Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1976, Síða 13
| >r **-' «c $2'
L IL-IL H
Grettisgata 11. íbúðarhús Jens Eyjólfssonar þetta hús reisti hann á árunum 1907—8 HúsiS
hefurenn haldið sínu upprunalega útliti og er þaS vissulega að þakka eigendum þess nú.
smiðjuna með rafljósi, og er
gufuvélin höfð fyrir aflsupp-
sprettu. Verksmiðjan kostaði
tæpar 100 þúsund krðnur og var
sú fyrsta I höfuðstaðnum, en önn-
ur i landinu. Hin fyrsta komst á
stofn f Hafnarfirði árið 1903.“
Hér mun blaðið eiga við timb-
urverksmiðju Jóhanns Reykdals f
Hafnarfirðf, en hann virkjaði
Hamarslækinn f Hafnarfirði til
að knýja vélar verksmiðjunnar.
Það má ljóst vera, að tilkoma
trésmiðjunnar Völundar hefur
verið landsmönnum mikil lyfti-
stöng, ekki sfst á höfuðborgar-
svæðinu f uppbyggingu bæjarins,
sem þá var að stækka úr bæ f
borg. Rúmlega 10 árum sfðar eða
1915 var svo stofnuð önnur verk-
smiðja. Var það timburverslun
Árna Jónssonar, sem byggð var
við Hverfisgötu. Jens teiknaði
það hús einnig og var einn af
stofnendum þess. Bæði þessi fyr-
irtæki hafa veitt landsmönnum
ómetanlega þjónustu og veitt
fjölda manns atvinnu. Augljóst
er að Jens hefur notið trausts hjá
byggjendum verksmiðjanna þeg-
ar þeir fólu honum 25 ára göml-
um, þá nýkomnum frá námi, svo
vandasamt verk. Verkhyggni
hans og áræði að takast verkið á
hendur hefur verið honum góður
skóli og aukið traust manna á
honum sem byggingameistara.
Af þvf sem áður er ritað um
tfmabilið eftir 1910 hefur um þær
mundir hafist vakning og stór-
hugur með þjóðinni. Menn hurfu
frá torfbyggingum, timburhúsa-
byggingar höfðu eignast keppi-
naut, steinsteypan sótti á. öld
steinsteypu var runnin upp, og er
það efni sem við þekkjum best
við húsa- og mannvirkjagerð f
dag. Það hafa þvf verið mörg
verkefni sem biðu ungs bygginga-
meistara og mörgu þurfti að ráða
fram úr. Eftir þetta rekur hver
stórbyggingin aðra, og mun reynt
f skrifum þessum að geta aðildar
hjins að byggingum húsa f bæn-
um, sem heimildir eru til um. Þó
Verslunarhúsið Austurstræti 9 Húsið teiknaði Jens Eyjólfsson
og byggði fyrir Egil Jakobssen kaupmann.
verður hér meira um upptalningu
að ræða en heildarlýsingu.
Bygging stórhússins Nathan og
Olsens, þar sem Reykjavfkur
Apótek og Borgarskrifstofurnar
eru nú til húsa, hlýtur að hafa
verið ungum byggingameistara
mikil uppörvun f starfi. Það hús
teiknaði prófessor Guðjón
Samúelsson. Jens var yfirsmiður
við þá byggingu, en Kristinn Sig-
urðsson múrarameistari. Húsið er
fjórlyft, eins og kunnugt er, með
háum turni. Byggingarfram-
kvæmdir hófust á árinu 1916 og
var lokið á rúmlega tveimur ár-
um. Iðnsaga Islands segir okkur,
að nokkuð hafi verið f hættu lagt,
er farið var að byggja hið mikla
fjórlyfta hús án þess að vita með
vissu um styrkleika steypunnar.
Blöndunarhlutföll eru þó ekki
besti mælikvarðinn um gæði
steinsteypunnar heldur mæling á
styrkleika hennar. Þó voru Iftil-
lega að hefjast rannsóknir á gæð-
um efnisins, en mæling styrk-
leika á steypu byrja ekki fyrr en
eftir 1922. — Steypan var slegin
saman eða hnölluð. Menn gættu
þess vel á þeim árum, að steypan
væri ekki of blaut og hefur slfkt
aukið mjög styrkleika hennar.
En létt verk hefur það ekki
verið að koma svo miklu af Iftt
blautri steypu f þá miklu veggi.
Þvf verður ekki annað sagt en að
nokkuð vel hafi tekist, þar sem
menn vissu óljóst, eða kannski
alis ekki, eins og fyrr segir, um
réttan styrkleika steypu á þeim
árum. Kom þar margt til, sem of
Iangt mál væri að fjalla um hér.
Þó er eitt sem verður að tetjast til
nýjunga á þeim árum og til mik-
ils léttis fyrir verkamenn, en það
var lyftiturn, sem þeir félagar
byggðu við húsið. Notuð var
hrærivél með hreyfli og var
steypan sfðan dregin upp eftir
turninum f hjólbörum með
hreyflinum. Eftir þetta er hræri-
vél notuð við flestar meiri háttar
byggingar og breiðist notkun
hennar ört út. Húsið er allt hið
vandaðasta og verður ekki annað
séð en það hafi staðið af sér stefn-
ur og form nýrra tfma f bygging-
arlistinni. Þak hússins er brotið
þak sem kallað er og var upphaf-
lega með helluplötum, en hefur
nú verið endurnýjað með álplöt-
um. Marmari er f stigum og vel
hefur hann staðist skósóla Reyk-
vfkinga, þvf sennilega hafa fleiri
átt erindi f þetta hús en nokkurt
annað í borginni, sérstaklega á
meðan Gjaldheimtan var þar til
húsa og fleiri stofnanir sem
krefja borgarana um gjald til
samfélagsins. 1 veggjum eins
hringstigans hafa verið steyptir
skápar, þar sem myndastyttum
hefur verið komið fyrir. Stytturn-
ar eru sex að tölu og munu vera
eftir Guðmund Einarsson frá
Miðdal, sem var fjölhæfur lista-
maður. Á stalli listaverkanna er
höfðaletur þar sem hægt er að
lesa sér til um listaverkin.
llm útlit hússins þarf ekki að
fara mörgum orðum, þvf þar er
sjón sögu rfkari, og geta þeir sem
leið eiga um Austurstræti best
um það dæmt. Við aðalinngang
fyrstu hæðar, þar sem Reykjavfk-
ur Apótek er, gefur að Ifta burð-
arsúlu allmikla. Ofarlega út úr
súlunni blasir við okkur við okk-
ur tröllmenni sem fljótt á litið
virðist bera uppi hluta af bygg-
ingunni. Fest á einni hlið hússins
séð frá Pósthússtræti hefur merki
frfmúrarareglunnar verið múrað
f vegg þess, en reglan mun hafa
verið þar til húsa á fyrstu árum
sfnum.
Spölkorn frá húsi Nathans og
Olsens er hús Egils Jakobsens,
þar sem sonur hans (Ilfar Jakob-
sen rekur umfangsmikla ferða-
skrifstofu. Það hús byggði Jens
árið 1920 og teiknaði einnig. Set-
ur það skemmtilegan svip é Aust-
urstræti og ber vott um mikið
listfengi, svo sem sjá má á fram-
hlið þess og er þar sjón sögu
rfkari eins og ævinlega.
En eitt getum við nútfmamenn
ályktað, þegar við virðum þessi
hús fyrir okkur, að ekki verður
annað séð en að gott samstarf hafi
rfkt milli eigenda þessara stór-
bygginga og teiknara, því vissu-
lega hefur allur slfkur fburður
komið við pyngju eigenda. En
hvað var það sem kom mönnum
til að sameinast um að reisa slfk
listaverk sem þessi hús eru? Ekki
var þar um ótakmarkað rfkidæmi
að ræða, þó þeir ættu það allir
sammerkt að hafa með dugnaði
unnið sig upp f nokkur efni. En
vissulega væri gamli miðbærinn
fátækari ef þessara bygginga
nytu ekki við.
Eins og fyrr segir rekur hver
stórbyggingin aðra, sem Jens
Eyjólfsson byggir: Edinborgar-
húsið, sem Seðlabanki Islands er
nú til húsa, Pósthúsið, Laugavegs-
Apótek, Landakotskirkja, Gas-
stöðin, Sláturfélag Suðurlands,
hús Sambands lslenskra Sam-
vinnufélaga, Landakotsspftalinn
og Eimskipafélagshúsið, auk
fjölda annarra smárra og stórra
bygginga. Það má þvf ljóst vera,
að drjúgan þátt hefur hann átt f
byggingu stórhýsa f Reykjavfk á
þeim árum, og hann meiri en
Iðnsagan getur um.
Eins og áður er getið byggði
Jens Gasstöðina við Hlemmtorg.
Saga hennar er vel kunn og hefur
sá mikli björgunarmaður f sögu-
ritun, Arni Óla, lýst henni
skemmtilega f'einni af Reykja-
vfkurbókum sfnum, en Gasstöðin
var sem kunnugt er deilumál á
sfnum tfma. Verksmiðjuhúsið
kostaði 45 þúsund krónur og ibúð-
arhús stöðvarstjóra 12 þúsund.
Voru húsin umgirt hárri girð-
ingu, sem ég hygg að margir eldri
Reykvfkingar muni eftir. Verk-
smiðjuhúsið hefur vikið fyrir
nýrri Lögreglustöð, en fbúðarhús
stöðvarstjóra stendur enn, glæsi-
legt sem fyrr, og minnir okkur á
þá tfma þegar gasið sigraði raf-
orkuna, en valið var á milli þess-
ara orkugjafa. — Ekki get ég lok-
ið svo við þessa stuttta lýsingu á
Gasstöðinni, að ég fari ekki
nokkrum orðum um girðingu þá
sem umlukti verksmiðjuhúsið og
hús stöðvarstjóra. Var hún há og
mikil með þéttum oddlaga riml-
um og þvf ekki árennileg yfir-
ferðar nema fuglinum fljúgandi.
Asgeir Jónsson fræðimaður frá
Gottorp kemst þó f kynni við eina
slfka girðingu, eftir þvf sem ráða
má af lýsingu hans f bókinni
„Horfnir góðhestar“. Þó skal ekki
um það dæmt hér, hvort hér sé
um að ræða hina miklu Gasstöðv-
argirðingu eða einhverja aðra
girðingu. Segist honum svo frá
veru sinni f Reykjavfk:
„Sfðasta kvöldið sem ég var f
Reykjavfk skapp ég upp að Ell-
iðaám með góðkunningja mlnum,
Eggert Jónssyni frá Nautabúi,
sem þá var búsettur f Reykjavfk.
Eggert reið brúnum góðhesti,
sem kona hans átti og kallaður
var Trausti. Við höfðum hesta-
skipti nokkuð af leiðinni, en þeg-
ar við héldum á bakaleið frá
Tungu ofan Laugaveginn, reið
hvor sfnum hesti. — Eg hef ekki
Framhald á bls. 14