Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1978, Page 7
Olga Björk, heimasætan fjórtan ára, dóttir Braga og konu hans Dúu Björnsdóttur tróð
inn í þessum svifum...
Myndir: stgr.
Bragi á heimili sínu í Hveragerði
Taliö að ofan: Frá Hornafirði, vatnslitamynd eftir Höskuld Björnsson „... gefur ekki mikiö
eftir mynd eftir Asgrím frá sömu slóðum“, segir Bragi.
í miðju: Stúlka frá Algiers. Olíumynd eftir Blöndal. Bragi eígnaðist myndina fyrir nokkrum
árum Þegar hún kom til landsins og kallar hann upp á spönsku MUJER MALE. Eigandi
myndarinnar til langs tíma: Arkitekt Rassmundsen í Danmörku.
Neðst: Haframjölsgrautur eftir Kjarval. „Hún var úti í Ameríku pessi mynd. Olía á striga
stærö 40x50, Rissmynd eftir Kjarval: Andlit.
Þaö féll í hlut Security Guard aö vera
eins konar liason- officers milli banda-
rísku herlögreglunnar annars vegar og
íslenzku ríkislögreglunnar hins vegar
varöandi hagsmuni beggja og til að halda
uppi friði og spekt yfir línuna meö öllum
tiltækum ráöum og leiðum ef því var aö
skipta. Þetta var illa þokkaö starf og
misindismenn og bófar í liöum hvárum
tveggja litu menn undir stjórn Super-
intendant G. Arngrímssonar aö vestan
hornauga og höföu stundum í frammi
illyrði og hótanir. Þýddi þá ekki aö
æörast, heldur ganga uppstertur til leiks
a la Serpico, sem ekki þáöi mútur. Hins
vegar var starfið gróflega vel borgaö meö
ýmsum fríöindum. Greinarhöf. var einn
manna liðsins og kynntist „foringjanum“
vel, sem sendi hann oft á tíðum á slæma
pósta í refsingar skyni og til aö hlýðnast.
Fór þó oft vel á þeim, einkum ef Sturlunga
barst í tal. Guömundur sálugi var vel
geröur um margt og karakter, en offari og
mótaöi andann á stundum. Sú var tíðin.
Þaö var einmitt í svartasta skammdeginu
‘53, sem sá, er þetta ritar, kynntist
þessum harösnúna Braga Einarssyni frá
byrjun og batt félagsskap við hann, sem
hefur enzt gegnum árin eöa í fjóröung
aldar . .. og er saga aö segja frá því, sem
sumir kannski vita að nokkru.
Og á austurslóöum — þ.e.a.s. austan-
fjalls á langri dvöl þar síöan 1964 sá
greinarhöf., hvernig Eden var jafnt og þétt
að taka stakkaskiptum, ekki eingöngu
sem fyrirtæki, heldur sem stöö, sem
kynnti Hverageröi og allt Island — eða
sem hluti fyrir heild. Fólk veröur sjálft aö
dæma ágæti hvers og eins, sem þaö
kynnist, hvort sem það er staður viö
þjóðveg ellegar annar.
Eftir starfiö á Vellinum, fer Bragi til
Júess í byrjun 55. í Ameríku lendir Bragi
undir mjög sterkri og strangri stjórn, hjá
þýzkum blómræktarmanni í New York,
sem hét Mr. Moeller ásamt syni hans, sem
var skírður Adolf í höfuðið á gömlum
foringja. Þar var vinnan ekki tekin neinum
vettlingatökum. Þar bar viö daglega aö
menn byrjuöu aö morgni og hurfu um
hádegið og vitjuðu aldrei kaups. i fyrstu
kynntist Bragi engum manni, bjó einn í
herbergi hjá áttræðum manni. Hann
birtist á hverju kvöldi í gættinni hjá mér
til aö vara mig viö vondum konum og
segja mér, hvar ég ætti ekki aö koma
þegar liði að nóttu. Fyrir velvilja American
Scandinavian Foundation var ég fluttur úr
þessari prísund frá Moeller eftir þriggja
mánaöa afplánun. Moeller borgaði vel.
Tóku nú viö betri tímar. Hann eignaðist
vini og kunningja, feröast um flest ríkin í
Bandaríkjunum. Um skeiö vinnur hann hjá
fyrirtæki, sem heitir The Pride Paving and
Landscaping Company á Long Island og
þar er hann síöasta hlutann af námsdvöl-
inni. Hann er þar tvö ár og kemur
alkominn heim seint á árinu 56.
Haustið 57 er Braga úthlutað viö
þjóöveginn lóð eins og hann lá þá austast
í Hveragerðisþorpi. Og þá um voriö 58 er