Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1978, Side 6
Dutlungar
pilsfaldsins
Myndin er tekin í Reykjavík; nánar tiltekið á Hverfisgötunni eins
og sjá má af þeim sérstæðu og útskornu skreytingum, sem prýða
forhliö timburhússíns til hægri. Á steinsteypuöld er pví miður
fátítt, að eitthvað sé gert fyrir umhverfiö, sem gleöur augað. En
pað er raunar fleira hér sem gleður augað — og sennilega hefur
vakað fyrir Ijósmyndaranum að ná pví fremur en skreytingunni
á forhlið hússins. Ung og falleg stúlka gengur parna uppeftir
götunni og snýr sér við, pví hún hefur pata af Ijósmyndaranum.
Og hvaö er aö sjá; stúlkan er prýðilega klædd að öllu leyti nema
pví einu, að hún er berlæruð. Þessi mynd er sumsé frá dögum
stuttu tízkunnar og minipílsanna; — ætli paö hafi ekki verið um
eða rétt eftir 1970.
Erfiöir eru dutlungar pilsfaldsins og hér norður á íslandi veröur
heldur betur að bíta á jaxlinn, Þegar tízkan fyrir skipar faldinn
eins og sést á myndinni. Það eru pau lög, sem síst af öllum eru
brotin — og pó eru engin viðurlög. Aö sjálfsögðu var broslegt
að sjá blessaðar dúfurnar svona klæddar í frosti og jafnvel í
skafbyl. En bað er víst betra að skjálfa dálítið en vera „púkó“ og
pað er eitt pað merkilegasta við hverskonar fáránlega tízku, að
pegar nógu margir dansa meö, hætta allir að taka eftir pví, að
pað sé eitthvað sérstakt á ferðinni. Nú, pegar dutlungar
pilsfaldsins hafa fyrirskipað, að hann skuli hafður mun neðar,
mundi klæðnaður stúlkunnar á myndinni vekja furðu og jafnvel
hneykslun. Og hvaö sem fagurfræðilegu hliðinni líður, pá hefur
pessi tízka varla verið til bóta fyrir heilsufarið.
Saab örgerö 1978
Rökrœn hönnun og öryggi í fyrirrúmi
Sé nútíma fimm manna fjöl-
skyldubíll hugsaður út frá rök-
rænu sjónarmiði einvörðungu, er
vissulega erfitt að koma auga á
skynsamlegri lausn, en fundin
hefur verið með Saab 99. Hér er
góður brúkunarhestur, sterk-
byggður, með framhjóladrifi og
þræðir hinn gullna meðalveg
skynseminnar með tilliti til eyðslu
annars vegar og vinnslu hins
vegar. Hann er hentugur í borgar-
umferð að því leyti að hann er
tiltölulega fyrirferðarlítill að ytra
máli, en aungvu að síður jafn
rúmgóður að innan og margir
miklu fyrirferðarmeiri bílar.
Gluggaflöturinn er hár, útsýni
gott, sætin eins og bezt verður á
kosið og upphituð. Allur innri
frágangur smekklegur og traust-
legur. Þetta er vissulega ákjósan-
leg málamiðlun, en stundum virð-
ist vera nauðsynlegt að slá af
skynseminni til þess að bíll verði
„spennandi". Allt er það þó
smekksatriði og til eru þeir, sem
álíta Saab bíla fegurstan. Fleiri
munu þó á þeirri skoðun, að hann
sé kannski um of stubbslegur til
þess að hægt sé að telja hann í
flokki með þeim bílum sem hvað
bezt þykja teiknaðir. En sem sagt;
Hér hefur notagildið verið látið
ráða ferðinni, enda er bíll ekki
annað en vél til að aka í; komast
frá einum stað á annan, þægilega,
ánægjulega og að sjálfsögðu með
fyllsta öryggi. Hér eru jafnvel
þurrkur á framlugtunum og
höggvarar, sem ekki eru bara uppá
útlitið, en gera raunverulegt gagn.
Allt er þetta í nákvæmu samræmi
við yfirlýsingu framleiðandans,
sem birt er í ágætu riti um þessa
sænsku verksmiðju og hljóðar á
ensku: „We believe in plain
common sense“ og þýðir bókstaf-
lega: Viö trúum á einfalda heil-
brigða skynsemi.
Það er vissulega erfitt að hafa
nokkuð á móti slíkum sjónarmið-
um, þegar of margir bílar eru á
flestum götum og orkunotkunin er
alvarlegt vandamál. Samt vantar
ögn upp á og raunar þar sem sízt
má vænta þess. Samkvæmt nýleg-
um skýrslum um bilanir og
viðhald, sem teknar voru saman og
birtar í Bandaríkjunum, — og
hliðstæðri skýrslu frá Félagi
danskra bifreiðaeigenda, er Saab
ekki meðal þeirra bíla sem minnst
bila. Báðar voru þessar skýrslur
alveg samhljóða. Minnst höfðu
bilað tvær gerðir japanskra bíla,
en bæði Volvo og Saab voru býsna
neðarlega á listanum, en yfirleitt
voru það smábilanir.
Saab 99 er fáanlegur bæði
tveggja og fjögurra dyra og
hálf-afturbyggða gerðin Combi
Coupé fæst Sæði þriggja og fimm
dyra. Þá er mjög stór hurð á
afturendanum. Báðar gerðirnar
eru með fjögurra strokka vél; en
ein með sex; sedan-gerðin með 118
hestafla vél, en Combi Coupé með
100 og 108 hestafla vélar. Mikið
flutningsrými er í Combi Coupé,
en í venjulegu gerðinni hefur verið
fórnað farangursrými til þess að
halda fyrirferð bílsins innan
þeirra marka, sem sjá má. Hins-
vegar er Saab stærri bíll en hann
lítur út fyrir að vera; til dæmis
er lengdin 4.53 m.
Sá gamli Saab 96 er enn á
ferðinni og þrátt fyrir framúr-
stefnuútlit og mikla straumlínu á
sínum tíma, er hann nú orðinn
dálítið gamaldags. En Saab 96 er
bíll með frábæra aksturseiginleika
og eini gallinn á honum er, hversu
þröngur hann er að innan. Saab 96
kostar núna 3.338 þús.
Saab 99 er fáanlegur í fimm
afbrigðum, sem merkt eru með
bókstöfum: L, GL, GLE, EMS og
Turbo. Venjulegasta gerðin er
auðkennd með L. Lítið eitt íburð-
armeiri er GL-gerðin og GLE er
Combi Coupé, fimm dyra. EMS er
sportútgáfa og efst á listanum er
Saab Turbo, búinn sex strokka vél,
sem þó á ekki að vera þorstlátari
en venjuleg 2 lítra bensínnvél.
Turbo-vélin er með beinni innspýt-
ingu og 145 DIN-hestöfl.
Samkvæmt upplýsingum frá
Saab-umboðinu, Sveini Björnssyni
& Co, er afgreiðslufrestur um það
bil 4 vikur. Umboðið lánar 300
þúsund til 8 mánaða. Verðið á
Saab 99L eru tæpar 3.8 millj. kr.,
á GL rétt innan við 4 milljónir, á
EMS 4.4 milljónir og dýrasta
gerðin: Saab 99 GLE kostar 5.1
milljón.
GS.