Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1976, Blaðsíða 9
Ekkert er táknraenna fyrir Færeyjar en ungur og hraustlegur sjómaður Og
þorpiS á myndinni til vinstri er dæmigert og gæti raunar verið hvar sem væri
á Islandi llka: Nokkur jámvarin timburhús. kirkja, fiskverkunarhús, bátar við
bryggju og lækjarbuna I grýttri hllð, þar sem ekki vex tré af nokkurri tegund.
Frá Þórshöfn. Byggingar með gamla laginu setja ennþá svip sinn á bæinn:
Járnvarin timburhús snúa burstum sinum út að höfninni.
í Færeyjum er hafin útgáfa á mjög vönduðu landkynningarriti, sem gefið er
út á ensku og heitir Faroe Isles Review. Það er mjög sambærilegt við
lceland Review, prentað á myndapappír og byggist að hluta á fallegum
Ijósmyndum. Þar ritar William Heinesen um veðrið í Færeyjum, smásaga
er eftir Hedin Bru og Arne E. Thorsteinsson skrifar um fornar byggingar í
Færeyjum. Þetta vandaða rit ætti að verða til að vekja verðskuldaða
athygli á sérstæðri náttúrufegurð Færeyja, menningu Færeyinga og ekki
sízt listrænum afrekum þeirra.
Færeyskt lands-
lag. Ví8a eru
fjöll inn til
landsins. Hérer
færeyskt býli,
en því miður
fylgir ekki sög-
unni, hvað það
heitir.
Landslagið
meðfram
ströndinni er
víða stórkost-
legt og getur að
líta sérkenni-
lega dranga og
bergmyndanir.
i