Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.1973, Blaðsíða 10
▼
A
A
innlendum
húsgagna-
markaði
Buckingham-sófasett. 3ja sæta sófi og tveir stólar. Bólstrað á gamla
mátann. Dralon-plyss-ákiæði í brúnum eða bleikum lit. Innflutt frá
Englandi. Verð: Kr. 97.600,00. J.L. húsið.
I' Skeifunni varð eigandi verzlunarinnar, Magnús Jóhannsson fyrir
svörum: „Hvað varðar breytingar á smekk fólks, finnst mér áberandi
að fólk velur fremur þyngri húsgögn an 'áður var og sömu sögu mun
að segja erlendis. En húsgögnin eru þá gjarnan höfð á hjólum svo
auðveldara er að flytja þau úr stað.
Einnig mætti nefna, að 2ja og 3ja sæta sófar og einn stóll virðist
vinsælli samstæða nú, heldur en einn sófi og tveir stólar.
Til nýjunga hjá okkur mætti telja, að við framleiðum nú sófasett
með lausum örmum, sem hægt er að snúa við iþannig að tvöföld nýt-
ing verður á áklæðinu.
Hér í Skeifunni eri(m við langmest með innlenda framleiðslu frá
okkar verkstæði, en að erlendrí fyrirmynd."
Enskt svefnsófasett (armana á sófanum má leggja niður og bakpúð-
unum a(r bætt í lengdina, þannig að á hann komi full svefnsófaleingd).
Verð á sófanum ásamt tveimur stólum: Kr. 57.000,00. J.L. húsið.
Af þessari gerð eru framleiddir 3ja og 2ja sæta sófa r og stóll. Grind úr „massivu" mahony. í púðunum er
polyester svampilr og decron-ull. Plyss eða leður-ákl æði. Verð: kr. 93.000,00. Skeifan.
Til hægri:
Ambassador-sófasett. 3ja sæta
sófi, 2ja sæta sófi og stóll. Sófar
og stóll á hjólum. Armar lausir,
þannig að hægt er að snúa þeim
við. Aklæði úr ekta ledri. Verð kr.
143.000,00. Með tauáklæði tæpl.
kr. 100.000,00. Skeifan.
Dönsk plasthúsgögn með bólstruðum setum. Plastið eir steypt i mót-
um, hárautt að lit. Stólunum (raðað saman ■ bekk eða þeir látnir
standa sér}. Verð: stóll kr. 11.900.00, kollur kr. 6.700,00, borð kr.
6.100,00. J.L. húsið.