Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1978, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1978, Síða 12
Bætt heilsa — betra líf Þættir um sjúkdóma, lækningar og fyrir- byggjandi aðgerðir eftir Michael Halberstam Chirrhosis í lifur, eða skorpulifur, nefnist sjúkdómur sem er allalgeng- ur í sumum löndum og leggur þar fjölmarga að velli árlega. Honum vindur þanniq fram, að frumurnar í lifrinni hrörna unz þær deyja og harðna þá. Þegar cirrhosis er kom- inn í lifrina hættir hún smám saman að gegna hlutverki sínu og gall berst inn í blóðrásins, en það lýsir sér i hörundsgulu og gulu í augum. Auk þess koma æðanet í Ijós i andliti og á hálsi, kviðurinn velgist út, lófar roðna, blóð storknar ekki lengur, brjóst karlmanna stækka, kyngetan þverr og kemur ekki aftur. Hætti sjúklingar ekki að neyta áfengis, þegar þarna er komið, deyia þeir yfirleitt áður langt liður, annað hvort af blæðingu ellegar lifrin bilar alveg Skorpulifur hefur löngum verið rakin til drykkjusýki eða næringar- skorts, nema hvort tveggja færi saman Læknar eru þó ekki á eitt sáttir um orsakirnar í lækningariti, sem kom út árið 1802, segir að óhófleg áfengisdrykkja sé algengust orsök skorpulifrar, og var svo lengi talið Þegar kom fram á fjórða tug þessarar aldar fór ýmsa vís- indamenn hins vegar að gruna, að næringarskortur kynní að vera höfuðorsök sjúkdómsins. Það varð þó ekki sannað; og rannsóknir sem fram fóru upp úr 1940 bentu til þess að jafnvel „hófleg" áfengis- neyzla, samkvæmisdrykkja svoköll- uð, gæti valdið fitusöfnun í lifur, — ,,fitulifur" —, en hún verður oft á undan cirrhosis. Alltat var haldiö átram aö rann- saka sjúkdóminn og reyna að graf- ast fyrir um orsakirnar. Á árunum upp úr 1 960 voru gerðar tilraunir á rottum, ef það mætti verða til þess að skýra málið. Þvi miður reyndust rotturnar ekki náttúraðar fyrir drykkjuskap, og tókst aldrei að fá þær til að drekka svo mikið og lengi að þær biðu lifrarskemmdir af. Vis- indamenn gáfust þvi upp við rott- urnar og sneru sér þess i stað að bavíönum. í einni rannsókn voru 1 5 bavíanar aldir á fóðri sem átti að duga þeim til fullrar næringar en auk þess hellt í hvern og einn áfengi sem nam litra af viskíi á dag, og gekk svo í fjögur ár Allir aparnir fengu „fitulifur" Fimm fengu lifrar- bólgu upp úr því, og tveir fengu svo skorpulifur. Þessar rannsóknir sönn- uðu það, að áfengi getur valdið skorpulifur (bindindismenn geta samt lika fengið hana) En nú halda ýmsir þvi fram, að ofskammtar af hverju sem er, hvort heldur það er áfengi eða ávaxtasafi, sé heilsuspill- andi; og benda þeir t.d. á það, er gæsir eru ofaldar á korni i þvi skyni að fita lifur þeirra fyrirrétt þann, sem pate de foie gras, (gæsa) lifrarkæfa, nefnist og þykir mikið lostæti um allar jarðir. Enn er sem sé margt á huldu um skorpulifur. Ekki eru allir skorpulifr- arsjúklingar alkóhólistar, og ekki heldur fá allir alkóhólistar skorpulif- ur. Menn fá hana sjaldnast fyrr en eftir fimmtugt eða sextugt, en þó eru dæmi um skorpulifur í ungling- um.Og tvisvar sinnum fleiri karlar en konur deyja af henni. Chirrhosis hefur lengi verið land- lægur i Frakklandi en Frakkar drekka mikið að staðaldri, eins og kunnugt er Fá þeir margir lifrar- köst, crises de foie, á nokkrum fresti. Þyfir það helzt ráð við þessum köstum að fara til Vichy, þamba ölkelduvatn, sem þar sprettur úr jörðu, og baða sig í því. Aftur á móti er sjúkdómurinn tiltölulega fátíður með Gyðingum og Múhammeðs- mönnum. Ekki verður séð, að áfengismagn skipti höfuð máli í þessu. Það virðist skipta meira máli hve lengi menn drekka en hve mikið þeir drekka. Oftast fá menn ekki cirrhosis fyrr en þeir eru búnir að drekka mikið í 10—15 ára. í sumum skemmist lifrin þó fyrr, og ýmsir vísindamenn telja, að lifrin í manni, sem drekkur þótt ekki sé nema eitt eða tvö glös af kokkteil (eða jafngildi þess) á dag geti farið að skemmast eftir 3—4 ár. í sýnum, sem tekin voru úr mönnum fyrir og eftir kokkteilveizlur kom í Ijós, að lifrarhvatar (lifrar- enzým) höfðu aukizt -í blóðinu við áfengisneyzluna. Var þar með sýnt. að jafnvel „hófdrykkja", sam- kvæmisdrykkja, er skaðleg lifrar- frumunum; áfengið, þótt lítið sé, drepur frumurnar og hvatarnir úr þeim berast út í blóðrásina. Sem betur fer er lifrin þolið líffæri og endurnýjunarmáttur hennar mikill. Það er einnig óvist hver tengsl eru með cirrhosis og næringu. Margir drykkjusjúklingar borða lítið og óreglulega og bendir það til þess, að lélegt fæði geti valdið cirrhosis. En menn, sem borða reglulega og nær- ingarrikan mat geta lika fengið hann. Og tilraunir til þess að stemma stigu við cirrhosis i alkóhól- istum með þvi að ala þá vel hafa borið næsta litinn árangur. Fyrstu likamleg einkenni cirrhosis i lifur eru tæpast merkjanleg. En þegar hann er kominn nokkuð áleið- is fer sjúklingurinn að horast, hon- um verður oft óglatt og hann kastar upp, hann hættir að geta melt fitu og meltingin fer yfirleitt úr skorðum. Oft gera sjúklingar sér enga grein fyrir því, sem um er að vera. Það er ekki ótitt, að læknir uppgötvi þrútna lifur í manni við almenna skoðun Sé lifrin orðin óeðlilega stór getur læknir fundið það með því að þreifa utan um hana. Fyrir kemur, að hún stendur greinilega út i hægra megin í kviðarholinu. Gangist maður undir blóðhvatapróf (blóðenzýmpróf) kemur strax í Ijós, hvort lifur hans er skemmd eða ekki. Sé sprautunál stungið inp lifrina utan frá má sjúga út ögn af lifrarvef og sjá af honum hve langt sjúkdómurinn er kominn. Það þykir sýnt af ýmsum rann- sóknum, að mönnum, sem komnir eru með cirrhosis, getur batnað — ef þeir hætta að drekka. Að vísu verður lifrin aldrei söm og áður, þegar svo langt er komið. Þeim, sem komnir eru með „fitulifur" eða lifrarbólgu (hepatítis) og fengju cirrhosis að óbreyttu, getur hins vegar batnað að fullu ef þeir hætta að drekka. SKORPU - LIFUR í eftirfarandi spili tekst varnarspilurunum á skemmtilegan hátt og góöri samvinnu aö hindra aö sagnhafi vinni spiliö. Norður S: DG72 H: ÁG73 Vestur T: G82 Austur S: 9 L: K10 S: K86 H: D842 H: 965 T: ÁK7 L: 98753 Suöur S: Á10543 T: D954 L: 642 H: K10 T: 1063 L: ÁDG Sagnir gengu þannig: Suður Vestur Noröur Austur 1S P 3 S P 4 S P P P Sagnhafi var harla ánægöur þegar hann sá spil féiaga síns og taldi aö spiliö væri unniö, ef austur ætti spaöa kóng. Vestur tók slagi á ás og kóng í tígli og lét tígul í þriöja sinn. Austur drap meö drottningu og hugsaöi sig síöan um hvaö rétt væri aö láta næst út. Honum leizt alls ekki á spilin, sem hann sá í boröi, og komst aö raun um, aö eina vonin væri aö vestur ætti annaö hvort spaöa 10 eöa 9. Næst lét austur út þrettánda tfgulinn. Sagnhafi sá ekki ástæöu til aö kasta hjarta eöa laufi heima og trompaöi því heima, vestur trompaöi því yfir meö níunni og drepiö var í boröi meö spaða gosa. Nú lét sagnhafi út spaöa drottningu, austur drap meö kóngi og drepiö var heima meö ási. Augljóst er aö sagnhafi komst ekki hjá því aö gefa austri slag á tromp því austur á 8—6 í spaöa en í boröi er spaöa 7 og heima á sagnhafi spaöa 10. Þaö reynist rétt hjá austri, aö þetta var eina leiöin til aö hindra aö sagnhafa tækist aö vinna spiliö, sem í upphafi virtist auöunnið. Jón Gunnlaugsson FÖRUMAÐURINN Lúinn og langt aö kominn stefnir hann í kófiö studdur stafprikinu um lágnættiö, skórnir eru skældir og skarbrotinn er óvinur hans. * Hann er nærri uppgefinn á pessu prátefli. Gömlum manni væri líknargjöf pótt ekkí fyndist önnur hvíla en horn í garöa. Úrsvalur morgunn andar köldu. Mjalldrífan hefur breitt lín sitt yfir allar misfellur líka þann beð sem var síðasti hvílustaöur hans.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.