Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1974, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1974, Síða 3
yfir hann gekk og hrakti hann frá Brunnastöðum. Árið 1703, um það bil þremur árum eftir að Hólmfastur fluttist burt frá Brunnastöðum, bjó hann í hjáleigukoti frá Innri-Njarðvík en nefnt var Bræðrakot. Þetta var kot í suðurátt frá höfuðbólinu, niðri við tjörnina. Á þeim árum voru öll býlin í Njarðvíkum í konungseign. I innra hverfinu voru tvö höfuðbýli, Narfakot og Innri-Njarðvík. Hjáleigur frá Innri-Njarðvík voru þessar: fyrsta hjáleiga var Tjarnarkot, önnur og þriðja hjáleiga voru heima við býlið Njarðvík og hét önnur Jakobshús, fjórða hjá- leigan var Hákot og fimmta hjá- leigan var Bræðrakot og sjötta var Stapakot. Þetta manntalsár bjó Hólmfastur í fimmtu hjáleig- unni, Bræðrakoti, þá 56 ára gamall, Sólveig Sigurðardóttir kona hans 36 ára og Þorsteinn sonur hans 12 ára. Bræðrakot hefur fljótlega eftir að Hólmfast- ur fluttist þangað fengið nafn af honum og síðan heitað Hólmfasts- kot. Hólmfastskoti er svo lýst í jarðabók frá 1703, að þar sé jarðardýrleiki óvís, landsskuld ein alin, betalast með 3 vættum fiskjar til heimabóndans. Við til húsabótar leggur heimabóndinn. Kúgildi í leigu betalast í fiski eður smjöri til heimabóndans. Kúgildi uppbyggir heimabónd- inn. Kvaðir eru mannslán árið um kring og dagssláttur fyrir smiðju- lán árið um kring. Kvikfénaður 1 kýr fóðrast kann. Eldiviðar taka af fjöruþangi bjargleg. A þessu ári 1703 var 51 ibúi á fyrrnefndum bæjum í Innra- Njarðvíkurhverfinu. Af þeim voru 36 á vegum Þorkels og Ljót- unnar í Njarðvík. Höfðu hjónin því til margra góðra að grípa er þeim lá á. Einn af þeim var Helgi Jónsson sterki, húsamaður þeirra, er gerði ýmis stórvirki með sínum miklu kröftum. Má enn í dag sjá verk hans handa þar um slóðir. Jón Þorkelsson Thorkelí, síðar Skálholtsrektor, einkabarn þeirra Þorkels og Ljótunnar á Innri- Njarðvík, var 3ja ára gamall, þegar Hólmfastur og fjölskylda komu til foreldra hans. Þorsteinn í Hólmfastskoti var nokkru eldri að árum en Jón en þrátt fyrir þann aldursmun hafa þeir áreiðanlega átt sínar bernsku- stundir hvor með öðrum þar um slóðir, á túnunum við tjörnina og við sjóinn í nærfellt einn áratug. Jón hefur eflaust oft komið í Hólmfastskot með leikbróður sín- um, og þegar Jón fór að vaxa og þroskast, sem hann gerði svo fljótt og vel, hefur það orðið hon- um m.a. til umhugsunar sú mikla raun, sem á daga Hólmfasts hafði drifið og jafnvel, að sá bróður- hugur, er síðar kom svo eftir- minnilega fram í velgjörðum Jóns Thorkelf til fátæku barnanna í Kjalarnesprófastsdæmi, hafi átt sín fyrstu upptök í návist fátæka leikbróðurinn í Hólmfastskoti, syni þess manns, er einna harðast var leikinn af kúgurum þeirra tíma. Það var árið 1705, þegar Hólm- fastur hafði búið um það bil 5 ár í Njarðvíkum, að Páll Vídalín Jóns- son lögréttumaður var þar á ferð. Hann var að fylgja Árna Magnús- syni prófessor til skips í Keflavík. Vorið 1702 voru þeir Páll og Arni skipaðir f nefnd samkvæmt boði konungs til að kanna hag tslands. Meðal annars áttu þeir að gera jarðarmat og ýmislegt fleira. Á heimleið gisti Páll lögmaður hjá þeim hjónum Þorkeli og Ljótunni í Innri-Njarðvík. Meðan Páll dvaldi þar kom þangað til móts við hann Jón Evjólfsson fyrr- nefndur lögmaður og var Hólm- fastur Guðmundsson f Hólmfasts- koti boðaður á þeirra fund. Jón var nú kominn suður í Njarðvíkur til að hitta Hólmfast í annað sinn. Erindi hans var nú að greiða Hólmfasti svokallaðar miska- bætur, að upphæð 20 rfkisdali og fá Hólmfast til aó lýsa með sér sættum fyrir Páli lögmanni, er gerði svo bréf þar um. Eftir þessa höfðingjaheimsókn fara litlar eða engar sögur af Hólmfasti eða fjölskyldu hans. Þær .-.".gnir hafa lifað mann fram að manni meðal ibúanna í Innra- Njarðvíkurhverfi, að Hólmfastur og Sólveig kona hans hafi dáið í Hólmfastskoti og verið bæði jarð- sett í túninu þar skammt frá bæn- um. Með því fyrsta, sem ég man eftir, var það, að Magnús Magnús- son bóndi í Hólmfastskoti sýndi mér Ieiðið hans Hólmfasts. Magnús kom að Innri-Njarðvík ungur drengur fyrir röskum eitt hundrað árum og ólst þar upp, en fór að búa í Hólmfastskoti árið 1892 og bjó þar með konu sinni Beníu Sigríði Illugadóttur til árs- ins 1943. Þau hjón höfðu í bernsku fengið sínar sagnir um Hólmfast frá öldruðu fólki þar á staðnum, sem fætt var fyrir og um aldamótin 1800. Guðlaug Ölafsdóttir, móðir Beníu í Hólmfastskoti, var fædd 3. apríl 1836. Afi hennar var Ásbjörn Sveinbjarnarson í Innri- Njarðvík, bróðir Egils (ríka) föður Sveinbjarnar rektors. Þessi ættleggur hafði samfellt búið I Innri-Njarðvík frá því 1666 og má þvi með miklum líkum telja, að sögnin um Hólmfast og hans konu hafi haldist óbreytt mann fram af manni. Magnea Ingibjörg, dóttir Beníu og Magnúsar, ólst upp hjá foreldr- um sínum í Hólmfastskoti. Magnea hefur sagt mér, að Guð- laug amma sín hafi sýnt sér leiðin þeirra Hólmfasts og konu hans. Þau eru u.þ.b. 15 — 17 faðma i norðurátt frá Hólmfastskots- bænum. Leiði Hólmfasts var stór þúfa og norðan í því var nokkuð stór jarðfastur steinn, en leiði Sól- veigar var aðeins sunnar og miklu lægra og I því tveir mun minni steinar. Magnea sagði eftir Guðlaugu ömmu sinni, að það mætti ails ekki hreyfa við þessum steinum i leiðum þeirra hjóna. Það var fyrir nokkrum árum að jarðrask mikið var gert á Hólm- fastskotstúninu og áður en varði var búið að raska við leiðum þeirra Hólmfasts og Sólveigar. En sem betur fer eimir samt eftir af stærra leiðinu og staðurinn er vís. Enginn veit með vissu, hvernig kotið hans Hólmfasts var, en víst er, að það hefur verið lítið, dimmt og kalt. Þar hefur kuldinn og fá- tæktin átt heima á hinum löngu og hörðu íslensku vetrum. Þrátt fyrir allt lifði þessi landsfrægi maður í litla kotinu sínu og þar skildi hann við kuldann og kröm- ina, en ekki er vitað hvaða ár þau hjón dóu, og ekki heldur hverjir bjuggu í Hólmfastskoti næstir á eftir, fram til ársins 1773, en þá bjuggu þar Jón Bjarnason 25 ára gamall, sjálfs sín, og Guðfinna Torfadóttir 51 árs, sjálfs sín, og voru þau þar tvö í heimili. Hólmfastskot á sína stóru sorg- arsögu eins og mörg önnur býli í Njarðvíkum frá síðasta aldar- fjórðungi 18. aldarinnar. Árið 1785 var mesta hörmungarár í sögunni, sem yfir það byggðarlag hefur gengiö. Það var m.a. afleið- ang móðuharðindanna miklu. I árslok 1784 bjuggu 122 manneskj- ur í báðum hverfum Ytri- og Innri-Njarðvíkur. Heimafólkinu fækkaði á einu ári 1885 um 'á, það voru 42 sem dóu það ár, og að auki yfir 40 manns, er þar áttu heima um stundarsakir og voru þar á ferð, sem grafnir voru í kirkju- garðinum. A þessu dauðans ári dóu 8 manns í Hólmfastskoti. Þrenn hjón, sem þar bjuggu, og tvö ungmenni þar á heimilinu. Eftir þennan mikla manndauða lagðist Hólmfastskot í eyði um 45 ára skeið, þar til það var aftur uppbyggt árið 1830 og var svo búið þar samfleytt frá þeim tíma í rösk 120 ár, fram yfir 1950, skömmu sfðar var bærinn rifinn og eftir standa gömlu veggjar- hleðslurnar í grasigrónum tóft- um, en gamla bæjarnafnið Hólm- fastskot er enn í fullu gildi, að minnsta kosti í hugum okkar eldri íbúanna, sem höfum þaðan marg- ar góðar minningar frá þeim góðu hjónum Magnúsi og Beníu, sem þar bjuggu lengst af öllum, eða I röska hálfa öld. Nú, þegar þessar línur er skráð- ar, eru rösk 9 ár síðan Jóni Þor- kelssyni (Thorkelí) var reistur verðugur minnisvarði á fæðingar- stað hans að Innri-Njarðvík. Hólmfastur hinn gamli og góði vinur og leikbróðir Jóns liggur að sögn þar skammt frá honum og nú hefur því miður það litla merki, sem upp úr jörðu stóð um minn- ingu hans, að mestu verið þurrk- að burtu og er það illa farið og má ekki svo lengur standa, að rnerki Hólmfasts verði ekki hafið hærra upp og honum verði nú sá sómi sýndur, er hann hefði átt fyrir Iöngu að hljóta af velunnurum réttlætis og bræðralags meðal ís- lensku þjóðarinnar. Gömlu vinirnir og nágrannarn- arir, Jón Thorkelí og Hólmfastur, mættu þá líta hver annan og minnast fyrri tíma á fornum bernskuslóðum. Hvoli f Innri-Njarðvíkurhverfi í ágúst 1974. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.