Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1977, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1977, Blaðsíða 11
reisn þýzkrar kvikmyndagerðar SVERRI PÁLSSON 3. HLUTI Níklashauser Drive) var einnig gerð fyrir sjónvarp 1970 ásamt Fengler. Hér leiðir Fassbinder í fyrsta skipti talið að byltingu, en gerir það með því að vitna enda- laust í sögu bændaleiötogans Hans Bohm frá sextándu öld. Það er talað um byltingu og kenning- ar en vandamálið er frantkvæmd- in. Rio dag Mortes er gerð 1971 fyrir sjónvarp, byggð á hugmynd Volker Schlöndorffs. Enn er Fass- binder hér að fást við utangarðs- rnenn, tvo unga menn, sent reyna að lifa eftir eigin höfði í fjand- samlegu umhverfi. Þeir farast þó ekki í endanlegu uppgjöri við kúgarana, eins og Franz og félagi hans í Götter der pest, heldur komast þeir hjá því með því að flýja. Eftir Pioniere in Ingolstadt, sem var gerð fyrir sjónvarp kom „Eg hef aðei ns unnið með 3 kvikmyndatökumönnum, en ég athuga alltaf sjálfur hverja einustu ntynd" Fassbinder. „Eg kenndi sjálfum mér á klukkutima, aö klippa kvik- ntynd“. Fassbinder. Whity (’71). Þetta er 9. mynd Fassbinders og ýmsir efnisþræð- ir, sem hafa verið siendurteknir í fyrri myndum hans, sérstaklega mótífið kúgarinn/hinn kúgaði, fara nú að fá á sig skýrari ntynd. Whity segir frá svörtum þræl, sem drepur kúgara sinn og flýr með gleðikonu bæjarins. Frelsið er þó skammært og þau láta lifið — ekki fyrir refsivendi laga og réttar — heldur af hungri og þorsta, dansandi i eyðimörkinni. Næstu tvær myndir marka tima- mót í framleiðslu Fassbinders. 10. myndin er gerð á seinni hluta ársins 1971 og Fassbinder hafði nú unnið í nokkur ár með sama listamannahópnum (tæknimönn- um og leikurum). Myndin nefnist Warnung vor einer heiligen Nutte (Varastu heilögu hóruna), þar sem „heilaga hóran“ er kvik- myndalistin, en myndin er sjálfs- lýsing og sjálfsskoðun á hópnurn og þeim erfiðleikum sem hópur- inn hefur orðið að þola innbyrðis. „Þetta hrundi allt saman þegar við vorum að vinna viö W'hity", segir Fassbinder. „Viö skynjuð- unt allt í einu aö við höföum ekki náð þvi marki, sem viö ætluðum okkur með hópvinnunni. Warnung fjallar að nokkru leyti unt kvikmyndatökuna á Whity. Hún er vakning til þess skilnings, að það sem mann hefur alltaf dreymt um er hvorki til né heldur er auðvelt að gera það að veru- leika“. Warnung er sögð mjög svipuð rnynd Truffauts La Nuil Warnung vor eincr heiligen nutte (1971) Die Niklashauser fahrt (1970) Américaine, en hún er gerð þrem- ur árum á undan mynd Truffauts. Hún segir frá kvikmyndagerðar- mönnum sem biða dag eftir dag eftir leikstjóranum svo vinna geti hafist. Þeir reyna að drepa timann með ýmsu móti, en þetta er lokaður hópur, úr tengslum viö raunveruleikarin og allt sem þau gera eða segja, er merkingarlaust. Þau bíða aðeins eftir því að hitta „heilögu hóruna", eftir því að kvikmyndatakan hefjist, svo lif þeirra fái fyllingu. Fassbinder hlifir persónum sinunt hvergi en lýsingar hans eru jafnframt nákvæntar og nærgætnar. Unt leið og kvikmyndatakan hefst virðast persónurnar hafa fundið augnabliks lausn á ástandi sínu, þvi þessi vinna hefur í sjálfu sér merkingu. Það sem hefur eyðilagt persónur Fassbinders í fyrri myndum hans, er hið óreglulega samband'þeirra við vinnu. þ.e. við sinn eigin sköpunarkraft. „Persónurnar í myndurn mín- um eru ,,kaput-týpur“, vegna þess að þær vinna ekki, en lifa i veröld, þar sem þær verða að vinna“, segir Fassbinder. „Það eyðileggur þær. Við lifum í sam- félagi, þar sem við verðum að vinna á einhvern hátt, en persónur minar, þola það ekki, vegna þess að þær lita á það sem algjört tilgangsleysi. Þess vegna hafa þær enga kjölfestu og hrein- lega flosna upp. Kvikmyndagerð býður upp á mesta einstaklings- frelsið, sem þjóðfélag okkar hefur að bjóða og þess vegna valdi ég það sem viðfangsefni. En mikil- vægasta spurningin er, hvernig er hægt aö uppræta þetta þjóðfélag. Þegar þjóðfélagi er breytt, breyt- ist hugsunarháttur fólks einnig, en svo lengi sem ástandið er aðeins í kyrrstöðu, þannig að ein- hverjir verða að vinna til að aðrir geti hagnast á erfiði þeirra, þá er ekki umræðna þörf um margt annað en breytinguna á þessu ástandi“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.