Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1972, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1972, Page 8
RÉTTUR NEYTANDANS Sættir fólk sig möglunarlaust við gallaða vöru eða lélega þjónustu og hver er réttur kaupandans gegn seljandanum? Rætt við tvo forsvarsmenn neytendamála. Eru íslendinffar sinnulausir um eigrin hag ? I.áta þeir b.jóða sér ýmisleg-t vegna skorts á samstöðu og meðvitund um rétt sinn? Nenna þeir ekki að legg.ja neitt af mörkum, nema þeir s.jái samtímis ágóðann renna í eigin vasa? Sé svo, stendur þetta s.jálfsagt til bóta, þegar borgarmenning verður liér liáþróaðri, og við aðlögum okkur að samfélagi, sem veitir neytandanum æ meiri þ.jón- ustu. Gallinn er sá, að neyt- andinn verður að kunna að velja og hafna og þekkja mun á nauðsyn og blekkingu. Hann verður að hafa þá félags- hyggju, að geta myndað sam- stöðu með öðrum neytendum, til varnar Iélegri þjónustu. Hvað er að gerast hér á Iandi í neytendamálum ? Eftir að hafa kannað það lítillega, komumst við að raun um, að þessi mál eru i örri þróun. Neytendasam- tökin eflast með hverju árinu sem líður, neytendafræðsla verður bráðlega skyldunáms- grein i öllum skólum, ný og fullkomin neytendalöggjöf er á döfinni og mál gætu jafnvel þróazt þannig, að hér verði sett á stofn sérstakt neytenda ráðuneyti. f Noregi starfar slíkt ráðuneyti, en á hinum Norðurlönduniim og víðar, hafa stjórnvöld á einhvern hátt hönd í bagga í þessum málum. Hér á Iandi er um marga að- ila að ræða, sem sinna neyt- endamálum. Væri auðvitað æskilegt, að starfsgrundvöllur þeirra væri á einhvern hátt sameinaður. Fyrst ber að telja Neytendasamtökin, þá I.eið- beiningastöð húsmæðra, heil brigðiseftirlitið og verðlagseft- irlitið, Byggingaþjónustu Akritektafélags fslands, Félag íslenzkra bifreiðaeigenda, fé- lagsmálastofniin Reykjavíkur- borgar, rannsóknarstofnun iðnaðarins og fleiri. Sá grunur gerir stundum vart við sig, að enn búi land- inn að einokunartimabilinii. Hann sættir sig möglunarlaust við lélega eða svikna vöru og skiptir jafnvel af mestu dyggð aftur og aftur við þann selj- anda, sem býður slæma vöru, óhagstætt verð og lélegt vöru- val. Samkeppnin virðist enn ekki konia neytandanum að nógu miklu gagni, og verst er, að það er neytandanum sjálf- um að kenna. Árið 1953 voru stofnuð hér neytendasamtök, en þá voru slík samtök að þróast víða í heiminum. Að loknum ýmsum nauðsynlegum brautryðjenda störfum lá starfsemin niðri i ein 3—4 ár, eða allt fram til ársins 1968, þegar samtök- in voru endurskipulögð. Nú er formaður samtakanna, Óttar Yngvason, lögfræðingur. Hjá honum fáum við upplýsingar um núverandi starfsemi sam- takanna. — Meðlimir Neytendasam- takanna eru nú 5000 talsins og stjórn þeirra skipa 7 manns. Framkvæmdastjóri er Björn Baidursson. Samtökin hafa opna skrifstofu alla daga kl. 9,30—4,30, en kvörtunartími í síma er á milli klukkan 1—5 daglega. Þar er skrifstofu- stúlka, Áslaug Káradóttir, sem sinnir hinum daglega rekstri. Hún og framkvæmdastjóri eru launuð af samtökunum, en Okkur grunar að neytendur séu hlunnfarnir í skiptingu sakar segir Óttar Yngvason, formaður Neytendasamtakanna Neytendur virðast lítið vita um ré'tt sinn gag vart seljanda. öttar Ingvason stjórnin og formannsstarfið er ólaunað. Við viljum ekki taka laun fyrir störf okkar hjá sam- tökunum í þeim tilgangi að reyna að skapa fordæmi þess, að hver og einn leggi sitt af mörkum. Við erum öll neytend ur og þar af leiðandi vinna sam tökin að hagsmunamálum okk- ar allra. En oft er hagsmuna- mál einstaklings ekki svo mik- ið, að það ýti á eftir honum, að leggja eitthvað á sig fyrir heildina. — HvernLg eru samtökin fjár- mögnuð? Hver meðlimur greiðir 300 króna árgjald og þetta árið leggur ríkisstjórnin samtökun- um til 250.000 krónur og borg- arstjórn 240,000 krónur. Yfir- leitt eru stjórnvöld hlynnt sam tökunum og hafa til dæmis á síðasta ári leitað til þeirra um ályktanir á málum, sem of- arlega eru á baugi. Samt eiga Neytendasamtökin hér eftir smástökk til að verða það ríkj andi afl í þjóðfélagiwu, sem shk samtök eru víða annars staðar. — Þú minnist á afstöðu stjórnvalda, en hvað um af- stöðu íslenzkra neytenda og seljenda til samtakanna? — Hún er mjög jákvæð. í kringum 90% neytenda og kaupmanna eru mjög jákvæð- ir i afstöðu sinni til samtak- anna. Það halda kannski marg- ir, að kaupmönnum sé uppsig- að við samtökin, en svo er yf- irleitt ekki. Þeir eru flestir það miklir kaupmenn að sjá sér hag í að hafa kúnnann ánægðan. Aftur á móti eru neyt endur nokkuð sinnulausir, þó að þeir séu hlynntir tilveru og tilgangi þessa félagsskapar. Það er erfitt að fá fólk til að leggja eitthvað af mörkum per- sónulega. — Hver er svo helzta starf- semi samtakanna? — Kvörtunarmálin eru auðvit- að viðamest og það eru þau mál, sem við höfum mest getað sinnt hingað til. Útgáfustarf- semi hefur aukizt og batnað að undanförnu og i undirbúningi er svo vinna við sjálfstæðar rannsóknir og nánara eftirlit með verðlagi og þjónustu. Ann ars er náttúrlega fátt mannlegt, sem neytendum er óviðkomandi og oft getum við vísað ýmsum málum, sem til okkar berast til annarra betur viðeigandi aði'a. Síöastliðið ár lét viðskipta- ráðuneytið semja frumvarp að neytendalöggjöf og verður það væntanlega borið fram á al- þingi bráðlega. Annars er lít- ið við að styðjast hvað laga- 8 rÆSBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. maí 1972

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.