Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1977, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1977, Page 2
Svo segir f brezkum blöðum frá júlfmánuði árið 1908, að fregnir bárust vfða að um duiarfullan bjarma á himni og fylgdi svo mik- il birta, að vfða snarbirti inni í húsum. Aðrir greindu frá fullri dagsbirtu að næturiagi. Sfðar varð bjarminn daufgulur og slð sfðast bleikum bjarma á skýin. Enginn vissi, hvað f ósköpunum þetta gat verið. Stjörnufræðingar fóru nú á stúfana. Röktu þeir sögusagnir yfir Evrópu þvera. í Hollandi var þeim sagt, að „öldótt ský“ hefðu farið um himininn. Mönnum f Antwerpen virtist sjóndeildar- hringurinn f norðri loga. Stjörnu- fræðingur í Heidelberg hafði tek- ið eftir þvf, að ljósmyndaplötur urðu óskýrar af ljómanum. Svip- aðar fregnir bárust frá Dan- mörku, Austurrfki og Rússlandi, nema blái liturinn varð æ sterk- ari og rauðguli bjarminn skærari er austar dró. Við þetta bættist og skýrði sfzt málið, að á sérlegum loftvogum f Cambridge og Peters- field fundust stórfelldar svipt- ingar f andrúmsloftinu, svo mikl- ar, að einhvers staðar hlutu að hafa orðið ægilegar hamfarir ein- hvers staðar f Rússlandi. En svo miklar voru hamfarirnar, að loft- bylgjurnar frá þeim fóru tvo hringi um jörðu. Skógar rifnuðu upp Rússneskir vísindamenn voru engu nær um það, sem gerzt hafði, en starfsbræður þeirra á Vesturlöndum. Sprengingin virt- ist hafa orðið einhvers staðar í Síberíu miðri. En það á fjórða þúsund kilómetra og nokkurra vikna ferð frá vísindamiðstöðvun- um í Moskvu og Pétursborg. Biðu vfsindamenn þar óþreyjufullir eftir skýrslum frá Irkútsk og öðr- um bæjum fyrir norðan. Ekki reyndist mikil hjálp i þeim skýrslum. Þar var sagt frá einhverjum hlut líkum ,,röri“ eða ,,staur“ i laginu. Hann hefði birzt á himni yfir Síberíu um dögun 30. júní og stafað miklu, skærbláu ljósi. Hann hefði þotið með ofsa- hraða i átt til jarðar, komið niður um það bil 17 mínútur yfir sjö og sprungið með blindandi leiftri og ægilegum gný einhvers staðar í mýrunum og skógunum við Tunguskafljót í Noðursíberíu. Hljóðið heyrðist 800 kílómetra leið. Eldhnötturinn sást á svo stóru svæði, að jafnaðist á við Frakkland og Þýzkaland saman. I jafnvel 600 km fjarlægð frá sprengingunni brotnuðu gler- munir og myndir duttu af veggj- um en ljósahjálmar sveifluðust til. Sums staðar nær sprenging- unni varð svo heitt á fólki, að við borð lá, að „skyrtur brynnu á bök- um“ svo, sem einn komst að orði. í 40 km fjarlægð svipti loftbylgj- an tjöldum upp og hirðum um koll. Slíkt varð höggið á Síberíu- járnbrautinni, að lestarstjóri einn stöðvaði lest sina af því, að hann hélt, að einhver vagninn hefði sprungið í loft upp. Allt umhverfis sprengingar- staðinn eru geysivíðlendar mýrar, lerki- og birkiskógar; þar var jörð snöggslegin, ef svo má komast að orði. Á 190 ferkilómetra svæði rifnuðu tré upp með rótum, sviðn- uðu og misstu ailt lauf. Sá sem fyrstur rannsakaði sprenginguna, dró upp allliflega mynd af henni handa útlendum fréttamönnum. Hann sagði, að hefði sprengingin orðið i Belgiu miðri „væri nú enginn lifandi maður eftir í landinu. Hefði sprungið i London hefðu allir far- izt og allt að Manchester i norðri og Bristol í vestri. En hefði sprungið í New York kynnu Philadelphiabúar að hafa sloppið með skrekkinn og brotnar rúð- ur...“ Tunguskasprengingin er ein- hver hin mesta, sem skráð er i sögum. Sprengingarnar í Pompeii og Thera voru langtum minni. Aftur á móti mun sprengingin í Krakatoa 1883 hafa verið álíka öflug Tunguskasprengingunni. Bandariski Nóbelsverðlaunaþeg- inn, William Libby, taldi, að ork- an I sprengingunni hefði verið álíka og leystist úr læðingi, er 30 megalesta kjarorkusprengja springur. Það er 1500 fimmtán- hundruð sinnum stærri sprengja en sú, sem sprakk i Hiroshima forðum. Leitað að loftsteini Varla getur meiri eyðifláka en freðmýrarnar norður í Síberiu. Sífelldir blindbyljir geisa þ:r á vetrum, og veturinn stendur mest allt árið, nema fáeinar vikur um sumartímann, þegar jörð þiðnar ofurlitið og yfirborð’ð verður að endalausum mýraflákum undir- lögðum af moskltóvargi. Varla nokkur óvitlaus maður fór þarna norður eftir; það var ekki heigl- um hent. Það var ekki fyrr en Leonid nokkur Kulik kom til skjalanna, að farið var að rann- saka Tunguskasprenginguna að marki. Kulik var frásagnarverður maður. Hann brauzt óravegu um illfært land, barðist gegn fárviðr- um og lét ekki tefja sig þótt hjá- trúafullir sveitamenn norður frá reyndu að leyna fyrir honum sprengingarstaðnum, sem þeir höfðu helgað eldguð einum, er þeir nefndu Ogdy. En auk allra þessar tálma var mikil ringulreið i landini* 'eftir október byltinguna og borgarastyrjöldina. Kulik var maður sérfróður um loftsteina og það var þess vegna, að hann fór að rannsaka sprenginguna. Kulik varð siðar þjóðhetja í Sovétrikjunum, fjöldi bóka hefur verið ritaður um rannsóknarferðir hans. Hann var sannfærður um það, að einhvers- staðar i auðnum Síberíu væri að finna gríðarmikinn loftstein graf- inn í jörðu. Á ferðum sínum var hann hvað eftir annað kominn að dauða. Félagar hans drógu kenn- ingu hans um loftsteininn mjög í efa. En hann styrktist einungis í trúnni. Hann lézt i fangelsi hjá nasistum árið 1942, 58 ára að aldri (hafði með einhverjum hætti komizt í herdeild i eldlinunni) og var þá enn fuliviss um það, að norður í freðmýrunum lægi sá stærsti loftsteinn, sem nokkurn tíma hefði komið til jarðar, og hefði hann valdið sprengingunni. Þegar i upphafi töldu margir kenningar hans vafasamar i meira lagi. Hann hafði komizt norður i mýrarnar fyrsta sinni árið 1927, að undangengum þrem- ur tilraunum, og skýrslur hans úr þeirri ferð þóttu ekki benda til þess, að loftsteinn hefði fallið. í fysta lagi var engan gig að finna, aðeins voru nokkrar grunn- ar dældir; hafði jörðin sigið þar, er hún þiðnaði á svipstundu af hitanum frá sprengingunni. Kulik og aðstoðarmenn hans grófu um allar jarðir en fundu þó aldrei eina örðu úr loftsteini. Trén, sem rifnað höfðu upp voru ekki klofin og brotin svo, sem orðið hefði, ef loftsteinsbrotum hefði rignt yfir þau. Trén rifnuðu bara upp og klesstust í jörðina. Jörðin var sviðin af gríðarlegum hita -að ofan. Hitinn hafði verið slíkur, að kviknaði jafnvel i al- grænum skógi. Því fremur, sem Kulik rannsak- aði málið, þeim mun dularfyllra varð það. Að þvi er hann sagði höfðu ný tré, er laufguðust eftir sprenginguna, „þotið upp, sótt í sólina og lífið af miklum ofsa“. Sum reyndust vaxa fjórum sinn- um hraðar en vant var -og þau hafa haldið þeim vaxtarhraða sið- an. Um mitt sprengisvæðið þar, sem Kulik hélt hann fyndi loft- steininn, fannst trjáþyrping, er enn stóð uppi en trén greinalaus með öllu og stofnarnir sviönir bik- svartir. Sprengingin sem ölti sér stað í Síberiu 30. júní 1908, er talin hafa verið 1500 sinnum sterkari en kjarnorkusprengingin, sem eyddi Hiroshima. En hvað var það sem sprakk? Eftir John Baxter ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.