lifi, af því að hann er ekki maði>r fyor ágæti likama sins, heldur aonda sins; því að andinn hugsar í mannin um. Af þessu er það augljóst, að þegar maðurinn deyr, flytur hann aðeins frá einum heimi til annars. Maðurinn skilur ekkert eítir við dauða sinn nema beinin ein og holdið, sem meðan hann var í heiminum, var lífi gætt, ekki af sjálfu sér en andamun, sem var hans kjarni, tengdur líkam anum. Því er það svo: Allt skynsemi gætt iíf, sem birtist í líkaman- um, er frá andanum komið, ekk ert af því (/' af líkamanum; þvi líkaminn, eins og sagt hefur verið, er af efninu, og efninu, sem er uppistaða líkamans, er bætt við, til þess að andi manns ins megi iifa og vinna |itt verk í jarðneskum heimi, þar sem áliir hlutir eru efnislegir og líf vana í sjálfum sér. Geymir maðurinn minningar sínar í öðru lífi? Ennfremur tekur hann með sér minningar sínar héðan; hann varðveitir allt sem hann hefur heyrt, séð, lesið, lært og hugsað i heiminum, frá frum- bernsku tii ævienda, en þar eð hinir náttúrulegu hlutir, sem geymast í minningunni eiga sér ekki eftirlíkingu í andlega heiminum, verða þeir eftir. Af þessu er augljóst, að mað urinn tekur með sér allar minn ingar sínar, og að ekkert er svo vandlega falið í heiminum, að það verði ekki opinberað eftir dauðann, og það í nærveru margra. Sjá orð Drottins í Lúk. 12, 2.-3. v.: „En ekkert er það hulið, er ekki verði opinbert, né leynt, er ekki verði kunn- ugt. Því mun allt það, sem þér hafið talað í myrkrinu, heyrast í birtunni, og það sem þér hafið hvíslað í herbergjunum, það mun kunngjört verða á þökum uppi“. Andar og englar haía minni eins og menn; því að það sem þeir heyra, sjá, hugsa, vifja og gjöra býr með þeim og eru með al, sem skynsemi þeirra nærist stöðugt á, allt til eilífðar. Getur maðurinn þekkt vini sína — og fundið þá? 1 andlega heiminum getur maðurinn því aðeins nálgast annan, aS hann þrái hann inni- lega . . . og öfugt, ijarlægzt annan, sem hann vill ekki blaíida geði við. Þar sem andi mannsins brátt eftir dauðarm er þessj eðlis, þekkja hann vinir hans og kunn ingjar frá þessum heimi; því að andar þekkja mann, ekki að- eins af andliti hans og tali, þegar þeir eru nálægir, heldur einnig lífssviði hans. Þegar ein hver í öðru lifi hugsar um ann an, hugsar hann um andlit hans og um leið einhverja hluti, sem tengdir eru lífi hans. Og þegar hann nú gerir þetta, verður )#inn nálægur, eins og sent hafi verið eftir honum eða ' ha#n kallaður. Svona er þessu farið í andlega heiminum, af því að hugsanirnar þar eru yfirfærðar og þar er ekkert rúm eins og hér í heimi. Þess vegna þekkja allír vini sína, ættmenni og kunningja, þegar þeir hafa geng ið yfir um til annars lífs, og þeir tala við þá og hafa aðan samskipti við þá, eftir vináttu þeirra hér í heimi. Þeir, sem verið hafa vinir og kunningjar í likamslífinu, bitt ast og tala saman í heimi and- anna, þegar þá langar til, eink- um hjón og bræður og systur . . . Þegar þeir eru komnir frá heimi andanna, til himins eða heljar, sjást þeir ekki framar, né þekkja hver annan, nema þeir séu andlega skyldir og unni hver öðrum. Þeir sjást i heimi andanna . . . af því að þeir sem þar dvelja eru leiddir inn í svip að ástand því sem þeir voru í í líkamanum, frá einu stigi til annars; en síðar, á himní eða i helju, eru allir íærðir tíl óbreyt anlegs ástands, sem ber mynd ráðandi kærleika þeirra, og þá þekkir einn annan aðeins af skyldleika kærleikans. Andar, sem aðrir eru að hugsa um — til dæmis, þeir sem hafa verið á eínhvern hátt kunn ir þeim í jarðnesku lifi — eru, þegar Drottinn lofar, nálægir á augabragðí. Og svo nálægir, að þeir eru í talfæri, án snert- ingar, eða þá í nokkurri Ijar- lægð, meiri eða minni. Er maðurinn hólpinn af því að Drottinn fyrirgefur honurn afbrot hans? Meðlimur kirkjunnar nú á dögum trúir þvi, að sérhver Framh. á bls. 12 14. maí 1972 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.