Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1978, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1978, Side 4
kirkjustaðurinn Ileydalir í Breiðdal. Gamli bærinn á Gilsárstckk, rifinn um 1940, þá hálfrar aldar gamall. Gamii bærinn í Heydölum. Grcinarhöfundur ásamt Þorsteini Stefánssyni fyrrum bónda og hreppstjóra á Þverhamri. Þorsteinn býr nú í Reykjavík og er 94 ára. á hverjum bæ Frá búendum í Breiðdal á þriðja og fjórða tngi aldarinnar Eftir séra Emil Björnsson. Seinni hlnti. Og þá höldum við frá Kleifarstekk inn i Norðurdal og komum fyrst að Dfsa- staðaseli. Þar bjuggu á þessum árum afahræður mínir Arni Björn og Bjarni Arnasynir. Ég kom þar einu sinni, en þeir komu oft að Felli á Ieið í karl, fölleitur og skarpleitur með arnar- karl, falleitur og skarpleitur með arnar- nef, snyrtilegur og snöggur í hreyfing- um og tilsvörum. Hann sat í hrepps- nefnd um skeið, en var ekki gefinn fyrir þóf og fundasetur. Ef honum leiddist kastaði hann snöggri kveðju á hina og var þar með þotinn. Þá var hann litt gefinn fyrir slór á ferðalögum, fékkst oft ekki til að fara af baki, þótt hann ætti erindi, en bar það upp af hestbaki, kvaddi og fór. Bjarni frændi minn var snyrtilegur eins og Arni Björn, og engum öðrum hefi ég heyrt lýst þannig, að hann væri rækslinn. I því fágæta lýsingarorði fólst m.a. að hann væri hreinlegur til fótanna og þurr í fætur. Rækslinn maður rekur sig eftir þúfum og þurrum rimum í mýr- lendi, þó aðrir blotni þar í fætur og hirði lítt um. Bjarni var miklu hægari en bróðir hans, þybbnari og hlýlegri í við- móti, en tæpast eins skarpur í hugsun. Báðir klæddu þeir af sér hita sem kallað var, gengu í vaðmálsfötum og hreinlega til fara. Guðjón Jónsson bjó í Tóarseli, undir því tígulega fjalli Tónni, sem er pýra- mídalöguð og gnæfir í bakgrunninum, milli Suður- og Norðurdals, þegar horft er inn eftir Breiðdal. Guðjón var snyrti- menni eins og Dísastaðaselsbræður, greindur og farsæll bóndi, barnmargur og vel virtur af öllum. Meðal barna hans er Unnur, ekkja öðlingsins sr. Péturs T. Oddssonar, prófasts í Hvammi í Dölum og hjá þeim átti Guðjón heima síðustu árin, sem sr. Pétur lifði. Jón Björgólfsson á Þorvaldsstöðum, innsta bænum í Norðurdal, var einnig greindur vel og hagmæltur, vel máli farinn og góður bóndi, átti oft vænstu dilkana til frálags. Mér þótti gaman að honum, en var þó ekki aiveg dús við hann að tvennu leyti. I fyrsta lagi hafði ég hugboð um það snemma, að hann væri ekki alveg laus við að eiga þátt í að kona hans átti börn nær árlega, en það kom sér ekki vel fyrir mig, að því leyti, að móðir mín var ljósmóðir og tók á móti þeim í heiminn og varð að fara þær ferðir á innsta bæinn í dalnum. Þetta var þó vel hægt að fyrirgefa, en verra var, að Jón var ákafur framsóknarmaður, en íhaldsmenn heima hjá mér og allt fór f háaloft er hann var gestkomandi. En fljótlega skildist mér nú, að þetta var ekki eins alvarlegt og ég hélt, og okkur þótti í rauninni ekki sist vænt um komur hans. Jón var ekki hár vexti en því knárri og fjörmeiri. Hann var bróðir Sigurðar Björgólfssonar, kennara og rit- stjóra á Siglufirði, sem ég kynntist siðar og mat mikils. Kona Jóns hét Guðný Jónsdóttir. Björgvin Jónasson á Hlíðarenda man ég einnig vel og hann átti margt myndar- barna eins og nágranni hans á Þorvalds- stöðum. Ég kynntist þessum bændum úr inndölunum ekki síst er þeir voru nætur- sakir heima, einkum með fjárrekstur á haustin eða í kaupstaðarferðum. Björg- vin var myndarlegur maður, drengilegur og skemmtilegur. H:nn hafði frá mörgu að segja, sem ungir og forvitnir strákar gleyptu við, hafði verið í siglingum víðar um heim, minnir mig fastlega, en líklega nokkur annar í sveitinni. Lárus bjó á Gilsá. Hann var sonur Jóns í Papey búfræðings frá Eiðum. Lárus var góður bóndi, eins og flestir Norðdæling- ar, og hafði áhuga á framförum í jarð- rækt og búskap og vann að þeim. Hann hafði sig þó fremur litt í frammi en naut álits sem prúðmenni og myndarbóndi. Hann varð ekki gamalla maður.Hins veg- ar er kona hans Þorbjörg Pálsdóttir, dóttir Páls á Gilsá, enn á lífi í hárri elli. Hún lést eftir að þetta var ritað 92 ára að aldri. Hún var án alls efa aðsópsmesta kona sveitarinnar á þessum árum á sviði flestra félagsmála. Hún var ætíð á þeim tíina formaður góðgerðafélagsins Ein- ingar og stóð fyrir Einingarsamkomun- um með rausn og skörungsskap. Hún var allra manna og kvenna best máli farin í okkar sveit, hraðmælt og hraðmælsk og kom mörgu þörfu og góðu til leiðar. Hún var þó aldrei kosin í hreppsnefnd, er mér óhætt að segja, en þangað hefði hún átt erindi. Guðmundur Arnason bjó á Gilsárstekk og lifði það að verða elsti maður sveitar- innar. Hann var vel að sér um margt, búnaðarskólagenginn, greindur maður og ritfær, hreppsnefndarmaður um skeið og sjálfsagður fulltrúi i skatta- nefnd og skólanefnd, svo eitthvað sé nefnt af þeim opinberu trúnaóarstörf- um, sem hann kom nálægt. Mig minnir hann einnig vera forvigismaður í Búnaðarfélaginu. Guðmundur var menn- ingarmaður og braut upp á mörgum þörfum málum og framkvæmdum. Hann var eins og margir slíkir allgagnrýninn, og það kunna ekki alltaf allir að meta til fulls, fyrr en síðar, en gagnrýni hans var sprottin af framfaravilja. Kona Guð- mundar, Guðlaug, alsystir Þorbjargar á Gilsá, var einnig mesta menningar- kona og greind vel og lengi formaður lestrarfélags sveitarinnar. Páll sonur Guðrnundar og Guðlaugar, kenndur við Gilsárstekk, bjó þar fyrst með foreldrum sinum og síðan áfram og gerðist einn helsti forvigismaður sveitar- félagsins, oddviti og hreppsstjóri um langt árabil, en er nú látinn. Páll var vel kvæntur, Hlíf dóttur Magnúsar á Skriðu fríðri konu og myndarlegri, sem enn er organisti við Eydalakirkju. Þeir Gilsár- stekksfeðgar, rituðu báðir I Breiðdælu dr. Stefáns Einarssonar. Sóknarpresturinn í Eydölum, séra Vigfús Þórðarson, fæddur að Eyjólfs- ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.