Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1978, Blaðsíða 7
Þar stendur hnífurinn í kúnni.
IVlarkverðar framfarir hafa orðið
á útliti og aksturseiginleikum
amerískra bíla uppá siðkastið.
enda ekki vanþörf á. Það sem
lengst a'tlar að standa í þeim í
Detroit að bæta úr eru sætin, sem
enn þann dag í dag eru frumstæð
í mörgum gerðum; aftursætið
jafnvel svo að þangað er ekki
fólki bjóðandi. Sáralítil brevting
hefur orðið á sætum í hinum
venjulegustu gerðum amerískra
bíla og eru verksmiðjurnar allar
jafn slappar að þessu leyti. Fram-
sa'tisbekkurinn úr Chevrolet,
sem sést á myndinni er dæmi um
þá litlu alúð. sem lögð er við
þennan þýðingarmikla hluta bils-
ins. Að jafnaði er einnig mun
lakari útfærsla á mælaborði en
gengur og gerist í Evrópubílum
og jafnvol þeim japönsku líka.
Til eru þó einstaka dýrar gerðir
með þokkaleg sa'ti, en furðulegt
má þó teljast í landi lífsþa-gind-
anna. þegar almennileg sæti eru
talinn meiri háttar lúxus. Ilér
fylgir einnig mynd af einu af
þeim fáu sa'luni, sem eitthvað
virðist vera vandað til. Það til-
heyrir líka Buick Electra, sem
kostar vart minna en 6 milljónir.
Um árabil hefur ódýrasta gerðin
af Chevrolet, sem nú heitir Chev.v
Nova. verið brúkunarhestur núm-
er eitt í Ameríku og eins konar
fólksvagn. 1 ódýrustu gerð kostar
hann 3.3 milljónir. en eoupé-
gerðin. sem sést á myndinni, kost-
ar 3.6. Það fer þó naumast milli
mála, að þar er á ferðinni ódýr
bíll á bandarískan mælikvarða og
hlutur. sem fyrst og fremst er
hugsaður sem áreiðanlegt farar-
tæki. Og þar í liggur styrkur
hans. „Standard" vélin er 6
strokka, 110 hestafla. en hægt er
að fá 8 strokka vélar uppá 145 og
160 hestöfl. Lengdin er orðin hóf-
leg: 4,72 m.
Miðgerðin frá Chervrolet, sem
kölluð er Malibu. er að öllum
likindum með glæsilegustu bíl-
um, sem keyptir verða fyrir 3.9
milljónir nú til dags á íslandi.
Gerðin Malihu Classie Coupé,
sem sést hér á myndinni. er
l'oggja dyra, en íburðarmeiri og
kostar sléttar 4 milljónir. Komið
er til skjalanna nýtt mælaborð.
sem er aðeins frábrugðið þvf sem
verið hefur, en í framsætunum er
fórnað þægindum með því að láta
þau ná saman og gela fyrir bragð-
ið rúmast þrír i því. Þessi sjevri
er nú orðinn svo klassískur i út-
liti sem framast má verða; itaiska
línan ræður ferðinni og útlitið
minnir á fólksbilinn frá Maserati
fyrir nokkrum árum. Það gæti
virzt mótsagnakennt. en með
þessari einföldun virðist bílinn
úr dýrari verðflokki en hann er.
Eins og venjulega er hægt að
panta þennan híl með allskyns
aukahlutum, svo sem aðskildum
sætum. ma'Iaborði með aukamæl-
um, rafknúnum rúðum. stýri á
hjörum. jafnhitabúnaði, rofa,
sem læsir öllum dyrum og þak-
lúgu.
mm
krækiber
STOFU-
BLÓM
Eftir Önnu Maríu Þórisdóttur
Oft hefur verið gert góðlát-
iegt grfn að þeim konum, sem
segjast tala við stofublómin
sín. Nú er komið upp úr kaf-
inu að þetta virðist alls ekki
svo fráleitt sem það hijómar.
Nýjustu rannsóknir sýna, að
blómin hafa mjög næma til-
finningu ekki aðeins fyrir töl-
uðum orðum og gerðum, held-
ur einnig fyrir hugsunum
(sbr. grein í Ganglera, sem að
mestu er byggð á bókinni „The
Secret Life of Plants“). I
þessari grein er m.a. sagt frá
tveim mönnum, sem voru að
mæla viðbrögð plöntu
nokkurrar með lygamæli,
þegar plantan hætti skyndi-
lega allri svörun. í ljós koni
síðar, að í huganum hafði
annar maðurinn borið hana
saman við samskonar plöntu,
sem hann átti heima hjá sér og
hugsað um, hvað þessi væri
miklu síðri en piantan hans.
Þetta þoldi blessað blómið
ekki og sármóðgaðist og
harðneitaði að svara lyga-
mælinum.
Nú veit ég, hversvegna stofu-
blómin mín eru oft bara ansi
falleg, þó að ég tali aldrei við
þau né noti neitt sérstakt
bragð til að fegra þau. Oft sit
ég og horfi á þau og dáist að
þeim í huganum og gleðst yfir
þeim. Þetta liafa þau þá fund-
ið, blessaðar elskurnar.
Stundum hafa innanhúss-
arkitektar komið með þá
speki, að stofublóm væru ekki
í tízku, en hrædd er ég um að
mörg nýtízku stofan yrði
kuldalegri, ef hvergi sæist þar
græn planta. Og ósköp
puntuðu þær nú uþp á
frábreytt heimilin í gamla
daga blómstrandi rósirnar,
pelargóníurnar, liljurnar og
fúksíurnar, sem stóðu í glugg-
um lágreistra húsa við flöa og
firði og í dölum þessa Iands.
Þá voru ekki grððurhús né
blómabúðir, þar sem hægt var
að kaupa blóm til tækifæris-
gjafa. 1 mínu heimaþorpi
geghdu stofublómin miklu
hlutverki bæði í gleði og í
sorg. Ef skre.vta þurfti líkkistu
komu allar konur þorpsins
færandi hendi með þau blóm,
sem útspurngin voru í
gluggununi hjá þeim í það
sinnið. Við jarðarfarir söfn-
uðu kVenfélagskonurnar
öllum fallegustu og stærstu
pottaplöntunum og fínustu
skrautpottunum og stilltu
þessu upp í kirkjunni, en að
athöfn lokinni var hverri
plöntu og hverjum potti skilað
til síns heima.
Við brúðkaup og fermingar
voru rósirnar alveg ómissandi
og nágrannar hjálpuðu upp á
sakirnar hver hjá öðrum eftir
því, hvar rósir stóðu í blóma þá
stundina. Ég man eftir þvf að
góð nágrannakona átti hérutn-
bil útsprungna rós, sem hún
ætlaði að gefa mér í
fermingarkjólinn. Kvöldið
f.vrir fermingardaginn vökvaði
hún hana með kaffiblöndu til
þess að hún spryngi akkúrat út
daginn eftir og fengi þann
rétta, laxableika lit, sem óskað
var eftir. Og þetta tókst.
Margir minnast stofuhlóma
sem lifðu f.vrir tugum ára eins
og vissra persóna. Ég man eft-
ir sérlega myndarlegri
hortensíu, sem mamma átti ár
eftir ár og stóð á smálorði
framan við glugga og
blómstraði hvað eftir annað
risastórum, hnöttóttum blóma-
hvirfingum, ég man lfka ótót-
legan kaktus, sem stöku sinn-
um blómstraði alveg ótrúlega
fallegum, blóðrauðum
blómum og ég man vel, hvað
mamma var stolt, þegar kala-
blómið hennar sprakk út. Fyr-
ir fáeinum dögum átti ég tal
við konu. sem minntist jóla
kaktuss, sem mamma hennat
hafði átt í þorpi úti á landi og
alltaf liékk á sania stað f sams
fallega hengipottinum Of
blómstraði alltaf tvisvar á ári.
Nú setjum við blómin okkai
í baðkerið og sprautum yfii
þau úr handsturtunni. þegai
þau eru orðin rykug. Ég mar
svo langt, að baðker voru
fæstum húsum í mínu heima
þorpi. Þá settu konurnar blóm
in í stóra þvottabala og hristi
vatn úr fataburstum yfir þai
til- þess að skola af þeim rykið
En ka'ini sérstaklega milt o;
hlýtt sumarregn í logni va
það segin saga, húsmæðu
báru öll stofublómin sín út
pall og settu þau í bað í rign
ingunni. Það þótti ailra bezt.